Hverfisgata opnuð á ný Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar 6. nóvember 2014 15:11 Samgöngur eru umtalsvert betri, en strætó kemur þó ekki til með að aka um götuna. vísir/vilhelm
Búið er að opna Hverfisgötu í Reykjavík að nýju. Segja má að gatan hafi tekið algjörum stakkaskiptum en framkvæmdir hafa staðið yfir frá því í fyrra. Gatan verður formlega opnuð næsta laugardag klukkan 13 með fræðslugöngu sem Hjálmar Sveinsson, formaður skipulagsráðs Reykjavíkurborgar, og Guðjón Friðriksson sagnfræðingur leiða. „Við ætlum að horfa til fortíðar og framtíðar. Guðjón gerir fortíðinni og sögunni skil og Hjálmar gerir framtíðarsýninni skil,“ segir Jón Halldór Jónasson, upplýsingafulltrúi Reykjavíkurborgar. Gengið verður frá Safnahúsinu við Hverfisgötu 15 að Hverfisgötu 115. Borgarstjórinn mun að göngu lokinni flytja ávarp og boðið verður upp á heitt kakó og léttar veitingar. Á þessu ári hafa framkvæmdir staðið yfir frá Vitastíg að Snorrabraut. Skipt hefur verið um allar lagnir í götunni, lýsing endurnýjuð og allt yfirborð götu og gangstétta. Þá er búið að setja hita í gönguleiðir, hjólareinar og upphækkuð, steinlögð gatnamót. Samgöngur eru því umtalsvert betri en Strætó kemur þó ekki til með að aka um Hverfisgötuna, í það minnsta ekki eins og sakir standa nú. „Strætó hefur gefið það út að þeir ætli ekki að breyta sínum áætlunum fyrr en búið er að taka alla götuna í gegn. Það er alveg frá Hlemmi og niður að Lækjargötu. En nú liggur það fyrir að það verður ekki farið í frekari framkvæmdir fyrr en 2016. Það helgast af því að það eru aðrar framkvæmdir á áætlun í miðborginni,“ segir Bjarni Brynjólfsson, upplýsingastjóri Reykjavíkurborgar.
Mest lesið „Svolítið súrt þegar við erum búin að vera að byggja upp þarna flotta aðstöðu“ Innlent Sárkvalin og þurfti að borga eina og hálfa milljón fyrir aðgerð Innlent „Er löggjafarvaldið sofandi á verðinum?“ Innlent Einn í gæsluvarðhaldi vegna tengsla sinna við innbrotahrinu Innlent Blöskrar áfengisauglýsingar RÚV Innlent Galið kerfi, hatur á samfélagsmiðlum og boltastemning í beinni Innlent Slasaðist alvarlega við heyskap Innlent Brotist inn í þrjá gáma og dýr verkfæri tekin ófrjálsri hendi Innlent Nálægt því að útrýma moskítóflugu á Suðurlandi Innlent Stórbruni í Drammen og dularfull staða moskítóflugunnar Innlent Fleiri fréttir Hvassviðri hefur sett strik í reikninginn á Bræðslunni Flúðu heimili sitt vegna gróðurelda: „Þetta verður ekki fallegt, fjallið er allt brunnið“ Þúsund sjúkraflug á árinu: „Fyrsta skipti sem við brjótum þann múr“ Bráð veikindi og alelda bíll við Kambana Komst undan ásamt fjölskyldunni „Við ákváðum að snúa bara vörn í sókn“ Fæðingardeildin hafi gleymst í hita leiksins Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Þúsund ára gömul mynt fannst í gamalli verbúð Íslendingur í grennd við Madríd og met í sjúkraflugferðum Fleiri en þeir sem tókust á lentu í átökum ungmenna Áttu eitthvað vantalað við manninn sem endaði fram af svölunum Ari úrskurðaður í gæsluvarðhald á Kýpur Fleygt fram af svölum á fyrstu hæð fjölbýlishúss Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Skynet langt undan en íslensk stjórnvöld þurfa að vera undirbúin „Klappað eins og það væri stórstjarna að koma inn“ Óttast að „bottar“ muni ýta undir ágreining í aðdraganda atkvæðagreiðslu Íslensk hjón þurft að flýja undan gróðureldum á Spáni Báti var siglt yfir kajakræðara Kvöldfréttir í heild sinni „Ég hef aldrei lent í öðru eins“ Fimm fluttir til aðhlynningar eftir árekstur Skipverjarnir áttu að fá 2,5 milljónir króna á haus Endurkoma Herjólfs vekur upp ýmsar spurningar Standa með félagsmanni sem var sviptur frelsi Íslendingur á Benidorm stöðvaður eftir tíu daga svikahrinu Halda samráðsfund vegna innbrotahrinu Auka nákvæmni rauntímaupplýsinga Vara við hviðum á landinu suðaustanverðu Sjá meira