Gera alvarlegar athugasemdir við dóma Hæstaréttar Gunnar Atli Gunnarsson skrifar 25. febrúar 2015 21:00 VISIR
Fulltrúar sjö samtaka um réttindi kvenna afhentu í dag Ólöfu Nordal innanríkisráðherra áskorun varðandi stöðu mála um nálgunarbann. Samtökin fagna þeirri viðleitni lögreglu að láta reyna á nálgunarbann fyrir dómstólum en þeim hefur fjölgað mikið undanfarin ár. Árið 2011 dæmdi Hæstiréttur í tveimur málum um nálgunarbann yfir sakborningi en þeim hefur fjölgað mikið undanfarin tvö ár. Á fyrstu tveimur mánuðum þessa árs hefur Hæstiréttur dæmt í fimm slíkum málum. Í þremur af þessum fimm felldi Hæstiréttur nálgunarbannið úr gildi. Samtökin gera alvarlegar athugasemdir við meðferð þessara mála hjá Hæstarétti og segja einn þessara þriggja dóma vera rökstuddan með svo léttvægum rökum að samtökunum sé brugðið. „Þetta er ekki líðandi. Við teljum að þegar lögregla krefst nálgunarbanns yfir einstaklingi að þá liggi fyrir einhverjar ástæður. Af einhverjum ástæðum er Hæstiréttur ekki að taka til greina þessar ástæður sem Lögreglan færir fram,” segir Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir, framkvæmdastýra Kvennréttindafélags Ísland. En er Hæstiréttur ekki einfaldlega að dæma eftir gildandi lögum? „Það sem við viljum biðja um er að það komi með þessu lögum, leiðbeinandi reglugerð þar sem komi fram hvað telst til atvika sem skuli meta þegar ákvörðun er tekin um nálgunarbann,“ segir Brynhildur. Samtökin skora á innanríkisráðherra að taka lög um nálgunarbann og brottvísun af heimili til endurskoðunar. Þó þurfi meira að koma til, meðal annars kalla samtökin eftir viðhorfsbreytingu íslenskra dómstóla. „Það er að segja að dómarar geri sér grein fyrir afleiðingum kynferðisofbeldis í víðara samhengi og heimilisofbeldi,“ segir Brynhildur.
Mest lesið Tæpum fjögur hundruð þúsund krónum eytt í vorgjöf Innlent Sakborningar í Gufunesmálinu mættir í Landsrétt Innlent Hælisleitendur aðstoðaðir við að þykjast vera samkynhneigðir Erlent Hæstiréttur hlýðir ekki á Jón Þór Innlent Skjálfti vegna Írisar innan Sjálfstæðisflokksins í Eyjum Innlent Gert að greiða miskabætur eftir að hafa nauðgað táningsstúlku Innlent „Já, ég er dálítið reiður“ Innlent Bein útsending: Inga ávarpar kennara sem ráða ráðum sínum Innlent „Það gerist ekkert ef ljósin eru slökkt“ Innlent Sjálfkjörið á Vopnafirði Innlent Fleiri fréttir Eimskip líta smyglið mjög alvarlegum augum „Já, ég er dálítið reiður“ Matarstefnan bara „orð út í loftið“ Töldu framboðinu ekki til framdráttar að mæta í þáttinn Verð á stökum miða í sund hækkar en árskortið lækkar Árni vill stöðuna þrátt fyrir auglýsingu Skjálfti vegna Írisar innan Sjálfstæðisflokksins í Eyjum Sakborningar í Gufunesmálinu mættir í Landsrétt Bein útsending: Inga ávarpar kennara sem ráða ráðum sínum Hæstiréttur hlýðir ekki á Jón Þór Gert að greiða miskabætur eftir að hafa nauðgað táningsstúlku Sjálfkjörið á Vopnafirði Logi tekur undir mótmæli gegn þátttöku Rússa á Feneyjatvíæringnum Tæpum fjögur hundruð þúsund krónum eytt í vorgjöf Tvö erindi borist Þingvallanefnd vegna tónleika Kaleo „Það gerist ekkert ef ljósin eru slökkt“ Ný atvinnustefna vanmeti stærstu tæknibreytingu samtímans Eftirför lögreglu endaði á Sorpu Tveir handteknu starfsmenn Eimskipa Skorað á Guðmund að snúa aftur heim Slagsmál, falsað ökuskírteini og ölvunarakstur Keyrðu utan í bílinn í eftirförinni Endurskoða gjaldsvæði borgarinnar Verulegt magn fíkniefna og hönnunarbolli í vorgjöf Flogið til Vestmannaeyja til mánaðamóta „Þyngra fyrir fæti að fá vinnu“ Hælisleitendamálin settu þrýsting á Reykjanesbæ Vilja verða áheyrnarfulltrúar og hækka laun sín gríðarlega Unnar kjötvörur af matseðli í skólum: „Stranglega bannað að hafa pylsupartý“ Sex handteknir og um verulegt magn sterkra efna að ræða Sjá meira