Innlent

Ellefu konur sóttu um en engin komst í lokahópinn

Jóhanna Margrét Einarsdóttir skrifar
Af öllum lögreglumönnum í landinu eru um þrettán prósent konur. Mörgum þeirra finnst þær hafa átt erfitt uppdráttar innan lögreglunnar.
Fréttablaðið/Anton
Af öllum lögreglumönnum í landinu eru um þrettán prósent konur. Mörgum þeirra finnst þær hafa átt erfitt uppdráttar innan lögreglunnar. Fréttablaðið/Anton
Ellefu konur og 40 karlar sóttu um þrjár stöður aðstoðaryfirlögregluþjóna hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Í hæfisnefnd sem úrskurðaði um hæfi umsækjenda sátu Hörður Jóhannesson aðstoðarlögreglustjóri, Egill Bjarnason yfirlögregluþjónn og Sigríður Hrefna Jónsdóttir, mannauðsstjóri lögreglunnar.

Sigríður Hrefna segir að matið hafi byggst á þeim kröfum sem gerðar eru til aðstoðaryfirlögregluþjóna samkvæmt reglugerð.

„Embætti lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu er stórt og aðstoðaryfirlögregluþjónar eru stöðvarstjórar og yfirmenn á vinnustöðum þar sem starfa 30 til 50 manns,“ segir Sigríður Hrefna.

Hún segir að tekið hafi verið mið af því við ráðningu aðstoðaryfirlögregluþjónanna að þeir hefðu víðtæka stjórnunarreynslu. Þá hafi hæfisnefndin tekið tillit til samskiptahæfni, skipulagshæfileika, frumkvæðis, sjálfstæðis í vinnubrögðum og umsagna.

„Allir sem sóttu um uppfylltu grunnhæfisskilyrði sem sett voru. Það er þeir höfðu lokið prófi frá lögregluskólanum og starfað í fimm ár í lögreglunni,“ segir Sigríður Hrefna.

Á fyrsta stigi ráðningarferlisins var fækkað niður í 25. Þar af voru þrjár konur og voru allir boðaðir í viðtöl.

Að því loknu var fækkað niður í tíu, þá var ein kona orðin eftir í hópnum. Umsækjendur voru aftur boðaðir í viðtal og enn var fækkað í hópnum og nú niður í fimm. Engin kona var í lokahópnum en aðstoðaryfirlögregluþjónarnir voru ráðnir úr honum.

„Það var mjög hæft fólk sem sótti um. Ég skil vel reiði kvenna yfir því að engin kona var ráðin en hæfnismatið réð. Í framtíðinni stendur upp á stjórnendur að gera áætlun um hvernig hægt sé að styrkja konur í lögreglunni. Slíkt gerist ekki á einum degi, það er langhlaup,“ segir Sigríður Hrefna.

Í október 2013 var kynnt skýrsla um vinnumenningu innan lögreglunnar. Í skýrslunni, sem byggð er á könnunum og viðtölum við lögreglumenn, kemur meðal annars fram að konur telja sig ekki hafa aðgang að efstu starfsstigum lögreglunnar, og að þær séu af samstarfsmönnum sínum taldar síður hæfar til lögreglustarfa en karlar. Embætti Ríkislögreglustjóra ákvað í kjölfar skýrslunnar að bregðast við.

Eins og kom fram í Fréttablaðinu í gær er stefnt að því að boða lögreglustjóra landsins á námskeið síðar á árinu þar sem sérstök áhersla verður lögð á jafnréttismál. Þá ætlar Ríkislögreglustjóri að leggja áherslu á að bæta hag kvenna í neðri þrepum lögreglunnar.


Tengdar fréttir

Lögreglustjórar á námskeið um jafnréttismál

"Embætti ríkislögreglustjóra stefnir að því boða alla lögreglustjóra landsins á námskeið um fagleg vinnubrögð og gagnsæi við skipanir, setningar og ráðningar í lögregluna,“ segir Finnborg Salome Steinþórsdóttir, jafnréttisfulltrúi hjá embættinu

Þrír nýir aðstoðaryfirlögregluþjónar

Ásgeir Þór Ásgeirsson, Jóhann Karl Þórisson og Margeir Sveinsson eru nýir aðstoðaryfirlögregluþjónar hjá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, en setning þeirra í embætti er til eins árs.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×