Ýtt á eftir persónulegri þjónustu við fatlaða Heimir Már Pétursson skrifar 28. janúar 2015 12:21 Björt Ólafsdóttir, þingmaður Bjartrar framtíðar, hvetur til þess að lög verði sett um persónulega þjónustu við fatlaða. Ríkisstjórnin framlengdi tilraunaverkefni í stað þess að setja lög. vísir/anton brink
Þingmaður Bjartrar framtíðar gagnrýnir að ekkert bóli á frumvarpi frá ríkisstjórninni um notendastýrða persónulegra aðstoð við fatlaða. Þetta sé þjónusta sem bæti mjög lífsgæði fatlaðra en þigmaðurinn hefur umræðu um þetta mál á Alþingi í dag. Björt Ólafsdóttir, þingmaður Bjartrar framtíðar, er upphafsmaður sérstakrar umræðu á Alþingi í dag þar sem Eygló Harðardóttir félagsmálaráðherra verður til svara, um notendastýrða persónulega þjónustu við fatlaða. En undanfarin rúm tvö ár hefur staðið yfir tilraunaverkefni með þessa þjónustu. Í stað þess að leggja fram frumvarp um framtíðarskipan þessarar þjónustu fyrir áramót ákvað ríkisstjórnin hins vegar að framlengja tilraunaverkefnið til tveggja ára, eða út kjörtímabil hennar. „Og ég er í raun að spyrja ráðherrann hver hennar afstaða er til þessarar hugmyndafræði um sjálfstætt líf og þessarar notendastýrðu persónulegu aðstoðar. Það er þannig að við á þinginu erum ekki alveg að standa okkur,“ segir Björt. En eins og áður sagði stóð til að frumvarp yrði lagt fram um þessa þjónustu fyrir áramót. Þess vegna telji Björt framtíð nauðsynlegt að fá svör frá félagsmálaráðherra um hvers vegna þetta hafi dregist og hvernig hún sjái framtíðina fyrir sér í þessum efnum. Ríkið setji fram kröfurnar en sveitarfélögin standi undir kostnaðinum og veiti þjónustuna. „Þetta kostar auðvitað eitthvað. Startkostnaðurinn er einhver. En reyndar sýna rannsóknir að til langs tíma litið er þessi þjónusta ódýrari ef eitthvað er en önnur hefðbundin þjónusta sem við eigum að venjast,“ segir Björt. Því þurfi að ræða við sveitarfélögin um fjármögnunina. Tilraunaverkefnið nær ekki til allra fatlaðra. Björt Ólafsdóttir segir þörfina mikla en þessi þjónusta tryggi að fatlaðir ráði sjálfir hvernig þjónustu við þá er háttað. „Þetta er öðruvísi en við höfum átt að venjast um að það sé félagsleg aðstoð á einhverjum ákveðnum tímum. Fólk komist í sturtu milli klukkan níu og tíu á morgnana eða fyrr ákveðna daga. Það er auðvitað ekki mikið val og ekki neitt val sem felst í því. Þannig að þetta færir notendunum miklu meira val og miklu meira sjálfstæði. Það er mjög mikilvægt auðvitað í lífi allra og við eigum að stuðla að því að allir fái þau sjálfsögðu mannréttindi,“ segir Björt Ólafsdóttir.
Mest lesið Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Innlent Kristrún tilbúin í aðgerðir Innlent Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Innlent Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun Innlent „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Innlent „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Innlent Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Fleiri fréttir Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Ekki búið að finna nýjan lögreglustjóra hátt í hálfu ári síðar Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Árekstur við Hamraborg Engin aðstoð við próftöku og litaðar númeraplötur Uppsagnir hjá Klettabæ Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Kristrún tilbúin í aðgerðir Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Ákærður fyrir að nauðga sofandi og ölvaðri dóttur sinni Væntingar um útspil tengt gjaldahækkunum Neituðu sök við þingfestingu Straumsvíkurmálsins Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Sniðganga geti verið túlkuð sem yfirlýsing ríkisstjórnarinnar Fjórir í gæsluvarðhald eftir hraðsendingu frá Þýskalandi Ekkert svigrúm í tengslum við kjarasamninga og tvísýnt með framhaldið Lét ákærða vita af andlátinu: „Hann var í miklu uppnámi“ „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Flutningabíll valt á Þverárfjallsvegi sem er lokaður Lægðin grynnist í dag en von á annarri Bíl ekið á ljósastaur Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði Sjá meira