Meirihlutinn vill Ólaf Ragnar áfram Jakob Bjarnar skrifar 5. nóvember 2014 14:14 Ólafur Ragnar og Jón Gnarr. Eins og staðan er í dag gæti vel komið til greina að til einvígis þessara tveggja um forsætisembættið komi að tveimur árum liðnum.
Mikill meirihluti hlustenda Útvarps Sögu vill að Ólafur Ragnar Grímsson forseti Íslands bjóði sig aftur fram í komandi forsetakosningum. Um er að ræða niðurstöðu vefkönnunar sem fram fór fram á vefsíðu útvarpsstöðvarinnar síðasta sólarhringinn þar kemur fram að um sjötíu prósent vilja að Ólafur Ragnar bjóði sig fram aftur. Spurt var: Vilt þú að Ólafur Ragnar Grímsson bjóði sig aftur fram í embætti forseta Íslands? Já svöruðu rúm 68 prósent eða 335 atkvæði. Nei sögðu hins vegar 29 prósent meðan hlutlausir voru 3 prósent. Þessi niðurstaða stangast á við nýlega könnun sem Fréttablaðið birti og greindi frá um helgina en þar kemur fram að mikill meirihluti aðspurðra vill sjá Jón Gnarr, fyrrverandi borgarstjóra, á Bessastöðum, eða 47 prósent. Hringt var í 1.241 manns þangað til 801 svaraði. Alls tóku 34 prósent aðspurðra í könnuninni afstöðu til spurningarinnar með því að nefna tiltekið nafn. Sú könnun hlýtur að teljast marktækari en vefkönnun Útvarps Sögu, en vefkannanir þykja ekki mjög áreiðanlegar en engu að síður er í þessu vísbendingar um að til einvígis þessara tveggja gæti komið eftir tvö ár. Því könnun Fréttablaðsins er ekki jafn afgerandi og þessi. Ólafur Ragnar er fimmti forseti lýðveldisins Íslands. Hann var endurkjörinn forseti vorið 2012 og að óbreyttu mun kjörtímabil hans renna út 31. júlí 2016. Hann hefur þá verið forseti Íslands í 20 ár, lengur en nokkur annar, en 9 prósent í könnun Fréttablaðsins vilja sjá hann áfram sem slíkan, jafn margir og geta vel hugsað sér að Ragna Árnadóttir, fyrrverandi dómsmálaráðherra, verði næsti forseti lýðveldisins. Hvorki Jón né Ólafur hafa viljað svara með afgerandi hætti hvort þeir ætli fram eða ekki.
Mest lesið Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Innlent Fólki ráðlagt að fylgjast vel með veðurspám Veður Sýknaður af nauðgun þótt konan þætti trúverðug Innlent „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Innlent Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum Innlent Flutt á sjúkrahús með hraði vegna innvortis fíknefnasmygls Innlent Hitamet í maí slegið í Bretlandi Erlent Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Innlent Arftaki 757 aftur á teikniborði Boeing Erlent Lögðu hald á skotvopn og maður í gæsluvarðhald Innlent Fleiri fréttir Framkvæmdum við Suðurlandsveg frestað Flutt á sjúkrahús með hraði vegna innvortis fíknefnasmygls Lögðu hald á skotvopn og maður í gæsluvarðhald Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Jarðskjálfti við Bárðarbungu í nótt „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Sýknaður af nauðgun þótt konan þætti trúverðug Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum „Ekki í lífshættu“ Flugáætlun Icelandair hafi fallið á álagsprófi Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Sjá meira