Maðurinn fundinn á lífi Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 14. nóvember 2014 10:49 Hér má sjá kort af því hvar maðurinn fór út í ána á bíl sínum og hvar hann fannst. Vísir/Loftmyndir
Ökumaður bíls sem fór út í Ölfusá í kringum hálf ellefu í gærkvöldi er fundinn. Maðurinn er á lífi og er kominn til aðhlynningar á sjúkrahúsinu á Selfossi. Ekki er vitað hversu mikið hann er slasaður en hann var kaldur og hrakinn þegar hann fannst neðan við flugvöllinn á Selfossi. Maðurinn er á þrítugsaldri og búsettur í Árnessýslu. Kom hann gangandi til móts við leitarmenn úr björgunarsveitinni Dagrenningu á ellefta tímanum. Voru þá liðnar tólf klukkustundir síðan bíllinn fór út í ána.Sjá einnig: Maðurinn leitaði skjóls í vélgröfu Í kringum áttatíu manns leituðu mannsins langt fram á nótt. Sigldu björgunarsveitarmenn bát upp og niður ána. Einnig var leitað frá bökkum árinnar. Nokkir leitarmenn fylgdust með úr meiri hæð og skimuðu yfir svæðið. Þá voru kafarar kallaðir til og mátu stöðuna í morgun en afar straumhart er í ánni þar sem bíllinn fór út í. Til stóð að í kringum hundrað manns tækju þátt í leitinni í dag. Vitni var að atvikinu í gærkvöldi. Það tilkynnti lögreglu hvers kyns var og voru björgunaraðilar kallaðir út. Meðal annars kafarar með málmleitartæki og þyrla gæslunnar flaug yfir leitarsvæðið í nótt.Uppfært klukkan 11Fulltrúar lögreglu og björgunarsveita funda nú í kjölfar fundarins. Tíðinda er að vænta fljótlega.Uppfært klukkan 12Maðurinn var fluttur á heilbrigðisstofnun Suðurlands og í kjölfarið á sjúkrahús í höfuðborginni. Bíll mannsins er ófundinn og ekki er fyrirhuguð leit að honum að svo stöddu.Fréttin verður uppfærð eftir því sem nýjar upplýsingar berast.
Tengdar fréttir Bíll fór út í Ölfusá Umfangsmikil leit stendur yfir við ánna og taka um hundrað manns þátt. 13. nóvember 2014 23:27 Leit hafin á ný í Ölfusá Hátt í áttatíu manns leituðu án árangurs langt fram á nótt að bíl sem ekið var út í Ölfusá í gærkvöldi. 14. nóvember 2014 09:52 Mest lesið Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Erlent Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Innlent Bakslag í vorkomu: Snjóföl og hálka í næstu viku Veður Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Innlent Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Innlent Bilið á milli turnanna breikkar Innlent Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Innlent Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Innlent Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Innlent Lánið í höfn og Harry veitir Trump óumbeðin ráð Erlent Fleiri fréttir „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Sjá meira
Bíll fór út í Ölfusá Umfangsmikil leit stendur yfir við ánna og taka um hundrað manns þátt. 13. nóvember 2014 23:27
Leit hafin á ný í Ölfusá Hátt í áttatíu manns leituðu án árangurs langt fram á nótt að bíl sem ekið var út í Ölfusá í gærkvöldi. 14. nóvember 2014 09:52