Afbrigðileg kúariða í Noregi Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar 30. janúar 2015 15:01 vísir/stefán
Nýlega greindist kýr í Noregi með afbrigðilega gerð kúariðu. Þessi gerð er afar sjaldgæf en er ekki talin smitandi, hvorki milli dýra né manna. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Matvælastofnun. Afbrigðileg gerð kúariðu hefur greinst í mörgum löndum, meðal annars eitt tilfelli í Svíþjóð árið 2006 og nú í Noregi. Þessi gerð er þó mjög sjaldgæf, aðeins um eitt tilfelli greinist í hverri milljón sýna. Talið er að þessi gerð kúariðu sé vegna breytinga sem gerast af sjálfu sér á próteinum í heilanum í gömlum gripum. Kýrin sem um ræðir í Noregi var fimmtán ára, sem er nokkuð hár aldur. Í Evrópu og víða annars staðar í heiminum eru umfangsmiklar reglubundnar sýnatökur í sláturhúsum vegna kúariðu. Tilfellið í Noregi fannst við rannsókn á sýnum sem tekin voru samkvæmt lögbundinni eftirlitsáætlun. Ísland er í hópi landa sem Alþjóða dýraheilbrigðisstofnunin hefur viðurkennt sem kúariðulaust land. Viðurkenningin var veitt eftir umfangsmikið mat á líkum á að kúariðan sé til staðar í landinu. Í tilkynningunni frá MAST segir að matið byggi á ýmsum sögulegum gögnum og niðurstöðum úr eftirliti. Það sem vegi þyngst í mati á Íslandi hvað þetta varðar séu þær ströngu reglur sem gildi um innflutning, meðal annars að innflutningur á lifandi nautgripum sé óheimill og að ávallt hafi verið bannað að nota kjöt og beinamjöl sem fóður fyrir nautgripi. „Liður í því er að bændur tilkynni dýralæknum um nautgripi með einkenni frá taugakerfinu, t.d. óstöðugleika, krampa eða lömun, og jafnframt um gripi sem drepast eða þarf að lóga vegna slysfara eða veikinda af ókunnum ástæðum. Nauðsynlegt er fyrir Ísland að geta lagt fram niðurstöður rannsókna á sýnum úr slíkum gripum við endurmat OIE á stöðu landsins hvað kúariðu varðar,“ segir orðrétt í tilkynningunni.
Mest lesið Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Innlent Kristrún tilbúin í aðgerðir Innlent Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Innlent Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun Innlent „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Innlent „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Uppsagnir hjá Klettabæ Innlent Fleiri fréttir Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Ekki búið að finna nýjan lögreglustjóra hátt í hálfu ári síðar Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Árekstur við Hamraborg Engin aðstoð við próftöku og litaðar númeraplötur Uppsagnir hjá Klettabæ Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Kristrún tilbúin í aðgerðir Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Ákærður fyrir að nauðga sofandi og ölvaðri dóttur sinni Væntingar um útspil tengt gjaldahækkunum Neituðu sök við þingfestingu Straumsvíkurmálsins Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Sniðganga geti verið túlkuð sem yfirlýsing ríkisstjórnarinnar Fjórir í gæsluvarðhald eftir hraðsendingu frá Þýskalandi Ekkert svigrúm í tengslum við kjarasamninga og tvísýnt með framhaldið Lét ákærða vita af andlátinu: „Hann var í miklu uppnámi“ „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Flutningabíll valt á Þverárfjallsvegi sem er lokaður Lægðin grynnist í dag en von á annarri Bíl ekið á ljósastaur Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði Sjá meira