Embætti forseta segir ummæli Salmanns í Fréttablaðinu röng Birgir Olgeirsson skrifar 27. nóvember 2015 13:47 Ólafur Ragnar Grímsson og sendiherra Sádi sendiherra Sádi Arabíu, Ibrahim S.I. Alibrahim á Bessastöðum í mars síðastliðnum. Forseti.is
Skrifstofa forseta Íslands hefur sent frá sér fréttatilkynningu vegna föstudagsviðtals Fréttablaðsins við Salmann Tamimi, trúarleiðtoga múslima á Íslandi. Salmann sagði í samtali við Fréttablaðið að forsetaembættið hefði sent frá sér yfirlýsingu á sínum tíma þegar Ólafur Ragnar Grímsson hitti sendiherra Sádi-Arabíu sem tjáði forsetanum að þeir ætli að styrkja byggingu moskunnar um milljón dollara. „Forsetabíllinn keyrði sendiherra á lóðina okkar og fór að skoða hana. Við vissum ekkert um það. Ég gaf yfirlýsingu þegar ég var spurður að þessu. Ég sagði: Hvar eru þessir milljón dollarar? Enginn kom til okkar,“ segir Salmann Tamimi við Fréttablaðið. Forsetaembættið segir eftirfarandi setningu hafa verið ranga: „Forsetabíllinn keyrði sendiherra á lóðina okkar og fór að skoða hana.“ „Þetta er rangt. Sendiherrann var 5. mars einungis keyrður, eins og venja er, frá hóteli til Bessastaða og aftur til baka. Lýsing Salmanns Tamimi á sér því enga stoð. Eins og fram kemur á heimasíðu forsetaembættisins sagðist sendiherrann hafa skoðað lóðina daginn áður.“ Á dagskrá forseta Íslands frá 5. mars síðastliðnum segir: „Forseti á fund með nýjum sendiherra Sádi Arabíu, Ibrahim S.I. Alibrahim, sem afhenti trúnaðarbréf sitt á Bessastöðum og flutti forseta sérstaka kveðju nýs konungs Sádi Arabíu, Salman bin Abdulaziz Al Saud. Rætt var um áhuga íslenskra aðila á að kanna jarðhita í Sádi Arabíu, einkum með tilliti til kælingar húsa. Fjallað var um þróun mála í Mið-Austurlöndum og vaxandi átök á svæðinu. Þá greindi sendiherrann frá því að Sádi Arabía styddi byggingu væntanlegrar mosku í Reykjavík, myndi leggja fram rúmlega eina milljón Bandaríkjadala til byggingar hennar og að hann hefði í gær skoðað lóðina þar sem moskan myndi rísa.“
Tengdar fréttir Föstudagsviðtalið: Stjórnmálamenn ala á hræðslu Salmann Tamimi segir stjórnmálamenn þurfa að gæta að sér í opinberri umræðu. Sundrung og æsingatal ýti undir ódæðisverk. Sjálfur kærði hann morðhótun en lögreglan vísaði málinu frá. Ákvörðunin var kærð og ríkissaksóknari be 27. nóvember 2015 07:00 Mest lesið Heimsfræg Twitch-stjarna olli örtröð í miðbænum Innlent Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Innlent „Það er ótrúlega dýrt og lýjandi að hafa rétt fyrir sér“ Innlent Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Innlent „Farið að minna mig á stöðuna í Bandaríkjunum“ Innlent Tortímir gervigreindin mannkyninu? Innlent Átján kíló af kókaíni undir fölskum botni Innlent Hafa skotið um hundrað bjargdúfur í Vestmannaeyjum Innlent Freyr látinn fara frá Eflingu Innlent Eftirlitið fellur á herðar foreldra Innlent Fleiri fréttir Daði spreytir sig í Gettu betur Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Umdæmin mishrifin af fækkun embætta Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Buxnalaus Lalli olli glundroða Þyrlan sótti slasaðan knapa Heimsfræg Twitch-stjarna olli örtröð í miðbænum Fagnar fækkun lögregluembætta og deilt um málverk af Danakonungi Átján kíló af kókaíni undir fölskum botni Eftirlitið fellur á herðar foreldra Loka hringveginum við Jökulsárlón Fá loksins að fagna aldarafmælinu „Það er ótrúlega dýrt og lýjandi að hafa rétt fyrir sér“ Fluttur til aðhlynningar eftir umferðarslys Tortímir gervigreindin mannkyninu? „Farið að minna mig á stöðuna í Bandaríkjunum“ Mátti þrífa harkalega í leikskólabarn Hafa skotið um hundrað bjargdúfur í Vestmannaeyjum Ákærður fyrir gróf brot á barnungri stjúpsystur sinni Sjaldgæfur gestur í Eyjum Bað um álit lögreglu á gæðum fíkniefna Skriða þveraði veginn í Árneshrepp Breiðholtsbraut lokuð allan morgundaginn Allt umfram 2,8 milljarða dregið frá Segir Ingu hafa eytt sér á Facebook Húsbíll fauk út af Hver ákvað að Guðmundur Ingi ætti að hætta? Gæsluvarðhald framlengt yfir þremur Ákærðir fyrir að frelsissvipta mann og nauðga með röri Fundu umfangsmikla kannabisrækt í Bolungarvík Sjá meira
Föstudagsviðtalið: Stjórnmálamenn ala á hræðslu Salmann Tamimi segir stjórnmálamenn þurfa að gæta að sér í opinberri umræðu. Sundrung og æsingatal ýti undir ódæðisverk. Sjálfur kærði hann morðhótun en lögreglan vísaði málinu frá. Ákvörðunin var kærð og ríkissaksóknari be 27. nóvember 2015 07:00