Innlent

Hálfur milljarður til viðhalds flugvalla

Heimir Már Pétursson skrifar
Meirihluti fjárlaganefndar leggur til aukningu framlaga til ýmissa málaflokka upp á einn og hálfan milljarð króna, til viðbótar við þá aukningu framlaga sem ríkisstjórnin lagði til í vikunni. Mestu munar um hálfan milljarð til viðhalds flugvalla innanlands.

Ríkisstjórnin lagði til aukin framlög til nokkurra málaflokka upp á rúma 2,1 milljarð á fjárlögum næsta árs eins og greint var frá í vikunni, aðallega til heilbrigðis- og menntamála. Fjárlaganefnd hefur undanfarna daga farið yfir fjárlagafrumvarpið og í dag skilaði meirihluti nefndarinnar inn tillögum sínum.

„Stóru tíðindin eru þau að fjárlaganefnd fékk svigrúm. Við erum að auka í gjöldin upp á rúmlega einn og hálfan milljarð sem nefnd. Því það er jú okkar hlutverk að taka á móti sveitarfélögum og öðrum gestum á haustin og fram á vetur,“ segir Vigdís Hauksdóttir formaður fjárlaganefndar.

Samanlagðar tillögur meirihluta fjárlaganefndar og ríkisstjórnar gera því ráð fyrir að útgjöld ríkisins á næsta ári verði aukin um hátt í fjóra milljarða umfram það sem gert er ráð fyrir í fjárlagafrumvarpinu.

Lítið sem ekkert fjármagn hefur fengist til rekstrar og viðhalds flugvalla innanlands á undanförnum árum, m.a. til stækkunar flughlaðs á Akureyrarflugvelli. En nú verður breyting þar á því Isavia fær ríflega það sem beðið er um í fjárlögum næsta árs.

„Og ber þar hæst að við ætlum að leggja pening í það að fara í stórkostlegar endurbætur á flugvöllum úti á landi. Við leggjum til 170 milljón króna hærra framlag til Vegagerðarinnar,“ segir Vigdís.

Um 500 milljónir fara til viðhalds flugvalla og 300 milljónir til ljósleiðaravæðingar landsbyggðarinnar.

Þá verða framlög til rannsókna á ferðamannastöðum aukin um 60 milljónir, Bændaskólans á Hvanneyri um 55 milljónir, Kvikmyndasjóðs um 50 milljónir, sem og framlög til hjúkrunarheimila og kirkjunnar. Framlög til hafnarinnar í Þorlákshöfn og Háskólans á Hólum aukast 40 milljónir, háskólans á Akureyri um 30 milljónir, til skattrannsókna um 26 milljónir og Miðstöð foreldra og barna, Íslenska óperan og fangelsin á Sogni og Litla hrauni fá aukin framlög upp á 20 milljónir króna hver.

Gangið þið eitthvað á þann afgang sem lagt var upp með?

„Nei. Hann minnkaði örlítið afgangurinn hjá okkur. En við einmitt vorum með það markmið í fjárlagavinnunni að það yrði ekki gengið á þennan afgang. Það er ákveðið „signal“ sem við erum að senda að eyðslan fari ekki með fjárlögin í mínus,“ segir Vigdís Hauksdóttir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×