Hvetja vegfarendur til að fara varlega Samúel Karl Ólason skrifar 4. nóvember 2014 15:16 Kona datt af reiðhjóli í Skeifunni á mánudaginn í síðustu viku. Hún var flutt á slysadeild með sjúkrabíl. Vísir/Stefán
Átta vegfarendur slösuðust í sex umferðarslysum á höfuðborgarsvæðinu í síðustu viku. Lögreglan segir ástæðu til að minna ökumenn á að aka varlega og hafa jafnan gott bil á milli ökutækja. Kona datt af reiðhjóli í Skeifunni á mánudaginn í síðustu viku. Hún var flutt á slysadeild með sjúkrabíl. Harður árekstur varð á gatnamótum Miklubrautar og Háaleitisbrautar á miðvikudaginn. Ökumenn beggja bílanna voru fluttir á slysadeild vegna minniháttar meiðsla. Þrjú umferðarslys voru tilkynnt til lögreglu á fimmtudaginn. Árekstur tveggja bíla varð á gatnamótum Hringbrautar og Njarðargötu, en einn bílinn rakst í þann þriðja í árekstrinum. Ökumaður eins bílsins var fluttur á slysadeild vegna meiðsla á fæti. Þriggja bíla aftanákeyrsla varð á Bústaðavegi við Veðurstofu Íslands. Þá varð umferðarslys í Bæjarhrauni. Þar var bíl ekið í veg fyrir aðra og var einn fluttur á slysadeild til skoðunar. Aftanákeyrsla varð á gatnamótum Dalvegs og Nýbýlavegs á föstudaginn. Farþegi og ökumaður í fremri bílnum meiddust á hálsi og voru fluttir á slysadeild. „Ástæða er til að minna ökumenn að aka varlega og hafa jafnan gott bil á milli ökutækja svo stöðva megi á a.m.k. þriðjungi þeirrar vegalengdar sem er auð framundan. Þá þurfa ökumenn, sem þvera akbraut, jafnan að sýna sérstaka aðgát og huga vel að umferð framundan. Sama aðgæsluheilræðið á erindi til reiðhjóla – og bifhjólafólks,“ segir í tilkynningu frá lögreglunni.
Mest lesið Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Kristrún tilbúin í aðgerðir Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Fleiri fréttir Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Sjá meira