Lífið

Muck samdi við bandarískan risa

Þórður Ingi Jónsson skrifar
Fokking pönkrokkdæmi - Muck hefur skilið hismið frá kjarnanum á nýju plötunni.
Fokking pönkrokkdæmi - Muck hefur skilið hismið frá kjarnanum á nýju plötunni.
„Það hefur verið dálítið langt ferli að græja þetta,“ segir Ási Þórðarson, trommari harðkjarnasveitarinnar Muck sem er nú komin á samning hjá bandaríska útgáfufyrirtækinu Prosthetic Records.

„Við höfum látið lítið fyrir okkur fara seinasta árið því við höfum verið að taka upp nýja plötu og senda pósta á hin og þessi fyrirtæki. Að lokum vorum við farnir að pæla í að gefa plötuna út sjálfir en þá fengum við póst frá gaurnum sem rekur London-skrifstofu Prosthetic. Hann dýrkaði þetta og sagðist vera geðveikt til í að henda út plötu,“ segir Ási en platan umrædda kemur út á heimsvísu í febrúar.

Prosthetic leggur höfuðáherslu á metal en fyrirtækið hefur gefið út ýmsa risa í metalheiminum eins og 1349, Gojira og Lamb of God. „Þetta er helvíti fínt enda hefur verið langur aðdragandi og við getum loksins farið að segja frá þessu.“

Nýja plata Muck er pönkplata og er að sögn Ása harðari, hraðari og einfaldari en sú fyrri, Slaves. „Þetta er bara fokking pönkrokkdæmi. Það mætti segja að við séum búnir að skilja hismið frá kjarnanum. Við erum orðnir aðeins skýrari í því sem við viljum gera og platan er skýrt dæmi um það. Platan veit hvað hún er.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.