Arsenal fór létt með Man. City 10. ágúst 2014 13:35 Santi Cazorla skorar fyrir Arsenal. vísir/getty
Bikarmeistarar Arsenal unnu öruggan sigur á Englandsmeisturum Manchester City, 3-0, í árlegum leik meistaranna um Samfélagsskjöldinn á Englandi. Arsenal var miklu betri aðilinn nær allan leikinn og tók forystuna á 21. mínútu með marki Spánverjans Santi Cazorla sem skoraði með hnitmiðuðu skoti fyrir utan teig.Aaron Ramsey, sem var frábær fyrir Arsenal fyrri hluta tímabils í fyrra, bætti við öðru marki Arsenal á 42. mínútu með fallegu skoti úr teignum eftir að hafa fíflað varnarmenn meistaranna. Franski framherjinn Oliver Giroud kom inn á sem varamaður í seinni hálfleik og innsiglaði sigur Arsenal með glæsilegu marki á 60. mínútu, en skot hans fyrir utan teig fór í boga yfir Willy Caballero í marki Manchester City, 3-0. Eftir að hafa ekki unnið titil í níu ár er Arsenal nú búið að vinna bikarinn og Samfélagsskjöldinn með þriggja mánaða millibili, en Arsenal-liðið leit vel út í leiknum í dag.Man. City 0 - 3 Arsenal 15.52 Leik lokið! 15.45 Leikurinn að fjara út. Rólegt yfir báðum liðum sem bíða eftir að dómarinn flauti til leiksloka. 15.36 Tólf mínútur eftir af venjulegum leiktíma. City-menn sækja meira en skapa sér ekki neitt. Arsenal miklu betra í dag. 15.30 Fernando reynir laust skot fyrir utan teig sem fer af varnarmanni og í horn. Szczesny grípur boltann auðveldlega. 15.25 Flamini kemur inn á hjá Arsenal fyrir Jack Wilshere. Stefnir svo sannarlega í annan bikar, eða skjöld, hjá Wenger og lærisveinum á nokkrum mánuðum. 15.18 MARK!!! Arsenal skorar, 0-3. Skytturnar eru að ganga frá Englandsmeisturunum. Frakkinn Oliver Giroud, sem kom inn á sem varamaður, skorar með skoti fyrir utan teig sem fer yfir Caballero í markinu á 60. mínútu. 15.10 Stevan Jovetic kemst í dauðafæri fyrir Manchester City upp við markstöngina vinstra megin hjá Arsenal, en í hinum teignum vill Arsenal fá víti þegar Vincent Kompany virðist fá boltann í hendina. 15.01 Seinni hálfleikur er hafinn. 14.45 Hálfleikur 14.42 MARK!!! Arsenal skorar, 0-2. Walesverjinn Aaron Ramsey er búinn að finna markaskóna á ný. Hann skorar með fallegi skoti úr teignum eftir góða sókn Arsenal. 14.27 Arsenal lítur vel út. Sanogo er hársbreidd frá því að bæta við öðru marki, en skot hans fer rétt framhjá markinu. Varnarleikurinn er traustur hjá þeim rauðu og yfirvegun yfir spilinu. 14.21 MARK!!! Arsenal skorar, 0-1. Spánverjinn Santi Cazorla býr sér til skotpláss fyrir utan teig með fallegri hreyfingu og smyr boltann í fjærhornið. Fallegt mark. 14.19 Arsenal-menn eru mun betri og sækja stíft að marki City. Skapa sér þó lítið af færum. 14.14 Samir Nasri með skot í teignum sem virðist fara í hönd Debuchy, en vítaspyrna hefði verið strangur dómur. 14.08 Nýi maðurinn Mathieu Debuchy með snyrtilega fyrirgjöf frá hægri sem skölluð er frá áður en Sanogo kemst í boltann. 14.06 Þetta byrjar nokkuð rólega. Hvorugt liðið fengið færi, en Arsenal á nokkuð hættulega sókn sem City-menn stöðva. 14.00 Leikurinn er hafinn. 13.52 Liðin eru mætt út á gras og rífa í spaðann á einhverjum herramönnum. Þjóðsöngurinn er spilaður. Allt er að verða klárt. 13.42 Alexis Sánchez er í byrjunarliði Arsenal í dag, en hann kostaði félagið 30 milljónir punda. Þá ver Willy Caballero mark City en hann kom til liðsins frá Málaga á Spáni. 13.40 Velkomin. Hér verður fylgst með leik Manchester City og Arsenal í leiknum um Samfélagsskjöldinn.Arsenal: Szczesny, Debuchy, Koscielny, Chambers, Gibbs, Arteta, Wilshere, Ramsey, Alexis Sánchez, Cazorla, SanogoVaramenn: Martinez, Monreal, Flamini, Campbell, Rosicky, Oxlade-Chamberlain, Giroud.Man City: Caballero, Clichy, Boyata, Nastasic, Kolarov, Navas, Fernando, Toure, Nasri, Jovetic, Dzeko.Varamenn: Hart, Richards, Rekik, Milner, Sinclair, Silva, Zuculini.
