Össur um Davíð: „Það sýnir veruleikaskyn þess góða manns“ Birgir Olgeirsson skrifar 6. janúar 2015 13:20 Össur Skarphéðinsson segir þetta ekki í fyrsta skiptið sem skotið er á hann í leiðara Morgunblaðsins en annar af ritstjórum þess er Davíð Oddsson. „
Það er nú ekki í fyrsta skiptið,“ segir Össur Skarphéðinsson, þingmaður Samfylkingarinnar, þegar borinn er undir hann leiðari Morgunblaðsins í dag þar sem leiðarahöfundur fer hörðum orðum um þingmanninn. Þar er Össur sakaður um að hafa tekið þátt í að „plata“ aðildarumsókn Íslendinga að Evrópusambandinu inn á þing og þjóð og kenningar hans sagðar fjarstæðukenndur pólitískur spuni. Þetta segir leiðarahöfundur vegna ummæla Össurar í fréttum Stöðvar 2 í gærkvöldi en þar sagði þingmaðurinn nýja tillögu Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar forsætisráðherra, um að slíta viðræðum við Evrópusambandið, vera smjörklípu til að ná fylgi Framsóknarflokksins upp. Þá sagði Össur þessi ummæli Sigmundar virka eins og rauð dula framan í evrópusinnaða sjálfstæðismenn og taldi líklegt að þetta útspil forsætisráðherrans muni verða til þess að flokkurinn Viðreisn, sem var stofnaður af evrópusinnuðum sjálfstæðismönnum, gulltryggi fall ríkisstjórnarinnar í næstu kosningum. Leiðarahöfundur Morgunblaðsins segir þessa hugmynd forsætisráðherrans ekki nýja heldur hafi það alltaf verið stefna ríkisstjórnarinnar frá upphafi að afturkalla aðildarumsóknina og að málið hafi þegar verið lagt fyrir Alþingi þó það hafi ekki verið klárað þar. Þá segir leiðarahöfundur fámenna og veikburða hópa enn berjast fyrir aðild að Evrópusambandinu. Össur segist í samtali við Vísi hafa lítið um þennan leiðara að segja nema eitt: „Það sem stendur upp úr þessum nýjársskrifum Davíðs Oddssonar er sú staðreynd að hann skilgreinir 82 prósent þjóðarinnar, sem var sá hópur sem vildi halda áfram umsókninni, sem fámennan hóp. Það er það eina nýja sem kemur fram þarna. Það sýnir veruleikaskyn þess góða manns,“ segir Össur um Davíð Oddsson sem ritstýrir Morgunblaðinu ásamt Haraldi Johannessen.
Tengdar fréttir Segir Sigmund beita smjörklípuaðferð Össur Skarphéðinsson segir að ummæli forsætisráðherra í Sprengisandi virki eins og rauð dula framan í evrópusinnaða sjálfstæðismenn. 6. janúar 2015 07:00 Mest lesið Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Innlent Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Innlent Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Kristrún tilbúin í aðgerðir Innlent Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Innlent Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun Innlent Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Erlent Fleiri fréttir Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Ekki búið að finna nýjan lögreglustjóra hátt í hálfu ári síðar Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Árekstur við Hamraborg Engin aðstoð við próftöku og litaðar númeraplötur Uppsagnir hjá Klettabæ Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Kristrún tilbúin í aðgerðir Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Ákærður fyrir að nauðga sofandi og ölvaðri dóttur sinni Væntingar um útspil tengt gjaldahækkunum Neituðu sök við þingfestingu Straumsvíkurmálsins Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Sniðganga geti verið túlkuð sem yfirlýsing ríkisstjórnarinnar Fjórir í gæsluvarðhald eftir hraðsendingu frá Þýskalandi Ekkert svigrúm í tengslum við kjarasamninga og tvísýnt með framhaldið Lét ákærða vita af andlátinu: „Hann var í miklu uppnámi“ „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Flutningabíll valt á Þverárfjallsvegi sem er lokaður Lægðin grynnist í dag en von á annarri Bíl ekið á ljósastaur Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Sjá meira
Segir Sigmund beita smjörklípuaðferð Össur Skarphéðinsson segir að ummæli forsætisráðherra í Sprengisandi virki eins og rauð dula framan í evrópusinnaða sjálfstæðismenn. 6. janúar 2015 07:00