Þórður var stjarna út af fyrir sig, segir Kári, en hann var allt í senn sægarpur, refaskytta, listmálari, rithöfundur og skáld, mannvinur, náttúruverndarsinni og sagnaþulur. „Hann var eiginlega eins og Björk síns tíma,“ segir Kári en Þórður hafði mikil áhrif á ýmsa samtímamenn sína svo sem Gunnar Dal heimspeking, Dieter Roth myndlistarmann og Halldór Kiljan Laxness, en margar sögur sem Þórður sagði honum eitt sinn rötuðu í Kristnihald undir jökli.

„Hann myndi segja: „Það er alveg satt,“ en það er út af því að hann setti sína eigin snúninga á sögur sínar. Hann var sagnfræðingur „par excellence“ síns tíma.“
Að sögn Kára eru ýmsar upptökur í myndinni sem aldrei hafa heyrst eða sést áður. „Við náðum að safna gullmolum og gersemum sem glæða þessa mynd miklu lífi en nærvera hans skiptir öllu máli. Markmiðið var alltaf að leyfa Þórði sjálfum að segja sögu sína.“