Innlent

Líklegt að málið taki meira en sex mánuði

viktoría hermannsdóttir skrifar
Hér er Ásta með börnum sínum á flugvellinum áður en þau flugu út.
Hér er Ásta með börnum sínum á flugvellinum áður en þau flugu út. Fréttablaðið/Vilhelm
„Það eru líkur á að málið eigi eftir að dragast lengur en sex mánuði en það kemur í ljós á næstu tveimur vikum,“ segir Ásta Gunnlaugsdóttir, sem fór til Bandaríkjanna með börn sín tvö þann 14. janúar síðastliðinn.

Ástu var gert að afhenda barnsföður sínum börnin eftir að Hæstiréttur sneri við dómi Héraðsdóms Reykjaness sem hafði úrskurðað að það myndi stefna andlegri heilsu barnanna í hættu að taka þau úr umsjá móður þeirra. Á grundvelli Haag-samningsins var Ástu gert að snúa aftur til Bandaríkjanna þar sem málið yrði tekið fyrir.

Ásta er ekki með atvinnuleyfi meðan hún dvelur úti og treystir því á velvild vina og ættingja sem hafa safnað fyrir hana.

Ástu hefur verið úthlutað réttargæslumanni en fyrst verður gerð tilraun til sáttasamninga og segir Ásta líklegt að það verði í maí eða júní. Frá dagsetningu sáttasamninga þurfa réttarhöld að byrja innan 120 daga. Í samtali við Fréttablaðið í janúar sagðist hún óttast um velferð og öryggi barna sinna hjá föður þeirra. Eftir að þau fluttu heim hefðu þau tekið miklum framförum í þroska en börnin eru bæði með þroskafrávik.

„Dóttir mín er komin aftur með alls konar erfiða hegðun og hvorugt þeirra er á leikskóla eins og er og ég veit ekki hvenær eða hvort það gangi fyrir vorið,“ segir hún.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×