Kjartanshús út um borg og bí Valgerður Jónsdóttir skrifar 12. október 2014 09:00 Vinsældir Kjartans Sveinssonar risu hæst á sjöunda og áttunda áratugnum.
Maðurinn sem stundum var kallaður arkitekt þjóðarinnar var ekki arkitekt og gaf sig heldur aldrei út fyrir að vera slíkur. Samt risu hús af öllum stærðum og gerðum eftir hann út um borg og bí í þúsundavís frá árunum í kringum 1960 og fram eftir tíunda áratug þessarar aldar. Kjartan Sveinsson, sem nú er nýlátinn 88 ára að aldri, var aftur á móti menntaður byggingatæknifræðingur frá Katrineholms-tækniskólanum í Svíþjóð, þaðan sem hann útskrifaðist 1955, eftir að hafa áður lært húsasmíði hér heima. Á löngum starfsferli var hann óhemju afkastamikill, en hann lét ekki af störfum fyrr en hátt á áttræðisaldri.Hús eftir Kjartan SveinssonAð námi loknu hóf Kjartan störf hjá Húsameistara Reykjavíkurborgar, þar sem hann starfaði í sex ár áður en hann stofnaði eigin teiknistofu 1961 sem hann rak um áratugaskeið. Eins og alla jafna tíðkast þegar hús og byggingar eru annars vegar höfðu menn og hafa enn misjafnar skoðanir á verkum hans, sumum þótti nóg um íburðinn, súlurnar og skrautið, sem þeir sögðu höfundareinkenni hans, súlurnar sérstaklega. Engu að síður féll stíllinn vel í kramið hjá mörgum og átti Kjartan gríðarlegum vinsældum að fagna hjá þeim sem í starfstíð hans voru að koma sér þaki yfir höfuðið, hvort sem það voru einbýlishús, raðhús eða íbúðir í fjölbýli. Skólar, hótel og skrifstofu- og iðnaðarhúsnæði voru líka á teikniborðinu. Kjartan setti því óneitanlega svip sinn á íslenskt umhverfi til frambúðar. Og sjálfur fór hann ekki með veggjum, sérstaklega ekki þegar hann ók um götur borgarinnar á fokdýrum og fágætum eðalvagni, sérstakri afmælisútgáfu af Lincoln Continental Mark V, árgerð 1978, með fangamark sitt skrautmálað á hurðirnar. R 1960 vakti hvarvetna athygli og aðdáun og menn gerðu því skóna að bíllinn kostaði ígildi þriggja herbergja íbúðar. Glæsileikinn var sagður í stíl við húsin hans, sem mörg hver minntu á villur á spænskri sólarströnd eða Southfork, bústað hinnar auðugu Dallas-fjölskyldu í Texas, sem hálf þjóðin fylgdist með í sjónvarpinu á þriðjudagskvöldum á þessum tíma. En það er önnur saga.Stefán Benediktsson, arkitektEinfaldleikinn og „rjómatertuhúsin“ Þvert á það sem margir segja um stíl Kjartans er Stefán Benediktsson arkitekt á því að hann hafi haft einfaldleikann í fyrirrúmi. „Að „rjómatertuhúsunum“ undanskildum,“ tekur hann þó skýrt fram. „Á áttunda áratugnum fór að bera á súlum og bogum og seinna skrautlegum þakköntum. Slíkt rataði þó aldrei á fjölbýlishúsin. Stefán segir þróunina athyglisverða í ljósi þess að á áttunda áratugnum gekk yfir póstmódernísk bylgja. „Einfaldleikinn vék og innblásturinn var sóttur í fornar byggingar Grikkja og Rómverja. Ég held ekki að Kjartan hafi meðvitað fylgt þessum straumum, áhrifin hafi fremur tengst auknum sólarlandaferðum Íslendinga, sem heilluðust af spænskum glæsivillum,“ segir Stefán og telur að húsin sem kennd eru við rjómatertur hafi þó ekki fallið sérstaklega að smekk Kjartans. „Sú sannfæring hans að koma sem best til móts við viðskiptavinina réð ferðinni. Vinsældir hans risu hæst á sjöunda og áttunda áratugnum, teikningar hans voru ódýrar og húsin einföld í uppslætti og mörg alveg eins.“ Að sögn Stefáns voru vinnubrögð Kjartans með öðrum hætti en arkitekta almennt. Hann hafi látið viðskiptavini skoða teikningasafn sitt eða kannað hvort eitthvert hús eftir hann vekti áhuga þeirra. Stefán hafnar því að arkitektar hafi átt í deilum við Kjartan vegna þessa. Því sé þó ekki að neita að hann hafi oft borið á góma í samræðum þeirra, enda gangi slík vinnubrögð gegn þeirri hugsun arkitektsins að hver viðskiptavinur eigi „sína“ lausn skilið. „Kjartan hafði tvímælalaust áhrif,“ segir Stefán og bætir við Kjartan hafi þó ekki átt sök á því að barnaherbergi í fjölbýlishúsum á sjöunda áratugnum voru aðeins litlar skonsur. Slíkt hafi helgast af lánaforsendum.
Mest lesið Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Lífið „Ég þurfti að segja heiminum að þú værir með krabbamein“ Lífið Persónuleg Vala Matt opnar sig um einkalífið Lífið Hvað veistu um... gönguleiðir? Lífið Fallegar kveðjur og ósagðar sögur af meistara grínsins Lífið Eva Rún og Blær hljóta Barnabókaverðlaun Guðrúnar Helgadóttur Menning Uppeldisfræðingurinn reyndist vel sósuð fótboltabulla Lífið Leiðir skilja hjá leikhúspari Lífið Faldi diktafóna, tók myndir og át til að fanga stemminguna Lífið Ungfrú Austurríki látin aðeins 22 ára Lífið Fleiri fréttir Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Hvað veistu um... gönguleiðir? „Ég þurfti að segja heiminum að þú værir með krabbamein“ Persónuleg Vala Matt opnar sig um einkalífið Fallegar kveðjur og ósagðar sögur af meistara grínsins Faldi diktafóna, tók myndir og át til að fanga stemminguna Uppeldisfræðingurinn reyndist vel sósuð fótboltabulla Öldrunarlæknir og verkfræðingur selja miðbæjarperlu Ungfrú Austurríki látin aðeins 22 ára Leiðir skilja hjá leikhúspari Stærðarinnar hola gleypti innkeyrslu Cage Nornir komu saman á miðilsfundi Átti óheillavænlegt samtal við Kennedy fyrir flugslysið: „Ég þarf ekki aðstoðarflugmann“ Prinsinn hefur nám við Eton-skóla Hafnaði tæpum fimm milljarða þagnarsamningi Musks South Park verður South America Kappsmál sett á ís Áslaug Arna setur lúxusíbúð á leigu Hvað veistu um… textana hans Bubba? Engin ákvörðun tekin um Eurovision þátttöku Sögufrægt verslunarhús til sölu Hélt allsherjar skilnaðarpartý: „Ég er frjáls“ Lést eftir mislukkaða typpastækkun í Taílandi „Brúðkaup aldarinnar“ hjá Önnu Fríðu og Sverri Stjörnulífið: Undir hárlengingum og bótoxi leynist íslenskur karlmaður Eitt allra krúttlegasta mót ársins Ólíkt hafast þeir að forsetarnir fyrrverandi Einn mánuður án áfengis breytti öllu Krakkatía vikunnar: Pöndur, Instagram og Sveppi Augnablikið þegar fréttastofan sjálf varð að frétt Sjá meira