Engin tvö Frjálsmen eins Sólveig Gísladóttir skrifar 24. febrúar 2014 12:00 Erla viðar að sér perlum úr ýmsum áttum og leggur mikla áherslu á að hafa úr sem mestu að velja. vísir/GVA
Erla Sigurlaug Sigurðardóttir perlar hálsmen undir nafninu Frjálsmen. Innlásturinn fær hún meðal annars frá grænlensku og afrísku perluskrauti. Nafnið Frjálsmen varð til þegar ég var að hekla hálsmen fyrir nokkrum árum. Útkoman var mismunandi í hvert sinn enda notaði ég aldrei uppskrift. Halldóra frænka mín kom með hugmyndina að þessu nafni og mér fannst það skemmtilegt enda rýmar Frjálsmen við hálsmen og lýsir einnig þeirri tilfinningu sem ég vil vekja,“ segir Erla sem starfar í markaðsdeild Icelandair Hotels en nýtir flestar lausar stundir til handavinnu. „Ég verð alltaf að vera með einhver hliðarverkefni,“ segir Erla sem gefið hefur út tvær bækur með frænku sinni, Prjónaperlur og Fleiri prjónaperlur. Erla heklaði mikið og seldi, en hætti því um tíma. „Það má eiginlega segja að ég hafi heklað yfir mig,“ segir hún glettin en þá tók líka við nýr kafli er hún flutti til Ástralíu í nám. Í haust fylltist hún andagift á ný en nú eiga perlur hug hennar allan. „Það tók mig dálítinn tíma að finna út úr því hvernig best væri að hnýta perlurnar saman og það útheimti mikla þolinmæði,“ segir hún og hlær. Aðferðin sem Erla notar er heimatilbúin. „Það eru margir að þræða perlur upp á band en mig langaði að gera eitthvað öðruvísi, enda er það mitt mottó í lífinu að gera það skemmtilegt.“ Innblásturinn að hönnuninni fær hún meðal annars frá klassísku grænlensku og afrísku perluskrauti. Erla segir frelsið mikið þegar kemur að því að hanna menin. „Perlurnar eru mismunandi á lit og stærð og með fjölbreyttri áferð, vaxaðar, lakkaðar og bæsaðar,“ lýsir hún og bætir við að ekkert hálsmen verði í raun alveg eins og það næsta.Fleiri upplýsingar um Frjálsmen Erlu má finna á Facebook en ekki er langt í að menin verði að finna í helstu hönnunarverslunum.
Mest lesið Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Lífið Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Lífið The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Lífið Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Lífið Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum Lífið Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Lífið Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Lífið Qualley og Antonoff í sundur Lífið Hulda Hákon, Jón Óskar og Krassasig á ListaVestrinu Menning „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Lífið Fleiri fréttir Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Qualley og Antonoff í sundur Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Megas er látinn Guðrún Sóley gengin út „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Harry Styles setti heimsmet Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Það allra besta að gráta í gufu Lauren Bennett látin 37 ára að aldri Listabarn á leiðinni Kenningin um útskiptin miklu sem umbreytti vestrænum stjórnmálum Snæfríður og Högni selja útsýnisíbúð í 101 Baðst afsökunar á að hafa sagst vilja ríða Minogue Pétur Jóhann á von á öðru barnabarni Birtu fyrstu myndina af Mette-Marit eftir aðgerðina Stjörnulífið: Bátsferðir og brjóst Rauðhærðasti Íslendingurinn fundinn Stjörnum prýddur gestalisti Swift og Kelce Krakkatía vikunnar: Tindur, stríð og letibikkja Melabúðin fagnar sjötíu árum „Þú ert greinilega manneskja sem hefur strögglað mikið andlega“ „Það er gaman að gera erfiða hluti“ Sjá meira