Vinna að nýju frumvarpi um fiskveiðistjórnun Stefán Árni Pálsson skrifar 8. október 2014 16:09 Sigurður Ingi. visir/valli
Sigurður Ingi Jóhannsson, sjávarútvegsráðherra, greindi frá því á Sjávarútvegsdeginum sem fram fór í Hörpu í morgun að unnið væri að gerð nýs frumvarps um fiskveiðistjórnun. Það feli í sér að gerðir verða samningar við útgerðarfélög um afnot af auðlindinni til ákveðins tíma gegn greiðslu. Þetta kemur fram í frétt á síðu Samtaka atvinnulífsins. „Gjaldið má ekki vera of hátt svo það hamli fjárfestingu og dragi úr samkeppnishæfni sjávarútvegsfyrirtækja sem eru í harðri samkeppni á alþjóðlegum markaði. En heldur ekki það lágt að fólki finnist sem verið sé að gefa verðmæti,“ sagði Sigurður Ingi. Sigurður sagði í setningarávarpi sínu sjávarútveg hryggjarstykkið í íslensku efnahagslífi. Það væri hagsmunamál allra, ekki síst þeirra sem búi úti á landi, að sjávarútvegur sé rekinn með arðbærum hætti þar sem það efli byggðir landsins. Sigurður Ingi talaði því næst um afkomu greinarinnar. „Afkoma sjávarútvegsfyrirtækja er mér hugleikin og hefur verið um alllangt skeið. Það hefur verið eitt stærsta verkefnið í ráðuneyti sjávarútvegs að semja nýtt fiskveiðistjórnunarfrumvarp og það hefur ekki gengið alveg þrautalaust. Ein ástæða þess er einmitt afkoma sjávarútvegsfyrirtækja.“
Mest lesið Féllust á að gera ekki lítið úr tilfinningum hinna eða ræða persónuleg mál Innlent Icelandair og flugmenn komnir í fjölmiðlabann Innlent Tjörn, skautasvell, íbúðir og útivistarsvæði rísi á gjörbreyttu svæði Innlent Flugöryggismál að Reykjavík nýtist sem varavöllur Airbus Innlent Yfir hundrað óboðnir gestir í stúdentsveislu Innlent Kynntu nýjan meirihluta í Hafnarfirði Innlent Hoppandi reiðir vegna framgöngu Hallgríms í þætti um Davíð Innlent Samfylking og Sjálfstæðisflokkur í samstarf í Suðurnesjabæ Innlent Ari ekkert heyrt í Hildi síðan á föstudag Innlent Lögðu hald á 9mm hálfsjálfvirka skammbyssu Innlent Fleiri fréttir Féllust á að gera ekki lítið úr tilfinningum hinna eða ræða persónuleg mál Tjörn, skautasvell, íbúðir og útivistarsvæði rísi á gjörbreyttu svæði Flugöryggismál að Reykjavík nýtist sem varavöllur Airbus Samfylking og Sjálfstæðisflokkur í samstarf í Suðurnesjabæ Icelandair og flugmenn komnir í fjölmiðlabann Kynntu nýjan meirihluta í Hafnarfirði Ferðamenn stundum slegið tvær flugur í einu höggi Nýr bæjarstjóri, morðhótanir og afar samrýmdar systur Þórður nýr bæjarstjóri Hafnarfjarðar Bein útsending: Kynna meirihlutasáttmála og nýjan bæjarstjóra Hafnarfjarðar Ari ekkert heyrt í Hildi síðan á föstudag Lögðu hald á 9mm hálfsjálfvirka skammbyssu Mikil spenna í veðurkortunum Þriggja bíla árekstur á Reykjanesbraut og miklar tafir Taldi kosningarnar ógildar vegna ógilds kjörseðils Yfir hundrað óboðnir gestir í stúdentsveislu Telja frumvarp um sjókvíaeldi stangast á við gildandi lög Vakta hafsvæðið með ESB-dróna frá Hornafirði Sannfærður um að finna eitthvað spennandi að gera Heiða greinir frá morðhótunum Selja húsnæðið vegna andstöðu íbúa Komu vélarvana fiskibát til hjálpar Sátt um að klára ESB-umræðu í tæka tíð Sátt á þingi um þjóðaratkvæði og beðið eftir fréttum úr borginni Bein útsending: Borgarfulltrúar kveðja „Af hverju tekur þetta svona langan tíma?“ Afbókuðu hantaveiruskipið í maí en enn væntanlegt í ágúst Hoppandi reiðir vegna framgöngu Hallgríms í þætti um Davíð Hafi ekki hætt þrátt fyrir ítrekuð högg frá konunni Matvælastofnun kærir hótanir til lögreglu Sjá meira