Félagsmenn VR vilja beina launahækkun Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 29. janúar 2015 13:58 Upplýsinga frá VR.
Félagsmenn VR vilja í auknum mæli leggja áherslu á beinar launahækkanir í kjarasamningum og eru ekki reiðubúnir til að taka þátt í þjóðarsátt. Þetta er meðal þess sem lesa má úr niðurstöðum könnunar meðal félagsmanna sem kynnt var á fundi trúnaðarráðs í gærkvöldi. VR hefur í kjölfarið sent frá sér tilkynningu til fjölmiðla. Á fundinum var rætt um stöðuna í kjaramálum og næstu skref. Formaður félagsins fékk umboð til að halda vinnu áfram við undirbúning launaliðar kröfugerðarinnar.Millitekjuhópurinn er stærstur Kröfugerð VR fyrir næstu kjarasamninga liggur að mestu fyrir – að launaliðnum undanskildum - en hún byggir á þeirri kröfugerð sem lögð var fram fyrir samningana árið 2013. Launaliðurinn var hins vegar til umræðu á fundi trúnaðrráðs í gærkvöldi, 28. janúar. Á fundinum fór formaður VR, Ólafía B. Rafnsdóttir, yfir stöðuna og fjallaði um næstu skref. Ólafía segir ljóst að félagsmenn VR, eins og aðrir starfsmenn á almennum vinnumarkaði, krefjist sanngirnis og leiðréttinga í ljósi þróunarinnar síðustu misseri. Blönduð leið krónutölu- og prósentuhækkunar hentar félaginu vel, er haft eftir Ólöfu í tilkynningunnu. Innan VR er millitekjuhópurinn stærstur, eins og sjá má á myndinni hér að neðan. Þessir félagsmenn hafi undanfarin ár tekið á sig mestu byrðarnar og mikilvægt að leggja áherslu á að tryggja kjör þeirra ásamt því að hækka lægstu launin.Úr glærum VR.Fundurinn veitti formanni VR umboð til að halda áfram vinnu við launaliðinn og er fyrirhugað að trúnaðarráð fundi á nýjan leik innan skamms. Beinar launahækkanir og kaupmáttur Meðal þess sem rætt var á fundinum í gærkvöldi var ný könnun meðal félagsmanna um áherslur í komandi samningum. Niðurstöðurnar benda til þess að tæplega helmingur félagsmanna, eða 48%, vilji leggja áherslu á beina launahækkun í kjarasamningum nú sem er mun hærra hlutfall en í könnunum síðustu ára. Árið 2010 vildi fjórðungur leggja áherslu á beinar launahækkanir og rúmur þriðjungur var þeirrar skoðunar árið 2013. Atvinnuöryggi var ofar í huga félagsmanna á þessum árum, sem endurspeglar stöðuna á vinnumarkaði á þeim tíma. Tæplega helmingur svarenda í könnuninni í ár, eða 44%, merkti við þann valkost að tryggja kaupmátt þegar spurt var um áherslur og er það því sem næst óbreytt frá könnunum síðustu ára. Aðrir þættir, s.s. áhersla á aukin réttindi í samningum og starfsumhverfi, fá minna fylgi.
Mest lesið Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Innlent Kristrún tilbúin í aðgerðir Innlent Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Innlent Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun Innlent „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Innlent „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Innlent Fleiri fréttir Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Ekki búið að finna nýjan lögreglustjóra hátt í hálfu ári síðar Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Árekstur við Hamraborg Engin aðstoð við próftöku og litaðar númeraplötur Uppsagnir hjá Klettabæ Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Kristrún tilbúin í aðgerðir Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Ákærður fyrir að nauðga sofandi og ölvaðri dóttur sinni Væntingar um útspil tengt gjaldahækkunum Neituðu sök við þingfestingu Straumsvíkurmálsins Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Sniðganga geti verið túlkuð sem yfirlýsing ríkisstjórnarinnar Fjórir í gæsluvarðhald eftir hraðsendingu frá Þýskalandi Ekkert svigrúm í tengslum við kjarasamninga og tvísýnt með framhaldið Lét ákærða vita af andlátinu: „Hann var í miklu uppnámi“ „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Flutningabíll valt á Þverárfjallsvegi sem er lokaður Lægðin grynnist í dag en von á annarri Bíl ekið á ljósastaur Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði Sjá meira