Biðlar til þjófa að skila sér sérhönnuðu bardagasverði Kjartan Atli Kjartansson skrifar 3. júlí 2014 14:06 Benedikt er hér í gervi munks. Til hægri er svo sverðið sem var stolið. „
Ég biðla bara til þeirra sem stálu sverðinu að skila því. Þetta er sérhannað bardagasverð. Það er rúnað og er í raun ekki hægt að nota sem skrautmun,“ segir Benedikt Kristjánsson. Brotist var inn í bílinn hans og sverði, víkingabelti og poka af verkfærum stolið. Benedikt er í hóp sem kallar sig Rimmugýgur. Hópurinn sér um ýmiskonar víkingaskemmtanir og sýna þaulæfð bardagaatriði. Sverðið var hluti af búningi Benedikts. Hann fékk sverðið að gjöf frá fjölskyldu sinni og segir að nýtt sverð kosti um fimmtíu til sextíu þúsund krónur. Víkingabeltið sem var stolið af honum var sérhannað.Skellti mér í Nóatún og keypti mér tælenskan mat Sverðinu var stolið úr bíl Benedikts á meðan hann skellti sér í Nóatún í Hamraborg og sótti sér mat á tælenska veitingastaðnum Thaimatur, sem einnig er í Hamraborg. „Ég var kannski svona þrjár mínútur í Nóatúni og svo stökk ég inn og sótt tælenska matinn. Ég keyrði heim og þá fattaði ég að sverðið var horfið,“ útskýrir hann og segir bílinn hafa verið ólæstan.Farið víða Benedikt hefur farið með sverðið víða um Evrópu að eigin sögn. „Já, ég var til dæmis að kom frá Danmörku fyrir stuttu. Þetta sverð var mér afar kært, þetta var falleg gjöf frá fjölskyldunni.“ Sverðið er rúnað – sem sagt ekki beitt. „Þetta er sérhannað til þess að nota í svona bardagasýningum. Við æfum tvisvar í viku og undirbúum okkur vel. En sverðin þurfa samt að vera rúnuð, því það er sárt að fá beitt eggvopn í sig,“ segir Benedikt.
Mest lesið Guðmundur Elís ákærður fyrir að fara með stúlku um borð Innlent Stunginn með skrúfjárni við Steinhellu Innlent Ríkið sýknað vegna dauða ungrar konu í átökum við lögreglu Innlent Bandaríkjamenn virðast lítið vita hvað þeir eru að gera Erlent Kristinn ekki bænheyrður Innlent Segist saklaus Innlent Rétt að leita svara hjá Alþjóðadómstólnum og óttast ekki afleiðingar Innlent Mátti kalla fjárfesta „nútíma þrælahaldara“ Innlent Sex snjóflóð fallin og veginum lokað Innlent Ísland tekur þátt í máli gegn Ísrael Innlent Fleiri fréttir Á annan tug ferðalanga fastir á Holtavörðuheiði Íslendingar skipi sér í hóp með öfgaríkjum Umdeild málsókn, sviptingar í fjölmiðlum og verðhækkanir Þó nokkur snjóflóð fallið og loka Flateyrarvegi í kvöld Fjögurra vikna gæsluvarðhald eftir hópárás Stunginn með skrúfjárni við Steinhellu Sýkna Landsbankann af kröfum Quang Le Kristinn ekki bænheyrður Landsréttur tók ekki heldur mark á lygilegri frásögn Fimm ár fyrir stangir fullar af amfetamíni Mátti kalla fjárfesta „nútíma þrælahaldara“ Umsókn Miðflokksins í klúbb evrópska íhaldsmanna ekki svarað Ríkið sýknað vegna dauða ungrar konu í átökum við lögreglu Samtal hafið um Ísafjarðarflug Ferðamenn valdi fleiri slysum en ölvaðir eða ungir ökumenn Miðflokkur kynnir sex efstu í Garðabæ Rétt að leita svara hjá Alþjóðadómstólnum og óttast ekki afleiðingar Norðanhríð fyrir vestan og Ísland í máli gegn Ísrael Þau eru á lista Samfylkingarinnar í Kópavogi Sex snjóflóð fallin og veginum lokað Guðmundur Elís ákærður fyrir að fara með stúlku um borð Ísland tekur þátt í máli gegn Ísrael Lyfin stundum of dýr en ekki hægt að stökkva á ódýrasta kostinn Meðalbiðtími fimmfalt lengri en viðmið landlæknis Ný lög séu eitt af mörgum skrefum sem þurfi að taka Gengur stolt frá borði reynslunni ríkari Óvissustig í Súðavíkurhlíð „Öryggi okkar fólks það eina sem skiptir máli“ „Eins og best verður á kosið í heiminum“ Besta fimleikafólk Danmerkur gefur góð ráð og sýnir á Íslandi Sjá meira