Segir engan ágreining innan ríkisstjórnar um RÚV Þorbjörn Þórðarson skrifar 28. febrúar 2015 14:15 Illugi Gunnarsson, mennta- og menningarmálaráðherra. Vísir/GVA
Fullyrt er að ágreiningur sé milli ríkisstjórnarflokkanna um fjárveitingar til RÚV. Sjálfstæðismenn séu tilbúnir að auka framlög til stofnunarinnar en Framsóknarflokkurinn ekki. Illugi Gunnarsson mennta- og menningarm á lar áð herra vísar þessu á bug.Illugi og Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, hafa komið því á framfæri við fulltrúa Ríkisútvarpsins að þeir sjálfir séu mun viljugri til að koma til móts við fjárhagsvanda félagsins en samstarfsflokkur þeirra í ríkisstjórn. Þetta kemur fram í dagblaðinu Stundinni en blaðið fullyrðir að þetta hafi komið fram á vinnufundi stjórnar RÚV hinn 22. janúar. Var þar útvarpsstjóra og stjórnarformanni falið að funda um fjármál Ríkisútvarpsins með forsætisráðherra. Stundin rifjar upp að forystumenn í Framsóknarflokknum hafa ýmist fullyrt eða gefið í skyn í opinberri umræðu að lítill vilji sé til að hlúa að Ríkisútvarpinu meðan umfjöllun þess og efnistök eru flokknum ekki að skapi. Þess skal tekið fram að fjárlög til RÚV hafa þegar veri ákveðin í fjárlagafrumvarpi sem samþykkt var í desember en stofnunin lagar sig nú að breyttum veruleika vegna skertra fjárframlaga. Illugi segir ekki vera neinn ágreining innan ríkisstjórnarinnar um málið. „Við settum af stað, núna fyrir nokkrum vikum síðan, vinnuhóp sem í eru embættismenn frá fjármálaráðuneytinu og mínu ráðuneyti og forsætisráðuneytinu þar sem við vildum glöggva okkur á rekstrartölunum, þeirri stöðu sem er komin upp. Við þurfum líka að skoða betur hvernig sú staða sem uppi er hefur myndast. Við höfum verið að kalla eftir þessum gögnum og eins og þú manst þá var sett skilyrðing í fjárlögunum varðandi framlag upp á 180 milljónir eða svo að menn sæju til lands með reksturinn. Það er sú vinna sem er í gangi núna,“ segir Illugi. „Ég get staðfest við þig að við höfum fengið mjög skýr skilaboð, bæði beint og óbeint, og viðvaranir um að RÚV verði að fara að hegða sér betur gagnvart ríkisstjórninni ef koma eigi til móts við okkur fjárhagslega,“ segir einn af viðmælendum Stundarinnar. „Þú sérð hvernig þau tala á opinberum vettvangi og þá geturðu rétt ímyndað þér hvað þau leyfa sér að segja fyrir luktum dyrum. Illugi segir aðalatriðið vera að ekki sé uppi ágreiningur milli ríkisstjórnarflokkanna um fjárveitingar til RÚV. „Hitt er alveg augljóst að, og ég hef margsagt, að það kemur aldrei til greina að ræða í sömu andránni skoðanir manna á fréttastofunni og síðan fjárveitingar til þessarar stofnunar. Þingmenn eiga og geta verið frjálsir af því að hafa sína skoðun á fréttastofunni. Það er bara eðlilegur hluti af opnu og lýðræðislegu samfélagi. En að menn séu að tengja það við fjárveitingar held ég að gangi ekki.“
Mest lesið Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Innlent Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Innlent Á spítala eftir misheppnaða aftöku Erlent Lét ákærða vita af andlátinu: „Hann var í miklu uppnámi“ Innlent Valgerður réttir fram sáttahönd Innlent Tilkynnt um ölvaðan flugmann Innlent Flutningabíll valt á Þverárfjallsvegi sem er lokaður Innlent Fleiri fréttir Neituðu sök við þingfestingu Straumsvíkurmálsins „Ef ég get þetta þá geta allir þetta“ „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Sniðganga geti verið túlkuð sem yfirlýsing ríkisstjórnarinnar Fjórir í gæsluvarðhald eftir hraðsendingu frá Þýskalandi Ekkert svigrúm í tengslum við kjarasamninga og tvísýnt með framhaldið Lét ákærða vita af andlátinu: „Hann var í miklu uppnámi“ „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Flutningabíll valt á Þverárfjallsvegi sem er lokaður Lægðin grynnist í dag en von á annarri Bíl ekið á ljósastaur Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði ESA geti ekki beðið endalaust Valgerður réttir fram sáttahönd Vill að Daði vísi til þess sem hún á að hafa sagt Tilkynnt um ölvaðan flugmann Brunavörnum hafi verið verulega áfátt Konan sem lögreglan lýsti eftir er fundin Nú er hægt að taka Strætó alla leið að flugstöðinni Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Gera alvarlegar athugasemdir við málflutning Daða Skoðar uppfærslu í 36 sæta rafflugvél Neysla geðrofs-, tauga- og ofnæmislyfja stóraukist Dæmdur fyrir manndráp af gáleysi við Vík Innan við helmingur karla vill refsingar fyrir vændiskaup Árásin rannsökuð sem tilraun til manndráps Bein útsending: Hvernig birtast menntarannsóknir í opinberri umræðu? Sjá meira