300 nýjar íbúðir á Kirkjusandi Atli Ísleifsson skrifar 29. janúar 2015 15:05 Frumhugmynd sem á eftir að taka breytingum. Mynd/Reykjvíkurborg
Samningur milli Íslandsbanka og Reykjavíkurborgar um uppbyggingu, skipulag og skiptingu Kirkjusandsreits var undirritaður fyrr í dag. Um er að ræða heildarskipulag fyrir lóðirnar Kirkjusand 2, þar sem höfuðstöðvar Íslandsbanka eru í dag og Borgartún 41, sem oft er kölluð Strætólóð. Í tilkynningu frá Reykjavíkurborg segir að vinna við nýtt deiliskipulag fyrir reitinn sé þegar hafin og verði það kynnt fyrir hagsmunaaðilum og almenningi á næstu vikum og mánuðum, samhliða formlegu auglýsingarferli. „Á Kirkjusandsreit er fyrirhuguð blönduð miðborgarbyggð. Reitnum verður skipt upp í nokkrar lóðir og er byggingarmagn í heild áætlað um 75 – 85 þúsund fermetrar. Um helmingur byggingarmagns verður atvinnuhúsnæði, skrifstofur og þjónusta, en gert er ráð fyrir um 300 nýjum íbúðum á svæðinu. Reykjavíkurborg mun ráðstafa þremur íbúðarhúsalóðum. Allar núverandi byggingar á reitnum, fyrir utan aðalskrifstofuhúsnæði Íslandsbanka, munu víkja til að rýma fyrir uppbyggingu. Markmið með deiliskipulagi svæðisins er gera mannvænt og fallegt umhverfi í samræmi við áherslur í Aðalskipulagi Reykjavíkur. Göturými verða hönnuð jafnt fyrir alla ferðamáta og lögð verður áhersla á fjölbreytt græn svæði, nærþjónustu og gæði byggðar. Gert er ráð fyrir almenningstorgi og listaverkum á svæðinu. Bílageymsla verður staðsett undir torginu og mun hún nýtast íbúum utan skrifstofutíma í bankanum. Íslandsbanki hyggst sameina alla höfuðstöðvastarfsemi sína á einum stað á Kirkjusandi. Til þess að það megi verða ætlar bankinn að byggja um 7.000 fermetra viðbyggingu við suðvesturenda núverandi skrifstofuhúsnæðis. Áætlað er að framkvæmdir við viðbyggingu hefjist í lok þessa árs og að þær taki um 2 ár.“Séð yfir hluta fyrirhugaðs byggingarsvæðis af svölum Íslandsbanka.Mynd/Reykjavíkurborg
Mest lesið Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Innlent Kristrún tilbúin í aðgerðir Innlent Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Innlent Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun Innlent „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Innlent „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Innlent Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Fleiri fréttir Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Ekki búið að finna nýjan lögreglustjóra hátt í hálfu ári síðar Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Árekstur við Hamraborg Engin aðstoð við próftöku og litaðar númeraplötur Uppsagnir hjá Klettabæ Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Kristrún tilbúin í aðgerðir Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Ákærður fyrir að nauðga sofandi og ölvaðri dóttur sinni Væntingar um útspil tengt gjaldahækkunum Neituðu sök við þingfestingu Straumsvíkurmálsins Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Sniðganga geti verið túlkuð sem yfirlýsing ríkisstjórnarinnar Fjórir í gæsluvarðhald eftir hraðsendingu frá Þýskalandi Ekkert svigrúm í tengslum við kjarasamninga og tvísýnt með framhaldið Lét ákærða vita af andlátinu: „Hann var í miklu uppnámi“ „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Flutningabíll valt á Þverárfjallsvegi sem er lokaður Lægðin grynnist í dag en von á annarri Bíl ekið á ljósastaur Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði Sjá meira