38 ára og bara einu stigi frá persónulegu stigameti Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 2. desember 2014 09:45 Darrel Keith Lewis. Vísir/Valli
Darrel Keith Lewis átti rosalegan leik á sínum gamla heimavelli í gærkvöldi þegar lið hans Tindastóll hélt sigurgöngu sinni áfram í Dominos-deild karla í körfubolta með því að vinna Grindavík 102-97. Darrel Keith Lewis skoraði alls 45 stig í leiknum en hann hitti úr 18 af 24 skotum sínum utan af velli sem gerir 75 prósent skotnýtingu. Lewis þurfti því aðeins 24 skot til að skora þessi 45 stig. Darrel Keith Lewis var aðeins einu stigi frá því að bæta sitt persónulega met í úrvalsdeild karla en hann skorað 46 stig á móti Hamar/Selfoss sem leikmaður Grindavíkur 18. október 2004 eða fyrir rúmum áratug. Lewis þurfti þá 25 skot til að skora sín stig. Þetta var þriðji 40 stiga leikur hans í úrvalsdeild karla. Lewis bætti hinsvegar árangur Tracy Smith Jr. sem var fyrir þennan leik sá leikmaður deildarinnar sem hafði skorað flest stig í einum leik í Dominos-deildinni í vetur. Tracy Smith Jr. skoraði 44 stig fyrir Skallagrím á móti Fjölni 6. nóvember. Þeir tveir eru þeir einu sem hafa komist yfir 40 stiga múrinn í deildinni í vetur. Darrel Keith Lewis kom til Tindastóls fyrir þetta tímabil en hann hafði spilað með Keflavík undanfarnar tvær leiktíðir. Hann lék sína þrjú tímabil á sínum tíma með Grindavík frá 2002 til 2005.
Dominos-deild karla Mest lesið Sigurvegarar krýndir í Reykjavíkurmaraþoninu Sport Sigurvegarinn hafði aldrei hlaupið hálft maraþon áður Sport „Þeir litu ekki út fyrir að vera í formi“ Enski boltinn Nýliðarnir lögðu Rauðu djöflana í fyrsta leik Enski boltinn Infantino beðinn um að mæta ekki á barnamót sem FIFA fjármagnar Fótbolti Gascoigne segist ekki hafa sofið í sex vikur Enski boltinn Myndasyrpa frá Reykjavíkurmaraþoninu: Bleyta, bætingar og bros Sport Brentford tók Tottenham í karphúsið Enski boltinn Tvöfaldur heimsmeistari látinn eftir skotárás Sport Gísli Þorgeir með níu mörk í níu skotum þegar Magdeburg vann Ofurbikarinn Handbolti Fleiri fréttir De Zerbi ósáttur: „Vorum ekki tilbúnir að berjast“ Brentford tók Tottenham í karphúsið Góð byrjun hjá strákunum hans Moyes Glæsimark kom ekki í veg fyrir nýliðasigur Tryggði sigur beint úr aukaspyrnu undir blálokin „Þeir litu ekki út fyrir að vera í formi“ Nýliðarnir lögðu Rauðu djöflana í fyrsta leik Sjáðu Skytturnar á skotskónum í fyrsta leik Gascoigne segist ekki hafa sofið í sex vikur DocZone snýr aftur United nær samkomulagi við Brighton um Baleba Curtis Jones farinn til Inter Arsenal byrjar titilvörnina sannfærandi Lykilmaður að skrifa undir nýjan samning hjá Chelsea Konsa orðinn leikmaður Arsenal Spurs að spreða: Þrefalt dýrari eftir tvö mörk á tveimur árum Eiður ánægður með hvað Chelsea hefur losað sig við marga leikmenn Liverpool fær höfnun frá Brighton Eiður gaf Liverpool algjöra falleinkunn Liverpool samþykkir tilboð í Curtis Jones Þrættu um kaup Arsenal á Bruno: „Ekkert rosalega hrifinn“ Marcus Rashford búinn að fá nóg Tijjani Reijnders farinn Kane gerir lítið úr mögulegri endurkomu í ensku úrvalsdeildina Sjáðu upphitunarþáttinn fyrir enska boltann Lík fannst á leikvangi Charlton Baleba færist nær United Arsenal nálgast kaup á Konsa Byrjaðir að undirbúa lífið án Martínez: Keyptu japanska landsliðsmarkvörðinn Ætlar að gera Arsenal að besta liði í heimi Sjá meira