Gagnrýna að dæmdur skattsvikari annist akstur fatlaðra og kæra Strætó Garðar Örn Úlfarsson skrifar 30. apríl 2015 07:15 Margvíslegir erfiðleikar hafa sett mark sitt á Ferðaþjónustu fatlaðra að undanförnu. Fréttablaðið/Anton
Einkahlutafélögin All Iceland Tours, Aldey og Efstihóll hafa kært samninga Strætó við Ný-Tækni vegna ferðaþjónustu fatlaðra til kærunefndar útboðsmála. Ný-Tækni tók í febrúar við hlutverki Kynnisferða við svokallaðan tilfallandi akstur fyrir Ferðaþjónustu fatlaðra. Kynnisferðir óskaðu eftir að losna undan skuldbindingum sem fyrirtækið hafði gengist undir sem aðili að rammasamningi eftir útboð sumarið 2014. Fyrirtækin þrjú sem kæra tóku þátt í því útboði en Ný-Tækni ekki. Í umsögn lögmanns fyrirtækjanna þriggja, Sveins Andra Sveinssonar, segir að ef viðskiptasaga Ný-Tækni hefði verið skoðuð eins og átt hefði að gera þá hefði komið í ljós að núverandi stjórnarformaður félagsins og einn af prókúruhöfum þess hafi setið níu mánuði í fangelsi í Svíþjóð eftir tólf mánaða dóm á árinu 2007 fyrir vanskil á opinberum gjöldum.Sveinn Andri Sveinsson er lögmaður kærenda.Fréttablaðið/Valli„Samdi varnaraðili [Strætó] við hugbúnaðarfyrirtæki sem ekki hafði hópferðaleyfi um akstur fatlaðra, hvers eini eigandi og eini stjórnarmaður hafði tólf mánaða dóm á bakinu fyrir skattsvik. Félagið hafði engar tekjur á árinu 2013 og hafði verið rekið með tapi og ekki rekstrarhæft,“ segir lögmaðurinn. Af mörgum öðrum atriðum í umsögn kærendanna má nefna að þeir telja að með breytingum á níu bílum sem Ný-Tækni ráði yfir þannig að þeir taka nú allir fimm farþega í stað á bilinu níu til fjórtán áður séu þeir nú leigubílar en ekki hópferðabílar. „Til þess að aka slíkum bifreiðum þarf umráðamaður að hafa atvinnuleyfi sem leigubifreiðastjóri. Aðeins eigendurnir þrír hafa leigubílaleyfi, en aðrir ökumenn sem starfa fyrir Ný-Tækni hafa það ekki,“ segja kærendurnir í sérstakri kæru til Samgöngustofu þar sem þess er krafist að stofnunin tilkynni Strætó og Ný-Tækni að óheimilt sé að nota þessa bíla í akstursþjónustu fyrir fatlaða. „Samrit verði sent lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu með ósk um stöðvun bifreiðanna.“ Guðmundur Siemsen, lögmaður Strætó, hafnar því í greinargerð til kærunefndarinnar að Ný-Tækni hafi ekki þurft að uppfylla sömu skilyrði og aðrir þátttakendur í samningskaupaferlinu. „Þá hafnar varnaraðili [Strætó] alfarið sem rangri fullyrðingu kærenda þess efnis að lög um opinber innkaup hafi verið brotin með margvíslegum hætti við hina kærðu ákvörðun, en verulega skortir raunar á að kærendur færi fullnægjandi rök fyrir henni,“ segir lögmaður Strætó og krefst þess að kærunni verði vísað frá og kærendurnir látnir borga málskostnað enda séu kröfur þeirra „bersýnilega tilhæfulausar“.
Mest lesið Konráð segir námslánin vera gjöf en Helga Vala gjald Innlent Drengurinn kominn af gjörgæsludeild Innlent Önnur lægð nálgast landið Veður Hótar að útrýma írönsku þjóðinni Erlent Tugum sagt upp í þremur hópuppsögnum Innlent Stakk og skar fórnarlambið á háls Innlent Fleiri óánægðir en ánægðir í fyrsta skipti Innlent Ásgrímur Halldórsson slapp með skrekkinn frá ofsanum í Dave Innlent Fyrstu merkin um kostnaðinn við stjórnarsetuna Innlent Íranska þjóðin vöruð við því að nota lestar landsins í dag Erlent Fleiri fréttir Alvarlega slasaður eftir umferðarslys í Mývatnssveit Fyrstu merkin um kostnaðinn við stjórnarsetuna Krapaspýja lokar Vestfjarðavegi Konráð segir námslánin vera gjöf en Helga Vala gjald Ásgrímur Halldórsson slapp með skrekkinn frá ofsanum í Dave Drengurinn kominn af gjörgæsludeild Ekki hlutverk grunnskóla að kenna börnum sjálfsvörn Rafmagnsleysið og sjálfsvarnarkennsla Stakk og skar fórnarlambið á háls Auglýstu eftir framboðum og skelltu í lás yfir páska Fleiri óánægðir en ánægðir í fyrsta skipti Keflavíkurflugvöllur á varaafli vegna eldingar Þau skipa lista Sósíalistaflokksins í Reykjavík Tugum sagt upp í þremur hópuppsögnum Eldri borgarar verið í lífshættu vegna ábyrgðarleysis framkvæmdaaðila Virkjuðu flugslysaáætlun á Akureyri Stærðar gámur valt af Fjósakletti og lenti á hvolfi Rotaðist eftir að hafa fokið á höfuðið Flugmönnum leyfist að gera mistök í flughermi „Þetta er algjör hetjudáð að fara þarna upp á“ Rúta valt á Kjalarnesi Fastir bílar, fall af hestbaki og þakkjölur við það að losna Tuttugu þúsund á hvern illa búinn hjólbarða Vanhæfi fyrirtækisins til að sinna skyldum sínum sé algert Bíll við bíl á Hellisheiði eftir að heyrúllur féllu á veginn Lilja mætt aftur á Alþingi Óveðrið hefur áhrif á flugáætlun Icelandair Vanalega óttist fólk að eitthvað hræðilegt sé að gerast Lýstu eftir manni á níræðisaldri „Skynsamlegt að spyrja þjóðina“ Sjá meira