Nú tekur daginn að lengja á ný Atli Ísleifsson skrifar 21. desember 2014 10:31 Sólin kemur upp hér í Reykjavík klukkan 11.21 og sest 15.30. Vísir/GVA „
Sólin kemur upp hér í Reykjavík klukkan 11.21 og sest 15.30. Þetta er stysti dagur ársins, en það munar reyndar ekki miklu á þessum degi og dögunum í kring,“ segir Helga Ívarsdóttir veðurfræðingur á Veðurstofunni, en vetrarsólstöður eru í dag. Daginn fer að lengja fyrst eftir vetrarsólstöður, en þá virðast áhrifin meiri síðdegis en að morgni. Fyrstu dagana eftir vetrarsólstöður seinkar jafnvel sólarupprásinni, ólíkt því sem búast mætti við, þannig að sólin kemur upp seinna á jólum en á sólstöðunum. „Það gerist ekki mikið fyrstu dagana. Milli jóla og nýárs kemur sólin einni mínútu seinna upp en sest seinna. Sólstöður eru hins vegar merktar í dag, 21. desember,“ segir Helga. Helga segir að þó að dagarnir hafi verið stuttir að undanförnu þá hafi snjórinn ef til vill gert daginn bjartari. „Það er nú alltaf betra að hafa snjóinn í skammdeginu. Það lítur ekki út fyrir rigningu til jóla, þannig að áfram má búast við þessari snjóhulu. Það lítur út fyrir hvít jól um allt land.“ Spár Veðursstofunnar gera ráð fyrir að það snúist í norðaustanátt í dag og í nótt og fram eftir degi á morgun. „Svo á að lægja á Þorláksmessu. Á morgun má búast við éljum aðallega norðan- og austantil á landinu en svo dregur úr þessu. Á aðfangadag er hægur vinur og gætu verið einhver él, aðallega norðantil á landinu. Á jóladag snýst hann aðeins í suðlæga átt, en ennþá hægur vindur og kalt í veðri. Það má því búast við talsverðu frosti yfir hátíðirnar.“ Helga segir að á annan í jólum sé hins vegar gert ráð fyrir austan, norðaustan stormi með snjókomu eða slyddu. „Stormurinn á svo að ganga niður seint á laugardag. Það er því fínasta veður um jólin þar til á annan dag jóla. Þá kemur næsti stormur.“
Mest lesið „Ég hef aldrei lent í öðru eins“ Innlent Skipverjarnir áttu að fá 2,5 milljónir króna á haus Innlent „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Innlent Slasaðist alvarlega við heyskap Innlent Brotist inn í þrjá gáma og dýr verkfæri tekin ófrjálsri hendi Innlent Drykkurinn komi úr flösku ráðherra Innlent Mótorhjól og bíll skullu saman Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent Sjötugur maður tapað hundrað og átta milljónum til fjárkúgara Innlent Stórbruni í Drammen og dularfull staða moskítóflugunnar Innlent Fleiri fréttir „Klappað eins og það væri stórstjarna að koma inn“ Óttast að „bottar“ muni ýta undir ágreining í aðdraganda atkvæðagreiðslu Íslensk hjón þurft að flýja undan gróðureldum á Spáni Báti var siglt yfir kajakræðara Kvöldfréttir í heild sinni „Ég hef aldrei lent í öðru eins“ Fimm fluttir til aðhlynningar eftir árekstur Skipverjarnir áttu að fá 2,5 milljónir króna á haus Endurkoma Herjólfs vekur upp ýmsar spurningar Standa með félagsmanni sem var sviptur frelsi Íslendingur á Benidorm stöðvaður eftir tíu daga svikahrinu Halda samráðsfund vegna innbrotahrinu Auka nákvæmni rauntímaupplýsinga Vara við hviðum á landinu suðaustanverðu Sólmyrkvinn ógnar fjarskiptum og Mærudagar ganga í garð Úttekt landlæknis á Hraunbúðum: Fagmenntað starfsfólk langt undir lágmarksviðmiðum „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Ekið á dreng á hjóli og aðrir fluttir á slysadeild eftir hjólaslys Á sjúkrahús eftir að hafa flogið af mótorhjólinu Eldur kviknaði á Fiskislóð Reið en þakklát fyrir lífsbjörgina Kominn til Akureyrar eftir alvarlegt slys á skemmtiferðaskipi „Það er verið að dreifa athyglinni, það er verið að auka óvissu“ „Gott og vel við skulum trúa ráðherranum“ Utanríkisráðherra svarar og kona stórslasaðist á hlaupahjóli Ekki um „týndar skýrslur“ að ræða Hart tekist á um ESB Burðardýr Stúarts litla dæmd í sex ára fangelsi Tekinn úr umferð vegna ótrúlegrar brotahrinu Góðu fréttirnar þær að innlend verðbólga sé á undanhaldi Sjá meira