Kæra fyrir að fá ekki að leigja vatnsverndarsvæði undir jeppaprófun Garðar Örn Úlfarsson skrifar 30. apríl 2015 07:00 Yfir eitt hundrað jeppar voru fluttir hingað til lands þegar Land Rover kynnti nýja tegund fyrir bílablaðamönnum. Fréttablaðið/Pjetur „
Enga heimild er að finna í lögum og reglugerðum um að heilbrigðisnefnd hafi heimild til að synja um akstur bifreiða á landi félagsins á Sandskeiði,“ segir í kæru Svifflugfélags Íslands vegna synjunar heilbrigðisnefndar á leyfi fyrir tilraunaakstur á vegum Land Rover. Allt að eitt þúsund blaðamönnum var boðið til Íslands í desember og janúar til að reynsluaka nýjum bíl frá Land Rover, Discoery Sport, við erfiðar aðstæður eins og hér geta verið að vetrarlagi. Meðal annars leitaði Land Rover til Svifflugfélagsins um að fá að útbúa akstursbraut á svæði félagsins við Sandskeið. Lagði Land Rover áherslu á að öll leyfi væru í lagi en þau fengust ekki þar sem Sandskeið er á vatnsverndarsvæði. Í kæru Svifflugfélagsins til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála segir að þrátt fyrir að nær öll starfsemi félagsins sé unnin í sjálfboðavinnu hafi rekstur félagsins orðið æ þyngri undanfarin ár, aðallega vegna nýrra og íþyngjandi krafna yfirvalda. „Því var tilboði bifreiðaframleiðanda tekið fagnandi þegar framleiðandinn bauð fram ríflegan fjárstyrk gegn því að fá að aka af fyllsta öryggi um snævi þakta velli Sandskeiðs á fyrirfram merktri snjóbraut,“ segir í kærunni. Hættan á mengunarslysi hafi verið hverfandi. Þá kveðst Svifflugfélagið telja að heilbrigðisnefnd hafi ekki lagaheimild til að synja um akstur bíla á landi félagsins á Sandskeiði. „Hvergi er að finna ákvæði í lögum sem heimila yfirvöldum að krefjast tímabundins starfsleyfis eða annarra leyfa til að heimila nokkrum bifreiðum að aka um uppræktað snævi þakið og frosið landsvæði.“ Í svari til úrskurðarnefndarinnar segir heilbrigðisnefndin að nálgun hennar sé skýr. „Vélknúin umferð er viðvarandi ógn við verndun vatnsbólanna í Heiðmörk og alla starfsemi á vatnsverndarsvæðinu verður að nálgast í því samhengi,“ segir í svarinu. „Akstursæfingum og akstursíþróttum fylgir ávallt ákveðin mengunarhætta og á það ekki síður við um tilraunaakstur,“ segir heilbrigðisnefndin enn fremur. Henni beri að sjá til þess að mengunarvarnir við allan atvinnurekstur á svæðum til verndar vatnsgæðum miðist við ströngustu skilyrði. Um sé að tefla „aðal ákomu- eða vatnssöfnunarsvæðið fyrir þá grunnvatnsstrauma sem liggja að núverandi og framtíðar vatnsbólum höfuðborgarsvæðisins.“
Mest lesið Konráð segir námslánin vera gjöf en Helga Vala gjald Innlent Hótar að útrýma írönsku þjóðinni Erlent Fyrstu merkin um kostnaðinn við stjórnarsetuna Innlent Drengurinn kominn af gjörgæsludeild Innlent Önnur lægð nálgast landið Veður Tugum sagt upp í þremur hópuppsögnum Innlent Stakk og skar fórnarlambið á háls Innlent Fleiri óánægðir en ánægðir í fyrsta skipti Innlent Ásgrímur Halldórsson slapp með skrekkinn frá ofsanum í Dave Innlent Alvarlega slasaður eftir umferðarslys í Mývatnssveit Innlent Fleiri fréttir Hegðun Trumps vonbrigði Vitað um tíu dauðsföll af völdum eldinga hér á landi Kosningaspá Vísis: Lítill munur á vinstri og hægri í borginni Nýstaðinn upp þegar bárujárnið fauk inn um svefnherbergisgluggann Rafmagnslaust á Seltjarnarnesi og hluta Vesturbæjar Skipverjar og hafnarverkamenn boða verkfall Harma að íbúar hafi verið í hættu við Fannborg Hótun um útrýmingu, ný kosningaspá og óvenjulegt þrumuveður Alvarlega slasaður eftir umferðarslys í Mývatnssveit Fyrstu merkin um kostnaðinn við stjórnarsetuna Krapaspýja lokar Vestfjarðavegi Konráð segir námslánin vera gjöf en Helga Vala gjald Ásgrímur Halldórsson slapp með skrekkinn frá ofsanum í Dave Drengurinn kominn af gjörgæsludeild Ekki hlutverk grunnskóla að kenna börnum sjálfsvörn Rafmagnsleysið og sjálfsvarnarkennsla Stakk og skar fórnarlambið á háls Auglýstu eftir framboðum og skelltu í lás yfir páska Fleiri óánægðir en ánægðir í fyrsta skipti Keflavíkurflugvöllur á varaafli vegna eldingar Þau skipa lista Sósíalistaflokksins í Reykjavík Tugum sagt upp í þremur hópuppsögnum Eldri borgarar verið í lífshættu vegna ábyrgðarleysis framkvæmdaaðila Virkjuðu flugslysaáætlun á Akureyri Stærðar gámur valt af Fjósakletti og lenti á hvolfi Rotaðist eftir að hafa fokið á höfuðið Flugmönnum leyfist að gera mistök í flughermi „Þetta er algjör hetjudáð að fara þarna upp á“ Rúta valt á Kjalarnesi Fastir bílar, fall af hestbaki og þakkjölur við það að losna Sjá meira