D-deildarlið Cambridge United fær annan leik á Old Trafford Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 23. janúar 2015 21:51 Vísir/Getty
Manchester United tókst ekki að vinna Cambridge United í fyrsta leiknum í fjórðu umferð ensku bikarkeppninnar í kvöld. Liðin gerðu markalaust jafntefli og því verður annar leikur á Old Trafford eftir tíu daga. Manchester United var mun meira með boltann í leiknum og fékk fleiri sín færi en tókst ekki að finna leiðir framhjá Chris Dunn í marki Cambridge United. Skipulag Cambridge United liðsins gekk upp og liðið náði að halda hreinu á móti stórstjörnum Manchester United. Wayne Rooney var þó ekki með United-liðinu í kvöld. Cambridge United er í 12. sæti í ensku d-deildinni sem þýðir að liðið er 76 sætum neðar en Manchester United. Manchester United skoraði ekki fyrr en eftir 64 mínútur á móti C-deildarliði Yeovil Town í 3. umferðinni en vann þann leik 2-0. Að þessu sinni datt markið ekki inn en United fær annan leik á heimavelli eftir tíu daga. Þetta eru ein bestu úrslitin í sögu Cambridge United og munu skila liðinu miklum peningum í kassann nú þegar seinni leikurinn fer fram á Old Trafford. Cambridge átti fínan fyrri hálfleik og besta færi fyrri hálfleiksins en líkt og oft í síðustu leikjum var Manchester United ekki að búa mikið til í fyrri hálfleik. Manchester United skapaði mun meira í seinni hálfleiknum. Chris Dunn varði vel frá Radamel Falcao á 62. mínútu og Robin van Persie skaut framhjá á 71. mínútu nýkominn inná sem varamaður. Ryan Donaldson var alltaf líklegur til að skapa hættu með auka- og hornspyrnum sínum og því var alltaf smá von á marki frá Cambridge. Manchester United var miklu meira með boltann en markið kom ekki. Angel Di Maria var nálægt því að skora í uppbótartíma eftir pressu frá United-liðinu en Chris Dunn varði vel.Vísir/Getty
Enski boltinn Mest lesið Bað dómarann um hjálp út af megnri marijúanalykt Sport Myndband ekki fyrir viðkvæma: „Horfi niður og sé höndina mína í einhverri steik“ Íslenski boltinn Enn kynt upp í rígnum: Ekroth keyrði utan í Aron Íslenski boltinn Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Enski boltinn Ótrúleg björgun Völsungs og Grindavík fallin Íslenski boltinn City marði Coventry Enski boltinn Keflavík - Valur | Hörð barátta um efri hlutann Íslenski boltinn Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Enski boltinn Norðmaðurinn fjórði en reif kjaft: „Hvaða lúsera er ég að keppa við?“ Sport Rúst hjá Rosenborg Fótbolti Fleiri fréttir Hull hélt hreinu og ekkert mark komið hjá Villa Arbeloa í brasi City marði Coventry Steindautt er Tottenham náði í fyrsta stigið Ramsey bjargaði stigi Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Yfirgefur Liverpool fyrir Sádi-Arabíu Segist aldrei hafa efast um Gakpo Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Carrick himinlifandi eftir kaup sumarsins Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu „Gangandi martröð“ Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Skaðar orðspor dómara: Lék sér að því að flauta ekki upp á grín Tielemans tók vítið með Bruno Martinelli seldur til Sádi-Arabíu Bestu kaupin í sögu enska boltans Barcola í hóp á morgun Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Liverpool fékk nýjan markvörð Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Lækkaði launin til að upplifa drauminn Fengu þrjá á lokadegi Tókst ekki að ræna Belganum Sjá meira