Ekkert annað en svik við yfirveðsett heimili Heimir Már Pétursson skrifar 27. febrúar 2015 19:53
Formaður Hagsmunasamtaka heimilanna segir það ekkert annað en svik af hálfu stjórnarflokkanna að hætta við að leggja fram svo kallað lyklafrumvarp, eins innanríkisráðherra hefði upplýst um á Alþingi í morgun. Nú verði eigendur yfirveðsettra heimila hundeltir af kröfuhöfum. Með lyklafrumvarpi er átt við að setja í lög að eigendur yfirveðsettra heimila geti skilað lyklunum af húseignum sínum og þar með verið lausir allra mála. Veðhafar töpuðu þannig þeim kröfum sem væru umfram verðmæti húseignar og húseigandinn öllu því sem hann hafði lagt í húsnæðið. Helgi Hjörvar þingflokksformaður Samfylkingarinnar minnti á það á Alþingi í dag að núverandi innanríkisráðherra hefði varaformannstíð sinni í boðað frumvarp sem þetta á flokkráðsfundi Sjálfstæðisflokksins í mars 2012. „Bæði Sjálfstæðisflokkurinn og Framsóknarflokkurinn lofuðu í kosningabaráttunni að lögfesta lyklafrumvarpið. Og margt fólk sem á í miklum erfiðleikum bindur vonir við að það verði gert. Ég kalla eftir því að hæstvirtur ráðherra svari því einfaldlega núna á miðju kjörtímabili hvort það eigi að efna loforðið eða ekki,“ spurði Helgi. Ólöf Nordal innanríkisráðherra kannaðist við þessi loforð en í millitíðinni hefði verið kosið og ríkisstjórnin náð þeirri niðurstöðu að fara svo kallaða leiðréttingarleið í skuldamálum heimilanna. „Þess vegna get ég sagt við háttvirtan þingmann að á þessu stigi er ekkert frumvarp í smíðum í innanríkisráðuneytinu sem snýr að lyklamálum,“ svaraði Ólöf.Hvað finnst þér um þessi tíðindi?„Þetta eru stórtíðindi, að loksins kom eitthvað um það frá ráðherrum og ríkisstjórn að það eigi ekki að gera neitt lengur fyrir heimilin. Sem fylgdi nú eiginlega með; að það væri svona nokkurn veginn búið að gera allt sem hægt væri fyrir heimilin,“ segir Vilhjálmur Bjarnason formaður Hagsmunasamtaka heimilanna. Þetta væri ekkert annað en svik við þann fjölda fólks sem beðið hafi eftir því að þetta loforð stjórnarflokkanna yrði efnt sem þrautarlending. „Nú stendur þetta fólk frami fyrir því að verða hundelt með það sem stendur út af eignum þess. Þannig að þetta eru bara svik finnst mér,“ segir Vilhjálmur Bjarnason.
Mest lesið Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Innlent Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Innlent Á spítala eftir misheppnaða aftöku Erlent Lét ákærða vita af andlátinu: „Hann var í miklu uppnámi“ Innlent Valgerður réttir fram sáttahönd Innlent Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun Innlent Tilkynnt um ölvaðan flugmann Innlent Fleiri fréttir Væntingar um útspil tengt gjaldahækkunum Neituðu sök við þingfestingu Straumsvíkurmálsins Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Sniðganga geti verið túlkuð sem yfirlýsing ríkisstjórnarinnar Fjórir í gæsluvarðhald eftir hraðsendingu frá Þýskalandi Ekkert svigrúm í tengslum við kjarasamninga og tvísýnt með framhaldið Lét ákærða vita af andlátinu: „Hann var í miklu uppnámi“ „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Flutningabíll valt á Þverárfjallsvegi sem er lokaður Lægðin grynnist í dag en von á annarri Bíl ekið á ljósastaur Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði ESA geti ekki beðið endalaust Valgerður réttir fram sáttahönd Vill að Daði vísi til þess sem hún á að hafa sagt Tilkynnt um ölvaðan flugmann Brunavörnum hafi verið verulega áfátt Konan sem lögreglan lýsti eftir er fundin Nú er hægt að taka Strætó alla leið að flugstöðinni Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Gera alvarlegar athugasemdir við málflutning Daða Skoðar uppfærslu í 36 sæta rafflugvél Neysla geðrofs-, tauga- og ofnæmislyfja stóraukist Dæmdur fyrir manndráp af gáleysi við Vík Innan við helmingur karla vill refsingar fyrir vændiskaup Árásin rannsökuð sem tilraun til manndráps Sjá meira