Umdeild bók á svið 24. apríl 2014 18:00 leikstjórinn Una Þorleifsdóttir segir verkið vera skáldskap og að hún nálgist það sem slíkan. Fréttablaðið/pjetur „
Við byrjum að æfa á mánudaginn,“ segir Una Þorleifsdóttir, leikstjóri verksins Konan við 1000°, sem byggt er á samnefndri skáldsögu Hallgríms Helgasonar. „Verkið verður sett á svið í haust, nánar tiltekið í september,“ segir Una jafnframt um annað verkið sem hún leikstýrir í Þjóðleikhúsinu, en hún leikstýrði Harmsögu eftir Mikael Torfason á síðasta ári við góðan orðstír. Í verkinu koma til með að leika þau Guðrún Gísladóttir, Baldur Trausti Hreinsson, Edda Arnljótsdóttir, Edda Björg Eyjólfsdóttir, Elma Stefanía Ágústsdóttir og Snorri Engilbertsson. Bók Hallgríms var tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna árið 2011, og til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs árið 2012, en hún var nokkuð umdeild. Bókin byggist að hluta á ævi Brynhildar Georgíu Björnsson, sonardóttur Sveins Björnssonar, sem var fyrsti forseti Íslands. Í bókinni heitir aðalsöguhetjan Herbjörg María Björnsson og Hallgrímur birtir í bókinni formála þar sem hann biður lesendur að blanda þessu tvennu ekki saman því bókin hans sé skáldskapur. Í kjölfar útgáfu bókarinnar ritaði dóttir Brynhildar grein í Fréttablaðinu þar sem hún lýsti yfir óánægju með bókina og framkomu Hallgríms í garð fjölskyldu sinnar. „Þetta er náttúrulega skáldskapur og það er þannig sem ég nálgast þetta, þó að sagan eigi samsvörun í sögu þessarar konu. Fyrir mér er þetta ekki tilraun til þess að segja sögu þessarar fjölskyldu, heldur fólks sem finnur sig í þessum aðstæðum,“ útskýrir Una og bætir við að hún hlakki mikið til samstarfsins við Hallgrím. Hallgrímur tekur í sama streng og segist ekki hafa breytt áherslum vegna gagnrýninnar. „Maður breytir ekki bókum eftir á, leikgerð er meira spurning um val. Þetta snýst um á hvað maður leggur áherslu. Bókin er löng og mikil, og það þarf að stytta leiðir, færa kannski hluti til og stokka upp.“ Hann bætir við að hann hafi þegar skrifað nokkrar útgáfur af leikgerðinni. „Á mánudaginn byrjum við að lesa leikgerðina saman, hópurinn, og komum til með að móta hana áfram,“ segir hann að lokum. olof@frettabladid.is
Mest lesið Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Lífið „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Lífið Lauren Bennett látin 37 ára að aldri Lífið Harry Styles setti heimsmet Lífið Það allra besta að gráta í gufu Lífið Geirvörtur og latex vekja athygli í París Tíska og hönnun Listabarn á leiðinni Lífið Stjörnulífið: Bátsferðir og brjóst Lífið Birtu fyrstu myndina af Mette-Marit eftir aðgerðina Lífið Baðst afsökunar á að hafa sagst vilja ríða Minogue Lífið Fleiri fréttir „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Harry Styles setti heimsmet Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Það allra besta að gráta í gufu Lauren Bennett látin 37 ára að aldri Listabarn á leiðinni Kenningin um útskiptin miklu sem umbreytti vestrænum stjórnmálum Snæfríður og Högni selja útsýnisíbúð í 101 Baðst afsökunar á að hafa sagst vilja ríða Minogue Pétur Jóhann á von á öðru barnabarni Birtu fyrstu myndina af Mette-Marit eftir aðgerðina Stjörnulífið: Bátsferðir og brjóst Rauðhærðasti Íslendingurinn fundinn Stjörnum prýddur gestalisti Swift og Kelce Krakkatía vikunnar: Tindur, stríð og letibikkja Melabúðin fagnar sjötíu árum „Þú ert greinilega manneskja sem hefur strögglað mikið andlega“ „Það er gaman að gera erfiða hluti“ Taylor Swift og Travis Kelce eru gift Eins og að vera með kláða sem hverfur aldrei „Erum enn að ná utan um allt sem gerðist“ Fréttatía vikunnar: EBU, aftaka og Love Island „Klukkan er fimm einhvers staðar“ „Þegar þið eignist ykkar fyrsta barn, má ég þá fá það?“ Snæddi með furstanum af Mónakó Kyssti ekki Maguire heldur tottaði rafrettu Allir og amma þeirra á Ítalíu Brúðkaupshátíð Taylor Swift og Travis Kelce hafin Bubbi, Herra og þeir allra rauðhærðustu á Írskum dögum Helga Þóra og Óli Sig ástfangin á Grikklandi Sjá meira