Innlent

Sýnileg löggæsla og eftirlit hefur ótvírætt skilað árangri

Atli Ísleifsson skrifar
Ekkert banaslys varð í umferðinni á höfuðborgarsvæðinu á árinu sem nú er liðið.
Ekkert banaslys varð í umferðinni á höfuðborgarsvæðinu á árinu sem nú er liðið. Vísir/Vilhelm
Fjórir létust í umferðarslysum á landinu á síðasta ári og hafa banaslys ekki við færri frá því að kerfisbundin skráning hófst árið 1966. Þetta kemur fram í Facebook-færslu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. „ Það er mjög ánægjuleg þróun, sem vonandi heldur áfram.“

Í færslunni segir að sé aðeins litið til höfuðborgarsvæðisins má nefna að þar varð ekkert banaslys í umferðinni á árinu sem nú er liðið. „Það eru afar ánægjuleg tíðindi og þarf að leita marga áratugi aftur í tímann eftir viðlíka fréttum úr umferðinni.

Undanfarin ár hefur að meðaltali orðið eitt umferðarslys alla daga ársins í umdæmi Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, en embættið hefur lagt mikla áherslu á sýnilega löggæslu þegar umferðarmál eru annars vegar. Það felst m.a. í því að fylgjast sérstaklega með umferð á fjölförnum gatnamótum og stofnbrautum á álagstímum. Þetta eru jafnframt svokallaðir svartblettir þar sem óhöpp og slys hafa verið tíð. Samhliða hefur verið fylgst með umferðarhraða í og við íbúðagötur á höfuðborgarsvæðinu með kerfisbundnum hætti.

Sýnileg löggæsla og eftirlit í umferðinni hefur ótvírætt skilað góðum árangri, en með samstilltu átaki allra er hægt að gera betur og fækka umferðarslysum enn frekar.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×