Ólöf Kristín nýr safnstjóri Listasafns Reykjavíkur Atli Ísleifsson skrifar 4. maí 2015 17:22 Ráðningin er til fimm ára og tekur Ólöf Kristín við stöðunni 1. september næstkomandi þegar Hafþór Yngvason lætur af störfum eftir 10 ára starf. Mynd/Reykjavíkurborg
Ólöf Kristín Sigurðardóttir hefur verið ráðin í stöðu safnstjóra Listasafns Reykjavíkur. Ólöf Kristín var valin úr hópi níu umsækjenda. Listasafnið er rekið í þremur húsum; Hafnarhúsinu, Kjarvalsstöðum og Ásmundarsafni auk þess að bera ábyrgð á umsjón útilistaverka í eigu borgarinnar. Ólöf Kristín hefur frá árinu 2008 gegnt stöðu forstöðumanns Hafnarborgar, menningar- og listamiðstöðvar Hafnarfjarðar þar sem hún er listrænn stjórnandi og ber ábyrgð á sýningadagskrá og annarri faglegri starfsemi safnsins svo sem fræðsludagskrá, tónleikum og öðrum menningarviðburðum. Sem stjórnandi Hafnarborgar hefur hún jafnframt borið ábyrgð á stefnumótun, stjórnun, fjármálum, rekstri og allri stjórnsýslu er varðar safnið. Í tilkynningu frá Reykjavíkurborg segir að undir stjórn Ólafar hefur Hafnarborg ótvírætt markað sér sterkari sess í íslensku menningarlífi meðal annars með fjölbreyttum og metnaðarfullum sýningum, fræðslustarfi, tónleikum og öðrum viðburðum sem eiga erindi við samtímann, spyrja spurninga og veita innsýn í margbreytilegan heim lista. „Ólöf var um árabil deildarstjóri fræðsludeildar Listasafns Reykjavíkur; bar ábyrgð á stefnumótun, skipulagi og framkvæmd fræðslustarfs safnsins, sat í sýningarnefnd safnsins og kom þannig að því að móta sýningarstefnu þess auk þess að vera sýningarstjóri á annan tugs sýninga. Ólöf Kristín útskrifaðist frá School of the Art Institute of Chicago árið 2003 með meistaragráðu í stjórnun listasafna og sýningargerð (Arts Administration) en í því skarast þrjár fræðigreinar; menningarstjórnun, safnafræði og listfræði. Hún útskrifaðist úr málaradeild Myndlista- og handíðaskóla Íslands árið 1989 og hefur jafnframt lagt stund á nám í listasögu og heimspeki á Ítalíu og við Háskóla Íslands. Samhliða stjórnunarstörfum á sviði myndlistar og menningar hefur Ólöf sinnt kennslu og ýmsum trúnaðarstörfum innan myndlistarheimsins, háskólasamfélagsins og fyrir safnamenn. Þar á meðal má nefna formennsku Íslandsdeildar ICOM – Alþjóðaráðs safna, setu í Myndlistarráði og setu í stjórn Kynningarmiðstöðvar íslenskrar myndlistar sem ber ábyrgð á vali fulltrúa og framkvæmd þátttöku Íslands í Feneyjatvíæringnum. Niðurstaða ráðningarnefndar, sem í sátu Svanhildur Konráðsdóttir, sviðsstjóri Menningar- og ferðamálasviðs, Fríða Björk Ingvarsdóttir, rektor Listaháskóla Íslands og Kjartan Örn Ólafsson, framkvæmdastjóri Volta ehf. og formaður stjórnar Listahátíðar í Reykjavík - og ráðgjafa Capacent, sem sá um ráðningarferilinn, var því að Ólöf Kristín Sigurðardóttir mæti afar vel kröfum Reykjavíkurborgar um staðgóða þekkingu á sviði safnsins, meira en 5 ára reynslu af stjórnun og rekstri, leiðtogahæfni, frumkvæði og færni til að leiða þetta stærsta listasafn landsins áfram á farsælli braut. Jafnframt var haft samráð við menningar- og ferðamálaráð Reykjavíkur sem fagnar ráðningunni. Ráðningin er til fimm ára og tekur Ólöf Kristín við stöðunni 1. september nk. þegar Hafþór Yngvason lætur af störfum eftir 10 ára starf,“ segir í tilkynningunni.
Mest lesið Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Erlent Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Innlent Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Innlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent Rúmlega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum Innlent Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Innlent Leitaði að sveppum í Breiðholti í indíánabúningi Innlent Fleiri fréttir Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Leitaði að sveppum í Breiðholti í indíánabúningi Rúmlega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum Úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald Lögmenn fagna niðurstöðu EFTA-dómstólsins Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Umferðarslys við Nýbýlaveg í Kópavogi Gæsluvarðhald sonar þingmannsins aftur framlengt Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Hló að svari sambýliskonunnar Tilboð hrikalega hátt yfir kostnaðaráætlun Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Brast í grát þegar hún lýsti aðkomu að látnum bróður Möguleg tengsl við heilabilun Skora á borgina að afturkalla uppsagnir á samningum við listamenn Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn „Enn ein vondu tíðindin af þessu máli“ Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Verðbólga, uppsagnir og mikil notkun svefnlyfja Forstjórar leita lausna Fulltrúi prentara vill verða forseti ASÍ Sýklalyfjanotkun í dýrum jókst um rúm tuttugu prósent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Aðalmeðferð hafin vegna meints manndráps á Kársnesi „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ „Dýr geta augljóslega ekki sjálf leitað réttar síns“ Segir upp eftir tvær vikur í starfi Sjá meira