Innlent

Gerir umhverfismat um eigin verkefni

Sveinn Arnarsson skrifar
Forstjóri Mannvits segir ekki hægt að gera mat á umhverfisáhrifum öðru vísi en faglega.
Forstjóri Mannvits segir ekki hægt að gera mat á umhverfisáhrifum öðru vísi en faglega. fréttablaðið/gva
Frummatsskýrsla um umhverfisáhrif kísilmálmverksmiðju Thorsil ehf., sem nú liggur til kynningar hjá Skipulagsstofnun, var gerð af fyrirtækinu Mannviti hf. Mannvit og Thorsil skrifuðu undir samkomulag í janúar síðastliðnum um hönnun kísilmálmverksmiðjunnar. „Óneitanlega dregur þetta úr trúverðugleika matsins,“ segir Guðmundur Ingi Guðbrandsson, framkvæmdastjóri Landverndar.

Mannvit og Thorsil skrifuðu þann 10. janúar undir samstarfssamning um hönnun kísilmálmverksmiðju Thorsil í Helguvík. Verðmæti samningsins var sagt rúmar 500 milljónir króna í tilkynningu sem fyrirtækin sendu frá sér. Um þrjú hundruð manns koma til með að starfa í verksmiðjunni og er stefnan sett á að framleiðsla geti hafist í lok árs 2016. Það er því hagur beggja fyrirtækja að kísilmálmverksmiðjan rísi í Helguvík.

Samkvæmt upplýsingum frá Skipulagsstofnun er ekkert í lögum sem bannar það að sami aðilinn sjái um hönnun verksmiðjunnar og geri frummat á umhverfisáhrifum hennar. Lögin eru byggð á Evróputilskipun og er ekki tilgreint í lögum hverjir eigi að framkvæma mat á umhverfisáhrifum.

Guðmundur Ingi Guðbrandsson Líf- og umhverfisfræðingur
Eyjólfur Árni Rafnsson, forstjóri Mannvits, vísar alfarið á bug að óeðlilega sé staðið að málum. „Við höfum ákveðið ferli sem er bundið í lög. Það ferli gerir það að verkum að mat á umhverfisáhrifum er ekki hægt að gera öðru vísi en faglega. Þetta opinbera ferli tíðkast alls staðar annars staðar sem ég þekki til. Allir aðilar vinna verkið samkvæmt bestu faglegu kunnáttu sem til er,“ segir Eyjólfur.

Guðmundur Ingi bendir á að þarna þurfi að breyta lögunum þannig að trúverðugleiki mats á umhverfisáhrifum sé hafinn yfir allan vafa.

„Þegar fyrirtæki gera mat á umhverfisáhrifum getur það dregið úr trúverðugleika þegar fyrirtækin eru fjárhagslega háð því að eiga viðskipti við framkvæmdaaðilann. Þetta tilvik er gróft dæmi þess hvernig verkfræðifyrirtæki er stórkostlega háð framkvæmdaaðilanum og dregur úr trúverðugleika matsins því hagsmunir Mannvits eru að matið komi sem best út. Einnig efast ég um að verkfræðifyrirtækið vilji setja sig í þá stöðu að hægt sé að vefengja niðurstöður matsins vegna þessara tengsla.“

Frummatsskýrslan liggur nú frammi til umsagnar og er hægt að leggja fram athugasemdir til 5. desember næstkomandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×