Sló og tróð snjó í andlit tólf ára drengs á götu úti í Sandgerði Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 18. febrúar 2015 15:50 Myndin tengist fréttinni ekki beint. Vísir/Getty
Karlmaður á fimmtugsaldri hefur verið dæmdur í tveggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir árás á tólf ára dreng á götu úti í Sandgerði. Maðurinn dró drenginn eftir götunni, henti upp að grindverki, veitti honum högg í andlit og tróð sömuleiðis í andlit hans snjó. Maðurinn áfrýjaði dómi í héraði til Hæstaréttar sem staðfesti dóm Héraðsdóms Reykjaness. Drengurinn var að leik á götu úti ásamt þremur vinum sínum að kvöldi 28. desember 2012 þegar maðurinn kom að þeim. Bað hann drengina um að hjálpa sér við leit að syni sínum en drengirnir neituðu því. Brást maðurinn illa við neituninni og greip í einn drengjanna, dró hann eftir gangstíg og henti upp að grindverki. Þá tók hann snjó, nuddaði í andlit hans og kýldi hann stuttu síðar í vinstri kinn. Brotaþoli náði að klæða sig úr úlpunni og hlaupa af vettvangi ásamt vini sínum. Hinir tveir höfðu þegar flúið af vettvangi. Hljóp hann heim til móður sinnar sem hafði samband við lögreglu. Var farið með drenginn á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja til að fá áverkavottorð.Reyndi að bíta og hrækja á lögreglu Í skýrslu lögreglu kemur fram að hafist hafi leit að manninum en hann ekki verið heima þegar bar að garði. Lögreglumaður hafi hins vegar séð son ákærða sem hann kannaðist við og sá hafi fylgt lögreglumanninum heim til þeirra. Þá hafi maðurinn verið heima og mætt þeim mjög ógnandi. „Þegar hann hafi sett aðra höndina upp og gert sig líklegan til að ráðast að þeim hafi (lögreglumaðurinn) ákveðið að handtaka hann.“ Í skýrslunni kemur fram að maðurinn hafi bæði reynt að bíta lögreglumennina og hrækja á þá. Skýrslutöku yfir honum hafi verið frestað sökum ölvunar. Lögreglumaðurinn hringdi í son ákærða til að athuga hvort hann sæi úlpu drengsins á heimili þeirra. Þar reyndist hún vera og var henni ekið af lögreglu á heimili drengsins sem fyrir árásinni varð.Frá Sandgerði.VísirSagðist vera að grínast Ákærði bar því við að hann hefði orðið var við að drengirnir væru að kasta snjóboltum í hús og rætt við þá af þeim sökum. Hann hefði beðið drengina um aðstoð og gengið af stað með einum þeirra í átt að skólanum þar sem hann taldi son sinn geta verið. Drengurinn hefði ekki mótmælt því en mögulega verið hræddur þar sem hann hefði skammað þá fyrir snjóboltakast. Maðurinn neitaði að hafa kýlt drenginn og valdið honum áverkum á kinn en viðurkenndi að hafa sett snjó í andlit hans. Um grín hefði verið að ræða. Hann sagðist vel muna eftir atburðum dagsins þó svo vel geti verið að hann hafi verið búinn að fá sér einn bjór um klukkan sex eða rúmlega þremur tímum áður en leiðir hans og drengjanna lágu saman. Hann hafi svo fengið sér þrjá drykki eftir að hann kom heim eftir að hafa hitt drengina en ekki verið drukkinn.Drengirnir samstíga Vitnisburður drengjanna fyrir dómi um atburði kvöldsins var efnislega á sama veg. Auk drengsins sagði vinurinn sem eftir varð að maðurinn hefði kýlt drenginn í andlitið. Aðspurður um áverkana taldi hann þá ekki heldur geta stafað af hörku þegar hann tróð snjó í andlit drengsins. Líklega hefði drengurinn meitt sig þegar hann slapp úr úlpunni. Allir drengirnir þrír báru því við að maðurinn hefði verið ölvaður þegar hann réðst á drenginn. Drengurinn sagði bæði í frumskýrslu og við skýrslutöku nokkrum dögum síðar að maðurinn hefði kýlt sig með krepptum hnefa vinstra megin í andlitið. Í báðum tilfellum sagði hann manninn hafa sagt „Ég lemja“ áður en hann reiddi