Erlendir tölvuþrjótar herja á íslensk fjármálafyrirtæki Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 8. október 2014 11:33 Vísir/Getty
Samtök fjármálafyrirtækja vilja vekja athygli á því að ný árásarhrina erlendra tölvuþrjóta á viðskiptavini fjármálafyrirtækja er hafin. Um er að ræða tölvupóstsendingar og í póstinum er tengill inn á sýndarvefsíðu sem sögð er vera netbanki viðkomandi fjármálafyrirtækis og viðtakendur hvattir til að innskrá sig.Samtök fjármálafyrirtækja ítreka að aðildarfélög SFF senda aldrei út póst þar sem farið er fram á að viðtakandi gefi upp auðkenni sín og vilja brýna fyrir viðskiptavinum sínum að gæta vel að sér ef þeir fá óskir um slíkt. Þá er einnig mikilvægt að viðskiptavinir skrái sig eingöngu inn í netbanka í gegnum vefforsíður viðkomandi fjármálafyrirtækja. Þessi árás sem nú stendur yfir nær til margra Evrópuríkja og eru íslensk fjármálafyrirtæki í samskiptum við fjármálafyrirtæki í öðrum löndum vegna hennar. Tölvupóstarnir sem nú eru í umferð eru frábrugnðir þeim fyrri að því leyti að íslenskan er skárri en áður en auk þess virðist árásin beinast frekar að fyrirtækjum en einstaklingum. Sennilegast er að þrjótarnir sækist frekar eftir að komast inn í netbanka lögaðila sem hafa heimildir til að milliafæra á erlenda reikninga. Á vef Samtaka fjármálafyrirtækja er að finna upplýsingar um öryggismál fyrir viðskiptavini sem og gátlista fyrir tölvuöryggi sem gott er að kynna sér. Gátlistann má finna hér.
Tengdar fréttir Nokkur þúsund urðu fyrir árás tölvuþrjóta Netárásir erlendis frá sýna þess merki að tölvuþrjótar vanda sig nú meira en áður –ekki síst við að koma gylliboðum sínum á framfæri á frambærilegri íslensku. Almenn snjallsímaeign gerir fólk berskjaldaðra fyrir árásum en áður var. 1. október 2014 07:15 Mest lesið Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag Innlent Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Innlent „Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ Innlent „Við verðum að fá fólk heim aftur“ Innlent Stórfelld líkamsárás og aðstoð mistúlkuð sem innbrot Innlent Inga kemur Ingó til varnar Innlent Ákærður fyrir banatilræði við Trump Erlent Fyrstu íslensku GPS-heiðlóurnar komnar heim Innlent „Komið þá með allt það sem gerðist síðast“ Innlent Óvenjulegu tímabili að ljúka Innlent Fleiri fréttir Stórfelld líkamsárás og aðstoð mistúlkuð sem innbrot „Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag „Við verðum að fá fólk heim aftur“ „Komið þá með allt það sem gerðist síðast“ Fyrstu íslensku GPS-heiðlóurnar komnar heim Harmleikurinn á Edition og umdeild bifreiðarstöð Óvenjulegu tímabili að ljúka Jón Pétur segir enga feðraveldisrembu í „árþúsunda náttúruvali“ Heimilt að nota rafrænt eftirlit í nálgunarbannsmálum „Það þarf að taka í handbremsuna strax“ „Var þetta einhver skets?“ Inga kemur Ingó til varnar Íbúar funda aftur um stöðu Kaffistofunnar Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Eden Mining vill ekki sjá málið fyrir dómstólum Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla „Mér finnst þetta ákaflega dapurleg framganga“ Sjö þúsund störf gætu verið unnin af gervigreind Vill hætta veiðum en græna ljós Bjarna gildi Hitafundur í utanríkismálanefnd og ráðherra boðar breytingar á hvalveiðilögum Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Beitir sér ekki sérstaklega fyrir því að spurningunni verði breytt Stjórnarþingmaður segir Hafró í bullandi pólitík Handteknu hafa komið áður við sögu hjá lögreglu Bein útsending: Kristrún svarar spurningum um þjóðaratkvæðagreiðslu Tveir handteknir í tengslum við stórfellda líkamsárás Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Sjá meira
Nokkur þúsund urðu fyrir árás tölvuþrjóta Netárásir erlendis frá sýna þess merki að tölvuþrjótar vanda sig nú meira en áður –ekki síst við að koma gylliboðum sínum á framfæri á frambærilegri íslensku. Almenn snjallsímaeign gerir fólk berskjaldaðra fyrir árásum en áður var. 1. október 2014 07:15