Heimilislaus Reykvíkingur fann stolinn síma og skilaði honum Stefán Árni Pálsson skrifar 24. febrúar 2015 14:30 Athvarfið er staðsett á Njálsgötu 74. vísir/anton brink „
Ég tók eftir því þegar ég var að fara heim að það hafði einhver farið ofan í töskuna mína og tekið þar símann minn, kortið mitt og einnig peninga sem ég var með á mér,“ segir Heiður Björk Óladóttir, 21 árs nemi í Reykjavík og eigandi netverslunarinnar Aktív Iceland. Hún varð fyrir því óláni að vera rænd á skemmtistaðnum Austur í október í fyrra. „Það fyrsta sem ég geri er að fara í símann hjá vinkonu minni, sem var með appið Find my iPhone, og læsi símanum mínum. Þá er aðeins hægt að hringja í símann. Síðan tala ég við lögreglumann niðri í bæ og hann sagði að það eina sem ég gæti gert væri að fara á lögreglustöðina á mánudeginum og kæra atvikið.“ Heiður fór því heim að sofa og var að vonum nokkuð svekkt. „Þegar ég vakna fer ég á síðuna hjá Find my iPhone til þess að athuga hvort það sé kveikt á símanum og svo var. Ég sé að síminn er staðsettur niðri í bæ og einhvers staðar nálægt Njálsgötu. Þá hringi ég strax í lögregluna og fæ að tala við varðstjóra. Hann segir mér að það sé lítið hægt að gera því lögreglan hafi ekki heimild til þess að fara inn í hús til að leita að símum.“Fór sjálf að leita Hún ákvað næst að fara í bæinn ásamt bróður sínum til þess einfaldlega að leita að símanum. „Ég byrja bara á því að hringja á fullu í símann minn þarna nálægt til þess að athuga hvort ég heyri í honum. Það gekk auðvitað ekkert en þegar við erum alveg við það að gefast upp þá stígur kona út úr húsi og spyr okkur einfaldlega hvort við séum að leita að síma.“ Heiður svaraði því strax játandi. „Þá hafði sem sagt heimilislaus maður fundið símann minn á götunni, en kortið mitt var í hulstri við símann og var það einnig á sínum stað. Peningarnir voru aftur á móti horfnir og ég bjóst svo sem við því. Þau voru búin að reyna hafa samband við mig á Facebook en skilaboðin fóru beint í ruslpóst og ég sá þau ekki fyrr en seinna.“ Síðar kom í ljós að maðurinn hafði gist í athvarfi fyrir heimilislausa á Njálsgötu 74. Heiður náði ekki tali af manninum en hefur alltaf hugsað vel til hans frá atvikinu.
Mest lesið „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Innlent Alltaf jafn óþægilegt að heyra af nálægri árás Innlent Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Innlent Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Innlent Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Innlent Maður sem féll í Ölfusá fundinn Innlent Fari mjög líklega aftur í „Ég sagði það“-frakkann næsta vor Innlent Vegir og gatnamót í Hvalfirði komnir að þolmörkum Innlent Áfram geisar innbrotahrinan Innlent Veðrið haggist ekki að neinu ráði Innlent Fleiri fréttir Aukið aðgengi að áfengi auki neyslu Regnboginn verði málaður aftur en með breyttu sniði „Verið að herja á fólk sem er búið að missa maka“ „Mikilvægast að þetta verði ekki eins og einhver hótelsundlaug á Tenerife“ Bandero stefnir í átt að Íslandi á ný Heimurinn aftur orðinn flóknari en NATO muni aðlagast Mikið fylgistreymi milli Miðflokksins og Sjálfstæðisflokksins Toppurinn þegar 450 manns hlupu á eftir Matt Damon Sjálfstæðisflokkur mælist stærstur í fyrsta sinn frá kosningum Mikil tíðindi í nýrri fylgiskönnun Maskínu Þróunin mælist áfram hæg en stöðug Annað innbrotið á skömmum tíma: Leiðinlegt að stolið sé frá litla manninum á horninu Segir sama starfið nú auglýst að nýju:„Pínu sárt að horfa upp á þetta“ Flugmennirnir sviptir flugréttindum Fyrrum bæjarstjóri og bankastjóri leiða stjórn Landspítalans „Fólk bara skammast sín svo rosalega mikið“ Málaður regnbogafáni gæti reynst of sleipur Skúli fagnar með „sannleikann að vopni“ Samherji og Guðrún Karls berjast saman gegn fíknidjöflinum Ástarsvik sífellt algengari og rannsókn lokið í Eyjum Eftirlitsmenn Strætó báðu um að fá að klæðast stunguvestum Fórnuðu gúmmístígvélunum við að slökkva sinueld á Ströndum Ekki auðvelt að skrifa grein sem þessa Ómálefnalegir dónar fara í skammarkrókinn „Ég er ekki búinn að afskrifa hana“ „Maður vill trúa kúnnunum sínum“ Hætta rannsókn á andláti á Hraunbúðum „Fær þessar fréttir og við förum að gráta og allt ömurlegt“ „Þetta kemur okkur mjög á óvart“ Segir ótímabært að ræða undanþágur Sjá meira