Komin með ellefu lóuhræ og vonast eftir fleirum Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar 4. maí 2015 17:45 Elísa Skúladóttir með lóuhræin.
Elísa Skúladóttir, meistaranemi í líffræði, hefur á undanförnum dögum unnið að því að safna lóuhræjum. Hún er nú komin með ellefu stykki í hendurnar og vonast eftir að fá fleiri sem hún mun svo kryfja og nýta í rannsóknir.Líklega fyrsta rannsókn sinnar tegundar „Ég veit ekki til þess að lóur hafi verið kannaðar með þessum hætti. Þær hafa verið merktar með fótmarki en þetta hefur ekki verið gert áður að mér vitandi allavega,“ segir Elísa í samtali við Vísi. Lóan hefur lítið verið rannsökuð enda alfriðuð. Elísa sá sér því leik á borði þegar fregnir bárust af undarlegu hátterni lóunnar og óskað eftir hræjum á Facebook. Viðbrögðin létu ekki á sér standa og hefur hún vart haft undan við að sækja hræin, langflest á höfuðborgarsvæðinu en nokkur á Suðurnesin.Sumar lóurnar voru teknar af köttum, segir Elísa.„Ég er ekki viss hvernig flestar af þeim drápust en ég veit að sumar voru teknar af köttum. Þá er möguleiki að sumar hafi drepist úr kulda. Það er eitthvað sem hægt væri að sjá. Svo þætti mér gaman ef ég gæti fundið eitthvað efni erlendis frá um sambærilegar rannsóknir, þá gæti ég til dæmis borið saman líkamsstuðul þeirra,“ segir hún.Hvert hræ verðmætt Elísa vinnur nú að meistaraverkefni sínu í líffræði en það snýr meðal annars að því að kanna búsvæðaval lóu utan varptíma. Rannsókn þessi kemur því líklega til með að nýtast henni vel að sögn leiðbeinanda hennar, Gunnars Þórs Hallgrímssonar. „Það er erfitt að fullyrða hvað þetta mun segja okkur. En með því að hafa hræ af fuglum fáum við upplýsingar sem stundum er ekki hægt að fá á annan hátt, til dæmis hvernig fita safnast saman í mismunandi vefjum í líkamanum og aðrir mikilvægir þættir. Þegar maður er með friðaða tegund eins og lóuna þá er hvert hræ verðmætara, samanborið við það ef þú skoðar til dæmis máv eða gæs,“ segir Gunnar. Lumi einhver á lóuhræi fyrir Elísu er hægt að hafa samband við hana í síma 693 4358.
Mest lesið Vaktin: Austanbylur annan í páskum Veður „Þetta er algjör hetjudáð að fara þarna upp á“ Innlent Rúta valt á Kjalarnesi Innlent Stærðar gámur valt af Fjósakletti og lenti á hvolfi Innlent Vanhæfi fyrirtækisins til að sinna skyldum sínum sé algert Innlent Íranska þjóðin fagni sprengjuregni Erlent Fjær að heiman en nokkur maður frá upphafi Erlent Bíll við bíl á Hellisheiði eftir að heyrúllur féllu á veginn Innlent Virkjuðu flugslysaáætlun á Akureyri Innlent Lilja mætt aftur á Alþingi Innlent Fleiri fréttir Eldri borgarar verið í lífshættu vegna ábyrgðarleysis framkvæmdaaðila Virkjuðu flugslysaáætlun á Akureyri Stærðar gámur valt af Fjósakletti og lenti á hvolfi Rotaðist eftir að hafa fokið á höfuðið Flugmönnum leyfist að gera mistök í flughermi „Þetta er algjör hetjudáð að fara þarna upp á“ Rúta valt á Kjalarnesi Fastir bílar, fall af hestbaki og þakkjölur við það að losna Tuttugu þúsund á hvern illa búinn hjólbarða Vanhæfi fyrirtækisins til að sinna skyldum sínum sé algert Bíll við bíl á Hellisheiði eftir að heyrúllur féllu á veginn Lilja mætt aftur á Alþingi Óveðrið hefur áhrif á flugáætlun Icelandair Vanalega óttist fólk að eitthvað hræðilegt sé að gerast Lýstu eftir manni á níræðisaldri „Skynsamlegt að spyrja þjóðina“ Snjóflóð hrifsaði með sér göngugarpa Fólk stillt að mestu á Akureyri „Stórslysalaust“ á Ísafirði í nótt Hvernig greiðir Ragnar Þór atkvæði í ágúst? Gefur skít í helvítishótanir Trumps Viðreins býður fram sinn fyrsta lista á Akranesi Unnið að tillögum um lengingu brimvarnargarða Landeyjahafnar „Vatnsbólið er nánast tómt, það er að tæmast“ Hleypt inn í hollum í Vesturbæjarlaug Eldri borgarar einmana en eigi erfitt með að rífa sig upp á ný Segir stjórnvöld vinna gegn ferðaþjónustunni „Það er munur á karllíkama og kvenlíkama“ Mæla gegn því að ganga ofar en að Steini í Esjunni Óvissa í ferðaþjónustu og stuð á Aldrei fór ég suður Sjá meira