Tónlistarnemendum í Reykjavík mismunað í kjölfar verkfalls Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 28. nóvember 2014 16:33 Gunnar Guðbjörnsson, skólastjóri Söngskóla Sigurðar Demetz. Vísir
Gunnar Guðbjörnsson, skólastjóri Söngskóla Sigurðar Demetz, segir að Reykjavíkurborg muni ekki bæta öllum tónlistarnemendum upp þann kennslutíma sem þeir misstu í nýafstöðnu verkfalli tónlistarkennara. Þannig muni borgin hvorki bæta nemendum á mið-og framhaldsstig í söngnámi tapaðan kennslutíma né framhaldsnemendum í tónlist. Gunnar segir þetta gera það að verkum að nemendum sé í raun mismunað; sumir fá kennslustundir bættar á meðan ekki er hægt að bæta öðrum neitt upp vegna fjárskorts. Ástæðan er sú að Reykjavíkurborg lítur svo á að ríkið hafi tekið yfir tónlistarnám á framhaldsstigi, og mið-og framhaldsstig í söng, með samkomulagi ríkis og sveitarfélaga um tónlistarkennslu frá 2011. Í samkomulaginu er kveðið á um nokkur hundruð milljóna króna fjárframlag ríkissjóðs í jöfnunarsjóð sem á að renna til framhaldsskólastigs í tónlistarskólunum. Því framlagi skiptir borgin á milli tónlistarskólanna í Reykjavík en Gunnar segir að greiðslan dugi ekki til að borga kennurunum laun. „Við höfum verið að taka úr skólagjaldasjóðnum til að geta greitt kennurum laun. Framlagið sem kemur í gegnum jöfnunarsjóðinn sem ríkið greiðir í dugir núna fyrir um 75% af kostnaðinum við kennsluna. Nú þegar sveitarfélögin hafa samið við tónlistarkennara um launahækkanir mun fjárhagsstaða skólans í raun bara versna enn frekar. Þegar nýir kjarasamningar taka gildi mun greiðslan sem kemur frá jöfnunarsjóði standa straum af um 65% af kostnaðinum því upphæðin sem rennur til okkar hækkar ekkert,“ segir Gunnar. Hann segir því allt stefna í að skólinn muni ekki geta greitt kennurum laun þegar nýir kjarasamningar taka gildi. Skólinn hafi einfaldlega ekki fjármuni til þess. Aðspurður hvort þetta strandi á pólitíkinni segist Gunnar vona að svo sé ekki þó ýmislegt bendi til þess. „Þetta mál kom auðvitað upp í fyrstu stjórnartíð núverandi meirihluta í borginni og samkomulagið við ríkið var gert vegna mikils niðurskurðar sem fyrirhugaður var í tónlistarkennslu í Reykjavík. Nú eru sömu flokkar við völd og ekkert stefnir í að þetta muni breytast.“ Gunnar segir það jafnframt vera undarlega stöðu að hann sem launagreiðandi hafi ekki átt fulltrúa í þeim samningaviðræðum sem leiddu til nýrra kjarasamninga tónlistarkennara. Að sama skapi sé undarlegt að ríkið hafi ekki átt fulltrúa í samninganefndinni ef það hefur tekið yfir mið-og framhaldsnám í söng og framhaldsnám í tónlist, líkt og Reykjavíkurborg heldur fram.
Tengdar fréttir Tónlistarskólar í Reykjavík á barmi gjaldþrots „Við fáum alltaf sama svarið frá Reykjavík, að þetta sé ekki þeirra mál,“ segir Gunnar Guðbjörnsson, skólastjóri Söngskóla Sigurðar Demetz. 17. nóvember 2014 22:19 Mest lesið Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Innlent Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Erlent Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Erlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Innlent Geri málið tortryggilegt að neita að svara Innlent Fleiri fréttir Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Marco Rubio á leið til Íslands „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Ekki búið að finna nýjan lögreglustjóra hátt í hálfu ári síðar Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Árekstur við Hamraborg Engin aðstoð við próftöku og litaðar númeraplötur Uppsagnir hjá Klettabæ Sjá meira
Tónlistarskólar í Reykjavík á barmi gjaldþrots „Við fáum alltaf sama svarið frá Reykjavík, að þetta sé ekki þeirra mál,“ segir Gunnar Guðbjörnsson, skólastjóri Söngskóla Sigurðar Demetz. 17. nóvember 2014 22:19