Tútta af snuði festist í koki 17 mánaða stúlku: Snuðið sent til rannsóknar Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar 26. febrúar 2015 16:19 „Þegar tækið pípti hljóp ég inn til hennar og sá að hún væri að berjast við að anda. Það blæddi úr nefinu hennar og hún var öll í blóði.“
Búið er að innkalla 150 snuð frá framleiðanum MAM úr verslunum landsins. Tútta af slíku snuði losnaði og festist í koki 17 mánaða stúlku á mánudag. Málið er komið til rannsóknar hjá framleiðandum. Innflutningsaðili snuðanna er Halldór Jónsson ehf. Ásgeir Sveinsson, framkvæmdastjóri fyrirtækisins, harmar atvikið en segir að um einsdæmi sé að ræða. Hann hvetur þó foreldra til að prófa snuðin, með því að toga í túttuna, áður en þau eru tekin í notkun. „Öllum ítrustu öryggisstöðlum sem hægt er að fara eftir er fylgt. MAM er austurrískt merki og þeir segja að svona eigi ekki að geta gerst. En ef það gerist þá fer í gang mjög fastmótað ferli. Við erum búin að senda snuðið út til rannsóknar sem gæti þá gefið okkur svör hvað hefur mögulega getað orsakað þetta,“ segir Ásgeir. Því hafi öll snuð með sama lotunúmeri verið tekin úr umferð og færð til rannsóknar.Barðist við að ná andanum Stúlkunni ungu varð ekki meint af. Móðir hennar, Karen Ingólfsdóttir, segir það Angel-Care lífvaka að þakka að ekki fór verr. Barnið er hjartveikt og sefur því á lífvakanum, en hann gaf frá sér viðvörunarhljóð sem varð barninu til lífs „Þegar tækið pípti hljóp ég inn til hennar og sá að hún væri að berjast við að anda. Það blæddi úr nefinu hennar og hún var öll í blóði. Ég tók hana upp og sló á bakið á henni til að reyna að fá hana til að anda en það gekk ekki neitt,“ segir Karen í samtali við Vísi. Karen ákvað að líta upp í munn dóttur sinnar og sá þar aðskotahlut sem hún að lokum náði úr koki hennar. Sjúkralið var kallað til sem flutti stúlkuna á sjúkrahús. „Hún hefur það fínt núna en er særð í hálsinum. Hún var bæði að rembast við að ná andanum og ég særði hana með því að reyna að ná túttunni úr henni.“ Karen er, sem ber að skilja, í áfalli eftir atvikið. Hún vill verða öðrum víti til varnaðar og hvetur foreldra því til að prófa snuðin fyrir notkun.Innlegg frá Karen Ingólfs.
Mest lesið Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Innlent „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Innlent Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun Innlent Kristrún tilbúin í aðgerðir Innlent „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Ákærður fyrir að nauðga sofandi og ölvaðri dóttur sinni Innlent Uppsagnir hjá Klettabæ Innlent Fleiri fréttir Árekstur við Hamraborg Engin aðstoð við próftöku og litaðar númeraplötur Uppsagnir hjá Klettabæ Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Kristrún tilbúin í aðgerðir Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Ákærður fyrir að nauðga sofandi og ölvaðri dóttur sinni Væntingar um útspil tengt gjaldahækkunum Neituðu sök við þingfestingu Straumsvíkurmálsins Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Sniðganga geti verið túlkuð sem yfirlýsing ríkisstjórnarinnar Fjórir í gæsluvarðhald eftir hraðsendingu frá Þýskalandi Ekkert svigrúm í tengslum við kjarasamninga og tvísýnt með framhaldið Lét ákærða vita af andlátinu: „Hann var í miklu uppnámi“ „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Flutningabíll valt á Þverárfjallsvegi sem er lokaður Lægðin grynnist í dag en von á annarri Bíl ekið á ljósastaur Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði ESA geti ekki beðið endalaust Valgerður réttir fram sáttahönd Vill að Daði vísi til þess sem hún á að hafa sagt Tilkynnt um ölvaðan flugmann Brunavörnum hafi verið verulega áfátt Konan sem lögreglan lýsti eftir er fundin Nú er hægt að taka Strætó alla leið að flugstöðinni Sjá meira