Innlent

Kjartan Bjarni skipaður dómari við Héraðsdóm Reykjavíkur

Atli Ísleifsson skrifar
Niðurstaða nefndarinnar varð sú að Kjartan Bjarni og Pétur Dam Leifsson, dósent við lagadeild Háskóla Íslands, væru hæfastir umsækjenda.
Niðurstaða nefndarinnar varð sú að Kjartan Bjarni og Pétur Dam Leifsson, dósent við lagadeild Háskóla Íslands, væru hæfastir umsækjenda. Mynd/EFTA
Innanríkisráðherra hefur skipað Kjartan Bjarna Björgvinsson, aðstoðarmann dómara við EFTA-dómstólinn, í embætti dómara með fast sæti við Héraðsdóm Reykjavíkur frá og með 4. maí næstkomandi.

Embættið var auglýst laust til umsóknar þann 16. janúar síðastliðinn og bárust alls níu umsóknir um embættið.

Ólöf Nordal innanríkisráðherra fór þess á leit við dómnefnd að hún léti í té umsögn sína um hæfni umsækjenda um embættið og afhenti nefndin ráðherra umsögn sína þann 20. apríl 2015.

Niðurstaða nefndarinnar varð sú að Kjartan Bjarni og Pétur Dam Leifsson, dósent við lagadeild Háskóla Íslands, væru hæfastir umsækjenda til að hljóta skipun í embættið.

Á vef innanríkisráðuneytisins má finna umsögn dómnefndar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×