Mega styðjast við Facebook-samskipti í máli Skeljagrandabróðurs Birgir Olgeirsson skrifar 20. janúar 2015 12:26 Húsráðandi sagðist eiga tölvuna en Kristján hefði verið að nota hana. Tók lögreglan þá ákvörðun að skoða og mynda samskiptin sem þar komu fram sem voru á milli Kristjáns og brotaþola í málinu. Vísir/Getty
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu má leggja fram Facebook-samskipti Kristjáns Markúsar Sívarssonar sem sönnungargagn við réttarhöld yfir Kristjáni. Verjandi Kristjáns hafði kært úrskurð Héraðsdóms Reykjaness til Hæstaréttar en kröfu Kristjáns um að ákæruvaldinu verði synjað um framlagningu þessara rannsóknargagna var hafnað í héraði. Hæstiréttur sagði kæruna ekki fullnægja skilyrðum lagaákvæðis og því var henni vísað frá. Kristján er ákærður fyrir brot gegn ákvæðum umferðarlaga, vopnalaga og almennra hegningarlaga. Honum er meðal annars gefið að sök að hafa veist að konu á bílastæði og slegið hana ítrekað hnefahögg í andlit, höfuðið og á hendur og úlnlið. Facebook-samskiptin sem á að leggja fram sem sönnunargagn eru á milli hans og brotaþolans en lögreglan komst yfir þau þegar Kristján var handtekinn 27. nóvember árið 2014. Í úrskurði Héraðsdóms Reykjaness kemur fram að við handtöku ákærða og húsleit mátti sjá borðtölvu sem hafði verið tengd við sjónvarp með opinni Facebook vefsíðu þar sem notandanafn Kristjáns kom fram. Húsráðandi sagðist eiga tölvuna en Kristján hefði verið að nota hana. Tók lögreglan þá ákvörðun að skoða og mynda samskiptin sem þar komu fram sem voru á milli Kristjáns og brotaþola í málinu. Var það mat Héraðsdóms Reykjaness að þessi gögn geti ekki talist tilgangslaus við sönnunarfærslu í málinu og því var kröfu ákærða hafnað.Sjá dóm Hæstaréttar hér.
Mest lesið Tvö innbrot á einni viku: Þýfi upp á aðra milljón Innlent Andrew handtekinn á heimili sínu Erlent „Ekki af hinu góða og líklegra til að valda skaða“ Innlent „Hann reyndi að lokka þær inn í bílinn“ Innlent Forstjóri Deloitte sýknaður af ákæru fyrir kynferðisbrot Innlent Guðmundi Inga hafnað Innlent Það sem farþegarnir sjá ekki í innanlandsfluginu Innlent „Mitt mat að þetta sé ekki peninganna virði“ Innlent „Besti vinur“ Epsteins ætlaði að leysa frá skjóðunni 2016 Erlent Karl III: Réttlætið verður að hafa sinn gang Erlent Fleiri fréttir Máttu reka leiðsögumann sem ók vinnubíl próflaus Jötunheimar á Selfossi verður tólf deilda leikskóli „Mitt mat að þetta sé ekki peninganna virði“ Lögregla fylgdist með netsvikum í rauntíma Sérsveitin kölluð út en engum skotum reyndist hleypt af Söguleg handtaka og umdeildir skannar Brotist inn í leikskóla í Reykjavík Allt tiltækt slökkvilið slökkti sinueld Bráðabirgðaákvæði um kosningar í Grindavík samþykkt á þingi Hollenski skákmeistarinn og Íslandsvinurinn Jan Timman er látinn Braut ítrekað á stjúpdóttur og bar fyrir sig kynferðislega svefnröskun Rannsóknarprófessor og stofnandi Bláa lónsins hlutu Ásuverðlaunin Níu ára fangelsi fyrir að nauðga fatlaðri konu ítrekað Skipulagsstofnun lögð niður Finnst Samfylkingin hafa komið ómaklega fram við sig Tíu ára fangelsi fyrir að verða manni að bana í Kiðjabergi Tvö innbrot á einni viku: Þýfi upp á aðra milljón Rósa Björk býður sig fram í formann VG Framkvæmdir við Fontana trufluðu hitaveitu á Laugarvatni Hætta að rukka foreldra fyrir leikskólapláss í Ölfusi Árekstur á Sprengisandi Vistmenn á Hjalteyri krefjast bóta sem þeim var lofað Það sem farþegarnir sjá ekki í innanlandsfluginu Guðmundi Inga hafnað „Ekki af hinu góða og líklegra til að valda skaða“ Forstjóri Deloitte sýknaður af ákæru fyrir kynferðisbrot Ánægjulegt að þriðji hagfræðingurinn sé fundinn „Hann reyndi að lokka þær inn í bílinn“ Fallni prinsinn handtekinn og undirboð á fasteignamarkaði aukast Heitavatnslög gaf sig í Varmahlíðarskóla Sjá meira