Enski boltinn Mest lesið Úr húsvarðarstarfi í atvinnumennsku Handbolti Slys á æfingu fyrir fjórum árum er enn að eyðileggja fyrir Söru Sport Rooney segir United losa sig við nær allan leikmannahópinn Enski boltinn Fabiana brýtur blað í sögunni áður en Jói Kalli tekur við Fótbolti Man. United sagði konunum ekki frá ákvörðuninni Enski boltinn Blaðamannafundur fyrir úrslitaleik Vals í Evrópubikarnum Handbolti Neitaði að svara spurningum um skilnaðinn Sport Einbeitir sér að því að komast í NBA frekar en að spila með pabba sínum Körfubolti Þriðji markahæsti landsliðsmaðurinn leggur skóna á hilluna Fótbolti Mætti á þing FIFA úr fangaklefanum Fótbolti Fleiri fréttir Tímabilið búið hjá Ederson og City treystir á Ortega í síðustu tveimur leikjunum Chelsea sló spjaldametið í deildinni Hjólaði frá Mongólíu og grét af gleði þegar hann hitti hetjuna Umboðsmaður Olise dæmdur í sex mánaða bann Rashford reiður og reifst við áhorfanda fyrir leik Man. United sagði konunum ekki frá ákvörðuninni Rooney segir United losa sig við nær allan leikmannahópinn Gerir sér grein fyrir erfiðu tímabili: „Þið eruð bestu stuðningsmenn í heimi“ United lyfti sér upp að hlið Newcastle Evrópudraumurinn lifir góðu lífi eftir fjórða sigurinn í röð Everton boðið neyðarlán til að klára nýja heimavöllinn Félagaskiptaglugganum lokað fyrr en vanalega í sumar Stjóri Spurs ósáttur við viðhorfið: „Þetta er utan félagsins, innan þess, alls staðar“ Segir að Ortega hafi unnið titilinn fyrir City Ten Hag vísar gagnrýni Rooneys til föðurhúsanna United íhugar að ráða stjóra Ipswich sem eftirmann Ten Hags Telja að Bruno verði áfram á Old Trafford Sagði sína menn hafa þurft að þjást og hrósaði varamarkverðinum Varamarkmaðurinn og Håland hetjurnar: Man City á toppinn fyrir lokaumferðina Emirates verður aðalheimavöllur Arsenal á næstu leiktíð Guardiola: Arsenal verður meistari ef við vinnum ekki Tottenham Var með 0,99 í xG en skoraði samt ekki Varane kveður United eftir tímabilið Fernandes íhugar að stökkva frá borði Hrósaði karakter leikmanna eftir að liðið henti frá sér unnum leik Liverpool henti frá sér sigrinum í síðasta útileik Klopp Kröfðu Bayern um 100 milljónir fyrir þjálfarann Sú markahæsta í sögu ensku deildarinnar yfirgefur Arsenal og fer væntanlega til City Foss á Old Trafford leikvanginum í gær Saka Casemiro um leti: „Hreyfðu fæturna á þér“ Sjá meira