Kvarta undan vali verjenda og slælegum vinnubrögðum Samúel Karl Ólason skrifar 20. nóvember 2015 15:36 Afstaða hefur jafnvel fengið kvartanir þar sem fullyrt er að verjandi sé undir áhrifum vímuefna, bæði í dómssal og á lögmannastofu. Vísir/Vilhelm
Afstaða félag fanga og annarra áhugamanna um bætt fangelsismál og betrun, hafa sent Lögmannafélagi Íslands bréf vegna vals verjenda og slælegra vinnubragða, eins og það er orðað í bréfinu. Þá sé sakborningum útvegaður lögmaður sem sé ekki á svokölluðum bakvaktarlista Lögmannafélagsins. Að lögreglumenn hafi jafnvel beint samban við tiltekna lögmenn og að „örfáir útvaldir“ lögmenn fái meirihluta allra sakamála. Félagið óskar þess að Lögmannafélagið móti nýjar verklagsreglur um tilnefningu verjanda á þann veg að réttaröryggi verði tryggt og jafnræði ríki. Þar að auki verði stuðlað betur að því að lögmenn sem taki að sér sakamál hafi bæði reynslu og þekkingu til að tryggja hag sakbornings. Þar að auki kæmi til greina að fram færi stjórnsýsluúttekt á málinu. Því sendi Afstaða afrit af bréfinu til ýmissa lögregluembætta og yfirstjórnar lögreglumála og ákæruvalds. Dugi önnur úrræði áskilur félagiöð sér rétt til þess að beina málinu til umboðsmanns Alþingis.Hafa reglulega fengið kvartanir Í bréfinu, sem Guðmundur Ingi Þóroddsson, formaður Afstöðu, skrifar undir, segir að félaginu hafi reglulega fengið kvartanir í rúman áratug vegna slæmra vinnubragða tiltekinna lögmanna. Þær lúta að því að fangar eigi erfitt með að ná í lögmenn sína og þeir séu illa undirbúnir fyrir dómsmál. „Þá er einnig kvartað yfir því að lögmenn gleymi viðamiklum hlutum í tengslum við mál eða hafi ekki nægjanlega reynslu.“ Þar að auki segir í bréfi Afstöðu að jafnvel hafi borist einstaka kvartanir þar sem fullyrt er að verjandi sé undir áhrifum vímuefna, bæði í dómssal og á lögmannastofu. „Taka ber fram að reyndir og vel metnir verjendur virðast engin mál fá frá lögreglu eða í það minnsta sárafá.“ Afstaða telur það gríðarlegt hagsmuna- og réttindamál fyrir fanga að eiga auðvelt með að ná í lögmann sinn og að hann sé vel upplýstur um framgang máls þeirra. „Með því að ganga fram hjá vel skipulögðu og fyrirfram ákveðnu valferli hins óháða lögmannasamfélags er ekki aðeins stefnt í voða lögvörðu valfrelsi borgara á lögmanni heldur beinlínis vegið að stjórnarskrárvörðum réttindum sakbornings er lúta að frjálsu vali sakaði manns á verjanda úr hópi sjálfstæðra lögmanna sem algerlega eru óháðir handhöfum lögregluvalds.“
Mest lesið Viðreisn upp fyrir Sjálfstæðisflokk og Framsókn bætir við sig Innlent Bó kvaddur í hinsta sinn Innlent „Hún er skrifuð af mér“ Innlent Kosningapallborð fréttastofu: Glæný skoðanakönnun kynnt fyrir Hafnarfjörð Innlent Stefni í sömu átt og Svíþjóð Innlent Gripu til sinna ráða og settu Starlink í skólarútuna Innlent Kölluð út á efsta forgangi vegna báts í vanda á Kópaskeri Innlent Greiða hundruð þúsunda fyrir heimsókn Tinna til Íslands Innlent „Ég veit ekkert hvenær þeir komast aftur heim“ Innlent Helstu augnablikin úr útför Björgvins Halldórssonar Innlent Fleiri fréttir Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur „Það er mikið verið að suða“ Stefni í sömu átt og Svíþjóð Gripu til sinna ráða og settu Starlink í skólarútuna „Hún er skrifuð af mér“ Ísland stefni í sömu átt og Svíþjóð Fjórir í varðhaldi vegna Dettifossmálsins Rafgeymar gátu ekki fætt dælur þegar Ormurinn langi sökk Mega hjóla gegn einstefnu Greiða hundruð þúsunda fyrir heimsókn Tinna til Íslands Bein útsending: Oddvitar í Reykjavík á kosningafundi Viðskiptaráðs Viðreisn upp fyrir Sjálfstæðisflokk og Framsókn bætir við sig Leiðir áfram unga miðflokksmenn Batahorfur betri eftir umferðarslys við Skógarveg „Það var reynt að fá þá fyrr að verkinu“ Algengt að krafa sé gerð í sambandi um að deila stöðugt staðsetningu Verðbólgan hjaðnar og vandræði í Landeyjahöfn Halda til Svíþjóðar í afmælisveislu Atli og Sunna nýir fréttastjórar og Árni varafréttastjóri Kosningapallborð fréttastofu: Glæný skoðanakönnun kynnt fyrir Hafnarfjörð Sænska lögreglan reynir að uppræta „glæpamenn til leigu“ Systkinaforgangur og heimgreiðslur á lista margra framboða í Reykjavík „Mögulegt heimilisofbeldi“ reyndist tölvuleikur Kölluð út á efsta forgangi vegna báts í vanda á Kópaskeri Að óbreyttu muni umferðin halda áfram að þyngjast Hitaveitur gætu orðið veruleiki á Grænlandi „Ég veit ekkert hvenær þeir komast aftur heim“ Bó kvaddur í hinsta sinn Boða fjölgun flugferða á sama tíma og bátsferðir voru felldar niður Pílagrímaflug Air Atlanta á fullri ferð þrátt fyrir átök Sjá meira