Mega ekki bera Hijab-slæðuna og hættu því keppni Tómas Þór Þórðarson skrifar 25. september 2014 11:00 Kvennalið Katar í körfubolta gengur af velli gegn Mongólíu. vísir/afp
Kvennalið Katar í körfubolta dró sig úr keppni á Asíuleikunum sem nú standa yfir í Suður-Kóreu eftir að leikmönnum þess var meinað að klæðast Hijab á meðan leik stendur, en það er slæðan sem múslimakonur bera á höfðinu. Leikmenn liðsins neituðu að fjarlægja þær fyrir leik liðsins gegn Mongólíu á dögunum og gengu þær því af velli og gáfu leikinn. Reglur Alþjóðakörfuknattleikssambandsins meina leikmönnum að vera með nokkurskonar höfuðfat á meðan leik stendur og þar sem ekki er á dagskrá að breyta reglunum ákvað kvennalið Katar að draga sig úr keppni. Í öðrum íþróttagreinum á Asíuleikunum mega konur bera Hijab, en allar fjórar konurnar frá Katar sem unnu til bronsverðlauna í róðrakeppni í fjórmenningi í gær báru Hijab. Körfubolti er ein af fáum greinum sem eftir er sem ekki má leika með Hijab á höfðinu, en FIBA sagðist fyrr í mánuðinum vera að ræða málefnið og mögulegar breytingar, að því fram kemur í frétt BBC. Eftir að hafa gefið leikinn gegn Mongólíu sagði AmalMohamed, leikmaður Katar, að liðinu hefði verið lofað að það mætti bera Hijab í keppni á Asíuleikunum. „Okkur var sagt að við mættum æfa og spila með Hijab. Við munum ekki mæta til leiks aftur nema reglunum verði breytt,“ sagði AmalMohamed.
Körfubolti Mest lesið Mögulegt áfall fyrir Slóvena í aðdraganda EM Körfubolti Hetjan Arnór stýrði fjöldasöng eftir leik Fótbolti Eze hafi nú þegar náð samkomulagi við Tottenham Fótbolti Kane og Diaz tryggðu Bayern Ofurbikarinn Fótbolti Brynjólfur tryggði dramatískan sigur Fótbolti Uppgjörið: FH - Breiðablik 2-3 | Blikar bikarmeistarar eftir framlengingu Íslenski boltinn „Þakklát fyrir að vera uppalin í þessum klúbbi“ Fótbolti Allt jafnt í fyrsta leik Orra og félaga Fótbolti „Hörku barátta tveggja góðra liða“ Fótbolti Jökull í Kaleo hitti stjörnur Rauðu djöflanna og spilaði á Old Trafford Enski boltinn Fleiri fréttir Eze hafi nú þegar náð samkomulagi við Tottenham Hetjan Arnór stýrði fjöldasöng eftir leik Mögulegt áfall fyrir Slóvena í aðdraganda EM Brynjólfur tryggði dramatískan sigur Kane og Diaz tryggðu Bayern Ofurbikarinn „Hörku barátta tveggja góðra liða“ „Þakklát fyrir að vera uppalin í þessum klúbbi“ „Ætluðum ekki heim án sigurs“ „Loksins, tilfinningin er geggjuð“ Allt jafnt í fyrsta leik Orra og félaga Arnór og Ari skoruðu er Norrköping hafði betur í Íslendingaslag Öruggur sigur Börsunga gegn níu heimamönnum Hádramatík eftir að Willum kom inn á Úlfarnir steinlágu gegn City Draumabyrjun nýliðanna úr norðri | Muniz bjargaði Fulham Uppgjörið: FH - Breiðablik 2-3 | Blikar bikarmeistarar eftir framlengingu Daníel Tristan skoraði í stórsigri Sló fjörutíu ára gamalt mótsmet Ísak skoraði enn eitt markið fyrir Lyngby Richarlison sýndi nýliðunum enga miskun Markalaust á Villa Park Semenyo tjáir sig: „Fótboltinn sýndi sínar bestu hliðar þegar mest á reyndi“ Fáar spilað leik á þessum velli Jökull í Kaleo hitti stjörnur Rauðu djöflanna og spilaði á Old Trafford Amorim brattur: „Ég er bjartsýnni“ Liverpool vinni ekki deildina haldi liðið áfram á þessari braut Englarnir frá LA án sigurs í átta leikjum „Vona að við séum búnar að læra nægilega mikið og förum að vinna“ Öll helstu atvikin úr opnunarleiknum: Átti varnarmaður Bournemouth að vera rekinn af velli? Dagskráin: Enski boltinn rúllar í DocZone Sjá meira