Tveggja ára barn gleypti e-töflur Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 1. október 2015 10:19 Drengurinn gleypti pillurnar á sunnudegi í nóvember í fyrra. Vísir/Heiða
22 mánaða gamalt barn var hætt komið í nóvember í fyrra þegar það gleypti e-töflur. Töflurnar voru í eigu vinar föður drengsins en þeir feðgar voru í heimsókn hjá honum. Pillurnar lágu á glámbekk og uppgötvaði vinurinn að þær væru horfnar. Laug hann hins vegar til um að um e-töflur væri að ræða og sagði að um stinningarlyf væri að ræða. Móðir drengsins, Ásta Þórðardóttir, greinir frá þessu í færslu á Facebook sem hún ritar til að vekja aðra foreldra til umhugsunar um hætturnar sem eru í umhverfi barna. Sömuleiðis sé þetta leið fyrir hana til að vinna úr atvikinu. Hún tekur fram að hún dæmi ekki barnsföður sinn og hafi aldrei kennt honum um það sem gerðist. Um leið og upp komst að tæplega tveggja ára strákurinn hafði gleypt pillurnar brunaði faðirinn með barnið á bráðamóttöku. Í kjölfarið fékk Ásta símtal sem breytti kósýdegi í martröð. Læknar sögðu að drengnum ætti ekki að verða meint af stinningarlyfjum. Var ákveðið að hringja í vin föðurins til að ganga úr skugga um að hann væri að segja satt, sem hann hafði ekki gert. Um e-töflur var að ræða. „Í kjölfarið fór allt á miljón og innan við 20 mín eftir að barnið tók töflurnar var búið að dæla upp úr honum tvisvar sinnum,“ segir Ásta. Hún hafi mætt niður á spítala eins fljótt og mögulegt var. „Ég kem niður í Fossvog í mestu geðshræringu lífs míns, geng inn í herbergi þar sem hátt í 10 hvít klæddir sloppar grúfa yfir sjúkrarúmi. í þessu sjúkrarúmi situr sonur minn stjarfur af hræðslu og læknir sem reynir að troða ofan í hann kolum í gegnum sondu með stærstu sprautu sem ég hef á ævi minni séð. Á meðan er annar læknir að gefa barninu lyf í gegnum æðalegg sem mér er sagt eigi að koma í veg fyrir að hann muni eftir þessu.“ Ásta fékk drenginn sinn svo í fangið og grétu þau mæðginin saman. „Eftir að lækninum hafði tekist að koma tveimur fullum sprautum af svörtum kolum ofaní barnið án þess að sonur minn kasti upp erum við flutt niður á Barnaspítala. Þar dettur allt í dúnalogn og loks fer ég að þekkja barnið mitt aftur,“ segir Ásta. Drengurinn þurfti að vera tengdur við hjartamonitor um nóttina og fara í nokkrar blóðprufur. „Svo daginn eftir kemur sami læknir og hafði verið að kola-barnið og færir okkur þær fréttir að allt hefði komið vel út og barnið hefði í raun aldrei sýnt nein áhrifsmerki. Æluna hefi hann stiklað og reyndist hún jákvæð fyrir MDMA sem er virka efnið í E-töflum. Barnið mitt, 22. mánaða, hafði þá komist nær eiturlyfjum en ég hef á mínum 26 árum. Eftir viðtal við barnavernd fengum við loks að fara heim.“Í kjölfar greinar sem ég rak augun í áðan um barn sem hafði komist í lyfja box og tekið inn róandi lyf hef ég ákveðið að...Posted by Ásta Þórðardóttir on Wednesday, September 30, 2015
Mest lesið Óttast að færri leiti sér aðstoðar Innlent Ísland sé aðkomuleið Bandaríkjamanna að norðurslóðum Innlent Handtekinn eftir að hafa horft á HM undir stýri Innlent „Þá sé þetta sem næst útilokað“ Innlent „Mikið hitaefni en þessi texti á að vera hlutlaus“ Innlent Hundurinn sem fannst hafði verið týndur í tíu ár Innlent Segja Reykjanesbæ greiða þremur bæjarstjórum laun Innlent Robinson hafi lýst eftirsjá Erlent Íbúar Flóahrepps vilja ekki sameinast öðrum Innlent Kærir Iðufólk fyrir líkamsárásir, þjófnað og hótanir Innlent Fleiri fréttir Handtekinn eftir að hafa horft á HM undir stýri Ísland sé aðkomuleið Bandaríkjamanna að norðurslóðum Óttast að færri leiti sér aðstoðar Íbúar Flóahrepps vilja ekki sameinast öðrum Kaupin hjá Gærunum gerast í fláningssalnum „Mikið hitaefni en þessi texti á að vera hlutlaus“ ESB-deilan harðnar eftir ummæli erlendra ráðamanna Segja Reykjanesbæ greiða þremur bæjarstjórum laun Hundurinn sem fannst hafði verið týndur í tíu ár „Þá sé þetta sem næst útilokað“ Lögreglan þekkti óprúttna aðila á upptökum Krafa Íslands um undanþágur vekur spurningar í ESB Segir skoðanir Ólafs Ragnars ekkert ofboðslega fréttnæmar Opna fyrir umferð á morgun Fjárhagslegt tjón netbrota á árinu nemur hundruðum milljóna Namibíumenn krefjast skaðabóta í Samherjamálinu Hafnaði á skilti Þessi sóttu um starf bæjarstjóra Fjallabyggðar Starfshópur um gervigreind tekinn til starfa Kærir Iðufólk fyrir líkamsárásir, þjófnað og hótanir Öll málning þrifin af kirkjutröppunum Energy Observer komið til Reykjavíkurhafnar „Eldgamlir bekkir og kompur sem hjúkrunarfræðingum var holað í“ Sendi fimmtán ára skilaboð og typpamynd: „Riða i kvöld?“ Strandaði á skeri rétt utan við Húsavík Breskt herskip siglir um Hvalfjörð „Kemur ekki á óvart að þetta komi fram í Morgunblaðinu“ Fannar leiðir hagræðingu í Reykjanesbæ Sjávarútvegurinn og ESB, vopnagjöf og heilbrigðismál Hanna Katrín segir rasista vilja endurskilgreina hlutverk íslenska fánans Sjá meira