Akurnesingur dæmdur í hálfs árs nálgunarbann gegn eiginkonu sinni Bjarki Ármannsson skrifar 17. desember 2014 15:43 Hæstiréttur staðfesti í gær nálgunarbann karlmanns á Akranesi gegn eiginkonu hans. Vísir/GVA
Hæstiréttur staðfesti í gær nálgunarbann karlmanns á Akranesi gegn eiginkonu sinni. Manninum er meinað að koma innan fimmtíu metra frá heimili konu sinnar en hún segir hann hafa beitt sig heimilisofbeldi í um tíu ár.Sparkaði í konu sína og tók af henni vegabréfið Í beiðni lögreglustjórans á Akranesi um nálgunarbann gegn manninum kemur fram að lögreglu barst tilkynningu um heimilisofbeldi þann 21. maí síðastliðinn. Þegar lögregluþjónar mættu á vettvang stóð maðurinn úti á bílastæði fyrir framan heimili sitt, talsvert ölvaður, ásamt syni sínum. Sonurinn hafi útskýrt fyrir lögregluþjónum að foreldrar hans hafi verið að rífast og að móðir hans og systir væru inni í íbúðinni. Þegar lögregla ræddi við konuna sagði hún eiginmann sinn hafa sparkað í sig fyrr um kvöldið og hent henni inn í barnaherbergi. Hann hafi jafnframt reynt að ná af henni farsíma hennar og tekið af henni vegabréf hennar. Þá sagði hún mann sinn hafa skallað sig og snúið upp á handlegg sinn stuttu áður með þeim afleiðingum að hún þurfti að leita sér læknisaðstoðar.Braut þrisvar gegn nálgunarbanni Þann 22. maí var manninum gert að sæta nálgunarbanni og brottvísun af heimili sínu með úrskurði Héraðsdóms Vesturlands. Nálgunarbannið var í gildi til 13. nóvember en maðurinn er sagður hafa brotið þrisvar gegn því á þeim tíma. Meðal annars var óskað eftir lögreglu í almenningssundlaug þann 7. október þar sem maðurinn hafði í hótunum við konu sína og hótaði að „stúta“ þeim báðum, að sögn vitna. Héraðsdómur Vesturlands dæmdi manninn í síðasta mánuði í áframhaldandi nálgunarbann til 13. maí á næsta ári. Hæstiréttur hefur nú staðfest þann úrskurð.
Mest lesið Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Innlent „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Innlent Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun Innlent „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Kristrún tilbúin í aðgerðir Innlent Ákærður fyrir að nauðga sofandi og ölvaðri dóttur sinni Innlent Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Innlent Fleiri fréttir Árekstur við Hamraborg Engin aðstoð við próftöku og litaðar númeraplötur Uppsagnir hjá Klettabæ Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Kristrún tilbúin í aðgerðir Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Ákærður fyrir að nauðga sofandi og ölvaðri dóttur sinni Væntingar um útspil tengt gjaldahækkunum Neituðu sök við þingfestingu Straumsvíkurmálsins Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Sniðganga geti verið túlkuð sem yfirlýsing ríkisstjórnarinnar Fjórir í gæsluvarðhald eftir hraðsendingu frá Þýskalandi Ekkert svigrúm í tengslum við kjarasamninga og tvísýnt með framhaldið Lét ákærða vita af andlátinu: „Hann var í miklu uppnámi“ „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Flutningabíll valt á Þverárfjallsvegi sem er lokaður Lægðin grynnist í dag en von á annarri Bíl ekið á ljósastaur Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði ESA geti ekki beðið endalaust Valgerður réttir fram sáttahönd Vill að Daði vísi til þess sem hún á að hafa sagt Tilkynnt um ölvaðan flugmann Brunavörnum hafi verið verulega áfátt Konan sem lögreglan lýsti eftir er fundin Nú er hægt að taka Strætó alla leið að flugstöðinni Sjá meira