til höggs. Hann mundi þó við aðalmeðferð ekki hvort hnefinn hefði verið krepptur en höggið hefði verið fast og hann svimað „bara eitthvað smá“. Þótti dómnum hafið yfir skynsamlegan vafa að maðurinn hefði veitt drengnum högg þótt ósannað væri að hnefinn hefði verið krepptur.Maðurinn sagði alla í Sandgerði þekkja þessa stráka. Um væri að ræða hóp sem héldi sig saman og gerði „alls konar hluti“.Vísir/StefánDrengurinn hræddur eftir árásina „Telja verður að með atlögu sinni að brotaþola hafi ákærði sýnt af sér yfirgang og ruddalega framkomu gagnvart brotaþola sem aðeins var barn að aldri,“ segir í dómnum. Þótti sú háttsemi sem maðurinn var ákærður fyrir sönnuð að frátöldu því hvort um krepptan hnefa hefði verið að ræða eða ekki. Móðir drengsins sagði við aðalmeðferðina að sonur hennar hefði verið kvíðinn og hræddan eftir árásina, en hann vilji ekki viðurkenna neitt slíkt sjálfur. Hún taki hins vegar eftir „alveg rosalegum breytingum á honum gagnvart kvíða og hræðslu“. Það hafi verið erfitt að fá drenginn til að fara í skólann og árásin hafi haft slæm áhrif. Þá hafi sonur mannsins ítrekað spurt hann út í árásina sem sonur hennar hafi tekið mjög illa. Annar strákur hafi ekki látið hann í friði. Árásin hafi haft rosalega leiðinleg áhrif á drenginn í skólanum og gagnvart hans skólagöngu.200 þúsund í bætur Héraðsdómur dæmdi manninn í apríl í fyrra í tveggja mánaða skilorðsbundið fangelsi til tveggja ára. Þá voru drengnum dæmdar 200 þúsund krónur í miskabætur en farið hafði verið fram á 800 þúsund krónu. Hæstiréttur staðfesti svo dóm í héraði á dögunum.Dóm Hæstaréttar í heild sinni má lesa hér.
Mest lesið Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Innlent Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Innlent Hafa fundið nýtt jarðhitasvæði á Hellisheiði Innlent Ölduselsskóla skipt út fyrir Seljaskóla Innlent Samið við Icelandair um flug til Ísafjarðar Innlent Kallar aðgerðirnar leiktjöld og varar við verðstýringu Innlent Stjórnvöld í Frakklandi vilja fá ríkisborgara lausan Erlent Að minnsta kosti fimmtán létust í árásum Rússa á Úkraínu Erlent CNN og ABC fjalla um Eyjaflugið Innlent Bækurnar of leiðinlegar og forritaði stærðfræðitölvuleik Innlent Fleiri fréttir Svavar Sigmundsson er látinn Líkamsárás, húsbrot og eignaspjöll Samið við Icelandair um flug til Ísafjarðar Hafa fundið nýtt jarðhitasvæði á Hellisheiði Fagnar fjölgun skráninga í Þjóðkirkjuna Ölduselsskóla skipt út fyrir Seljaskóla Kallar aðgerðirnar leiktjöld og varar við verðstýringu CNN og ABC fjalla um Eyjaflugið Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Fleiri andvígir aðild nú en í fyrra Ingimar er bæjarstjóraefni D-listans í í Hveragerði Bækurnar of leiðinlegar og forritaði stærðfræðitölvuleik „Vélin að bila og hún stingur upp á að við skiptum um áklæði“ Lögðu hald á um tug lítra fíkniefna Æfir kennarar og varað við verðstýringu Mótorinn í Herjólfi þarf til útlanda Margir sátu hjá þegar launin voru hækkuð Halla Bergþóra nýr ríkislögreglustjóri „Nú hef ég auðvitað ekkert á móti fólki frá Nígeríu“ Dómur yfir Helga Bjarti: Fara þyrfti varlega í að draga ályktanir út frá framburði drengsins Rannsóknin á lokametrunum Fjórir landsréttardómarar vilja taka skrefið í Hæstarétt Forsetar Íslands og Slóveníu ræða leiðtogahlutverk í breyttum heimi Segir forsætisráðuneytið misnotað í þágu sveitarstjórnarkosninga Sjálfsmark með „sjúklega samfylkingarlegu“ kjötvörubanni Framkoman laði ekki lækna að Landspítalanum Ók á móti umferð í Hvalfjarðargöng með lögregluna á hælunum Helgi Bjartur dæmdur í tólf mánaða fangelsi Eimskip líta smyglið mjög alvarlegum augum Sjá meira