Íslenskur prófessor vekur athygli fyrir gel sem gæti grætt sár Nanna Elísa Jakobsdóttir skrifar 4. maí 2015 19:35 Hér má sjá Þorra að stöfum ásamt Dr. Kotova. Mynd/Irish times/AdamCrawley
Efnafræðingar við Trinity háskóla í Dublin hafa skapað sérstakt gel sem hægt er að nota á marga vegu, allt frá því að hindra að ör myndist á húð manns til þess að búa til bílabón sem lagfærir sjálfkrafa rispur. Íslendingurinn og prófessorinn Þorri Gunnlaugsson er prímus mótor í rannsókninni. Hann hefur starfað við háskólann í yfir áratug. Þorri segir rannsóknir á geli hafa orðið mikilvægar á síðustu árum. Gelið er frekar ódýrt og auðvelt í framleiðslu. Vísindamenn fundu upp gelið fyrir algjöra slysni eins og vill oft verða í lífinu. „Við vorum að vinna að því að nota málmjónir til þess að búa til samsetningu af stærri sameindum,“ sagði Þorri í samtali við IT, Irish times. Þorri hefur unnið með Dr. Oxana Kotova, efnafræðingi, en þau lýstu uppgötvun sinni í blaðinu Journal of the American Society. Gelið hefði getað endað í tunnunni en vísindamennirnir bættu í það tveimur málmtegundum - europium og terbium. Þau efni gera það að verkum að sameindirnar geta raðað sér í form sem annars væri ómögulegt að skapa. Þær mynda trefjótt gel sem hefur marga nothæfa eiginleika. Til dæmis lagfærir gelið sig sjálft ef það er skorið í það. „Þetta er eins og hlaup,“ útskýrir Þorri. „Við skárum það í sundur með skurðhníf en það raðaði sér saman og græddi sjálft sig fyrir framan augun á okkur." Gelið er á fyrstu stigum rannsókna en miklar vonir eru bundnar við það. Meðal annars telur Þorri að gelið gæti verið nýtt til þess að vernda húð eftir alvarlegan bruna. „Gelið er nógu sterkt til þess að loka sári og myndi brotna niður og stuðla að því að sárið myndi gróa náttúrulega.“Hér má lesa meira um málið.
Mest lesið Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Erlent Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Innlent Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Erlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Innlent Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent Rúmlega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum Innlent Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Innlent Leitaði að sveppum í Breiðholti í indíánabúningi Innlent Fleiri fréttir Kröpp og djúp lægð og varasamar vindhviður Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Leitaði að sveppum í Breiðholti í indíánabúningi Rúmlega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum Úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald Lögmenn fagna niðurstöðu EFTA-dómstólsins Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Umferðarslys við Nýbýlaveg í Kópavogi Gæsluvarðhald sonar þingmannsins aftur framlengt Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Hló að svari sambýliskonunnar Tilboð hrikalega hátt yfir kostnaðaráætlun Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Brast í grát þegar hún lýsti aðkomu að látnum bróður Möguleg tengsl við heilabilun Skora á borgina að afturkalla uppsagnir á samningum við listamenn Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn „Enn ein vondu tíðindin af þessu máli“ Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Verðbólga, uppsagnir og mikil notkun svefnlyfja Forstjórar leita lausna Fulltrúi prentara vill verða forseti ASÍ Sýklalyfjanotkun í dýrum jókst um rúm tuttugu prósent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Aðalmeðferð hafin vegna meints manndráps á Kársnesi „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ „Dýr geta augljóslega ekki sjálf leitað réttar síns“ Sjá meira