Lýsir eftir innbrotsþjófi sem „gleymdi kúbeini og nælonsokki“ Atli Ísleifsson skrifar 17. febrúar 2015 15:40 Síðast var brotist inn á Nýbýlavegi 8 í nótt en myndbandið er frá 8. febrúar síðastliðinn. „
Maðurinn gleymdi þarna hlutum og mér dettur engin önnur leið í hug til að hafa uppi á honum svo að við getum skilað þeim,“ segir Sverrir Einar Eiríksson, umsjónarmaður byggingarinnar á Nýbýlavegi 8, sem hefur birt myndband af innbrotsþjófi úr öryggismyndavél á Facebook-síðu sinni. Sverrir Einar segir að búið sé að fara inn í fjölmargar verslanir og skrifstofur þarna síðustu mánuði. „Þetta virðist alltaf vera sami maðurinn. Nú náðum við honum á öryggismyndavél og svo virðist sem hann hafi gleymt kúbeini, nælonsokki og fleiru og við myndum gjarnan vilja koma þeim munum til hans.“ Sverrir Einar segir Serrano, Nan, Domusnova fasteignasala, blómabúð, Herbalife og fleiri fyrirtæki öll vera með verslanir eða skrifstofur á Nýbýlavegi 8. „Það er búið að fara inn í meira og minna öll þessi fyrirtæki. Hann hefur ekki verið að stela miklu en skemmdirnar eru alltaf miklar. Auk þess er alltaf leiðinlegt að koma að brotnum hurðum og svo framvegis.“ Hann segir að maðurinn hafi ekki haft mikið upp úr krafsinu í öll þessi skipti, en geri ráð fyrir að sá hafi brotist inn tíu til fimmtán sinnum á síðustu mánuðum. „Sverrir segir að samband hafi verið haft við lögreglu og að hún sé að reyna sitt besta til að leysa málið. „Þeir hafa þó enn ekki haft uppi á þessum aðila. Ég hugsa að þetta sé bara einn aðili.“ Myndbandið á Facebook-síðu Sverris Einars er frá 8. febrúar, en hann segir að síðast hafi verið brotist inn í húsið í nótt. Post by Sverrir Einar Eiríksson.
Mest lesið Nágranninn bjargaði Sævari sem missti næstum af almyrkvanum Innlent Það er jóker í spilinu Innlent Sigurgeir þurfti að hætta og var fluttur á sjúkrahús Innlent Brotist inn í Barnaloppuna Innlent Ísraelskir ferðamenn með ógnandi tilburði á palestínsku kaffihúsi Innlent „Bara, hvað dettur gömlu fólki í hug að gera?“ Innlent Fjöldi ökumanna á von á kæru Innlent Kristján Kristjánsson kveður Sprengisand Innlent Herkvaðning í Rússlandi vofir yfir Úkraínumönnum Erlent Páll Magnússon tekur við af Kristjáni Innlent Fleiri fréttir Forystumenn láti stór orð falla sér og sínum málstað til framdráttar Þyrlan sótti slasaðan göngumann við Glym Spánverjum fjölgar þvert á þróunina Sigurgeir þurfti að hætta og var fluttur á sjúkrahús Það er jóker í spilinu Skoða hvort gerviaðgangar og grunsamlegar síður séu erlend öfl í dulbúningi Páll Magnússon tekur við af Kristjáni Nágranninn bjargaði Sævari sem missti næstum af almyrkvanum Brotist inn í Barnaloppuna Kristján Kristjánsson kveður Sprengisand Íbúi í Kænugarði um stríðið og áhyggjur lögreglu af erlendum áhrifum á ESB-kosningu Fortíð og framtíð Íslands í Evrópu á Sprengisandi Mundaði stólinn og lamdi gesti „Bara, hvað dettur gömlu fólki í hug að gera?“ Þrengja Reykjaveg og loka tveimur götum við Laugarnesskóla Fjöldi ökumanna á von á kæru Ísraelskir ferðamenn með ógnandi tilburði á palestínsku kaffihúsi Þyrlan sækir slasaðan mann á Hestfjall Miðflokksmenn helmingi líklegri til að segja já en Sjálfstæðismenn Ósátt með fyrirhugaða sameiningu lögregluembætta Grindvískir krakkar sneru aftur á völlinn Lögnin komin á land en verður látin kyrr liggja „Önnur ríki með sérþarfir hafa miklu meira vægi í þeirri umræðu“ Bananastappa og hlaupbangsar á matseðlinum í tilraun tvö Velti allt á því hverjir mæti á kjörstað Allt hnífjafnt í nýjum þjóðarpúlsi og reynt aftur við Lagarfljót Hringvegurinn lokaður í gegnum Borgarnes annað kvöld Löng röð í öryggisleitina þriðja daginn í röð „Þessa vanlíðan þekkir enginn nema að hafa upplifað hana“ Leituðu manns sem átti að vera vopnaður rafbyssu Sjá meira