Friðarsúlan tendruð í blíðskaparviðri Atli Ísleifsson skrifar 9. október 2014 21:02 Friðarsúlan í kvöld. Vísir / Vilhelm
Friðarsúlan var tendruð í Viðey klukkan 20 í kvöld. Þetta er í áttunda árið í röð sem Friðarsúlan er tendruð á afmælisdegi Johns Lennon, 9. október.Í tilkynningu frá Höfuðborgarstofu segir að rúmlega 2.100 manns hafi verið staddir í Viðey þegar Friðarsúlan var tendruð og hafa aldrei verið fleiri. Dagskrá hófst með tónlist klukkan 19 og var Friðarsúlan svo tendruð klukkustund síðar. „Yoko Ono bauð upp á fríar siglingar út í Viðey líkt og fyrri ár og hafa greinilega margir ákveðið að nýta sér þann kost. Yoko Ono var hæstánægð og fór hún fögrum orðum um Ísland fyrr í dag þegar hún veitti viðurkenningar úr friðarsjóðnum Lennon Ono Grant For Peace á athöfn í Hörpu.“ Friðarsúlan er tendruð ár hvert á fæðingardegi John Lennon, 9. október, og lýsir hún upp kvöldhimininn fram til 8. desember en þann dag dó Lennon árið 1980. Í ár hefði hann orðið 74 ára gamall. Yoko Ono segist hafa fengið hugmyndina að friðarsúlu árið 1967. Á stalli súlunnar eru grafin orðin „hugsa sér frið“ eða „imagine peace“ á 24 tungumálum, þar á meðal á íslensku, ensku, þýsku, japönsku og hebresku. Enska heitið er vísun í lagið „Imagine“ eftir John Lennon.Yoko Ono hélt tölu áður en tendrað var á Friðarsúlunni.Vísir/Bjarni
Mest lesið Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Keyrði inn í mannfjölda norður af Sydney Erlent Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Innlent Geri málið tortryggilegt að neita að svara Innlent Fleiri fréttir Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Sjá meira