Lögreglan á Selfossi, Hvolsvelli og Höfn ekki lengur til Magnús Hlynur Hreiðarsson skrifar 1. janúar 2015 12:56 Kjartan Þorkelsson, lögreglustjóri nýja embættisins. Mynd/MHH
Embætti lögreglunnar í Árnessýslu og lögreglunnar á Hvolsvelli var lagt niður um miðnætti þegar Lögreglan á Suðurlandi varð til með sameiningu þessara tveggja lögregluliða, auk lögreglunnar á Höfn í Hornafirði, sem áður tilheyrði embætti lögreglustjórans á Eskifirði. „Stækkun og fækkun embætta á að leiða til styrkingar lögregluliða og þar með að auka skilvirkni í löggæslu. Íbúar hins nýja umdæmis munu í sjálfu sér ekki finna fyrir miklum breytingum í fyrstu en þó stækkar það svæði sem hefur aðgang að sólarhringsvakt lögreglu. Af hálfu embættisins verður lögð áhersla á að eiga góð samskipti við íbúa og sveitastjórnir í umdæminu um leið og þeim er öllum óskað velfarnaðar á nýju ári“, segir Kjartan Þorkelsson, lögreglustjóri nýja embættisins. Oddur Árnason verður yfirlögregluþjónn embættisins, Sveinn K Rúnarsson verður yfirlögregluþjónn almennrar deildar og Þorgrímur Óli Sigurðsson verður aðstoðaryfirlögregluþjónn rannsóknardeildar. Gunnar Örn Jónsson verður yfirmaður ákærusviðs, sem staðsett verður á Selfossi, og einnig staðgengill lögreglustjóra. Umdæmi lögreglunnar á Suðurlandi mun verða eitt það stærsta á landinu í ferkílómetrum eða rúmir 24.000 km2 en það mun ná frá Seljubótarnefi í Krísuvíkurbjargi í vestri að Hvalnesskriðum í austri og með vatnaskilum á Kili og inn að Nýadal á Sprengisandsleið í norðri. Íbúar í nýju umdæmi verða um 22 þúsund. Lögreglumenn í umdæminu verða 37 auk héraðslögreglumanna. 6 aðrir starfsmenn munu heyra undir skrifstofu lögreglustjóra og verða þeir staðsettir á Hvolsvelli og á Selfossi. Lögreglustöðvar umdæmisins munu áfram verða á Selfossi, Hvolsvelli, Vík, Kirkjubæjarklaustri og á Höfn. Rannsóknardeild verður staðsett á Selfossi en hún hefur frá árinu 2007 haft með höndum rannsóknir alvarlegra brota í umdæmum núverandi lögreglustjóra á Selfossi og á Hvolsvelli og mun hún einbeita sér að þeim brotum en almennir lögreglumenn sinna áfram öðrum rannsóknum.
Mest lesið Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Innlent Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Innlent Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Innlent Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Kristrún tilbúin í aðgerðir Innlent Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Innlent Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun Innlent Fleiri fréttir Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Ekki búið að finna nýjan lögreglustjóra hátt í hálfu ári síðar Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Árekstur við Hamraborg Engin aðstoð við próftöku og litaðar númeraplötur Uppsagnir hjá Klettabæ Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Kristrún tilbúin í aðgerðir Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Ákærður fyrir að nauðga sofandi og ölvaðri dóttur sinni Væntingar um útspil tengt gjaldahækkunum Neituðu sök við þingfestingu Straumsvíkurmálsins Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Sniðganga geti verið túlkuð sem yfirlýsing ríkisstjórnarinnar Fjórir í gæsluvarðhald eftir hraðsendingu frá Þýskalandi Ekkert svigrúm í tengslum við kjarasamninga og tvísýnt með framhaldið Lét ákærða vita af andlátinu: „Hann var í miklu uppnámi“ „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Flutningabíll valt á Þverárfjallsvegi sem er lokaður Lægðin grynnist í dag en von á annarri Bíl ekið á ljósastaur Sjá meira