Samvinnan skilaði sínu: Eins árs barn hætt komið Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 2. mars 2015 11:39 Björgunarfélagið Eyvindur hefur þessa tvo öflugu bíla til umráða. Mynd/Fésbókarsíða Eyvindar
Betur fór en á horfðist á laugardaginn þegar lítil filma úr barnamyndavél festist í hálsi tæplega ársgamals barns á Flúðum. Vettvangshjálparliðar úr björgunarfélaginu Eyvindi voru fljótir á vettvang og losuðu um hlutinn í hálsi barnsins. Óskar Rafn Emilsson, gjaldkeri björgunarfélagsins, segir að filman hafi ekki fullkomlega lokað öndunarvegi barnsins. Vel hafi gengið að losa um hlutinn eftir að hann kom á staðinn ásamt kollega sínum Borgþóri Vignissyni. Filman sé um 5x5 millimetrar á stærð, oddhvöss en hún er úr barnamyndavél þar sem litlu filmurnar eru settar í vélina, horft upp í ljósið og sést þá mynd. Borgþór, Óskar og félagar í Eyvindi sinna reglulega útköllum í nærsveitum en um samstarfsverkefni við Heilbrigðisstofnun Suðurlands er að ræða. Óskar segir að á síðasta ári hafi þeir verið kallaðir út í 45 skipti eða tæplega einu sinni í viku. Um sjálfboðavinnu er að ræða. „Ekki er vafi á að með þessu fyrirkomulagi felst mikið öryggi fyrir fólk á þessu svæði,“ segir í skýrslu lögreglunnar á Suðurlandi vegna atviksins.
Mest lesið Vísbending um að flutningaskip hafi hvolft bátnum Innlent Fólk muni ekki borga 200 þúsund fyrir „heimili sem það notar sem sumarbústað“ Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Miklar breytingar á fylgi fyrir kappræður Stöðvar 2 í kvöld Innlent „Blaut tuska í andlit Félags eldri borgara í Reykjavík“ Innlent Skikkar lögreglu til að rannsaka stjórn aðventista Innlent Skipstjórinn og tveir stýrimenn handteknir vegna sjóslyssins Innlent Fékk sting í hjartað þegar hann sá nafnið á bátnum Innlent Leigan fyrir 100 fermetra hús í Grindavík 62.500 á mánuði Innlent Ágreiningur innan stjórnarinnar brýst upp á yfirborðið Erlent Fleiri fréttir Viktor hvetur forsetaframbjóðendur til að sniðganga Stöð 2 Skipstjórinn og tveir stýrimenn handteknir vegna sjóslyssins Óvinnufær eftir harkalegt fall þegar strappur slitnaði Skipuð aðstoðarlögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu Valdimar Hermannsson nýr sveitarstjóri Vopnafjarðarhrepps Bjarni ætlar að geta Katrínar í formálanum Þórey í Konukoti hlaut mannréttindaverðlaun Reykjavíkur Nafnið Hroði of hroðalegt Fékk sting í hjartað þegar hann sá nafnið á bátnum Um 920 mál óafgreidd hjá kærunefnd útlendingamála Færa almannavarnastig niður á óvissustig vegna vatnslagnarinnar Fólk muni ekki borga 200 þúsund fyrir „heimili sem það notar sem sumarbústað“ Vísbending um að flutningaskip hafi hvolft bátnum Skikkar lögreglu til að rannsaka stjórn aðventista Sjóslys, Þórkatla og framtíð Play Kvikusöfnunin áfram stöðug Tóku niður íslenska svikasíðu með FBI Hafna tilboðum í áætlunarflug milli Reykjavíkur og Hornafjarðar Segir rangt að gjaldskylda á nagladekk sé í skoðun „Blaut tuska í andlit Félags eldri borgara í Reykjavík“ Vilja sinna Íslendingum á Spáni betur Dregið úr hrinunni við Sýlingarfell Slapp við meiðsli á höfði og hrygg Leigan fyrir 100 fermetra hús í Grindavík 62.500 á mánuði Manni bjargað úr sjónum í nótt eftir að bátur hans sökk Um 800 börn bíða eftir leikskólaplássi í Reykjavík Meinleysisgrey sem séu lífríkinu afar mikilvæg Sjö smáskjálftar við Sýlingarfell og Veðurstofan fylgist vel með „Þetta reddast“ voru fyrstu orðin sem hann lærði Lögreglan þurfi nauðsynlega auknar rannsóknarheimildir Sjá meira