Kafbátar í íslenskri landhelgi yrðu að vera sýnilegir ofansjávar Þorbjörn Þórðarson skrifar 21. október 2014 19:00
Kafbátar verða að sigla ofansjávar og hafa fána sinn uppi þegar þeir sigla í landhelgi annarra ríkja. Sérfræðingur í hafrétti segir að sænsk stjórnvöld geti beitt kafbát í landhelgi Svíþjóðar vopnavaldi, sinni hann ekki tilmælum um að fara úr landhelginni. Svíar hafa síðustu daga leitað að kafbáti sem var í Kanholmsfirði í sænskri landhelgi án tilkynningar. Grunsemdir eru um að kafbáturinn, eða neðansjávarfarið, tilheyri Rússum. Fimmtán herskip sænska sjóhersins, þyrlur og minni bátar leituðu að kafbátnum frá því á föstudag. Á fimmtudag sl. hleruðu sænsk yfirvöld talstöðvarsamtal sem fór fram á neyðarrás rússneska kafbátaflotans sem ýtir stoðum undir þá kenningu að báturinn sé mögulega laskaður.Rússar og Bandaríkjamenn með sína túlkun Í þjóðarétti er umdeilt hvort tilkynna þurfi fyrirfram um friðsamlega för herskipa í landhelgi. Bæði Rússar og Bandaríkjamenn telja að ekki sé þörf á tilkynningu. Annað gildir hins vegar um kafbáta sem sigla með leynd. Samkvæmt Hafréttarsáttmálanum (Hafréttarsamningi SÞ) þurfa kafbátar í friðsamlegri för að sigla á yfirborðinu og sýna fána sinn þegar þeir sigla í landhelgi annarrra ríkja. „Í þjóðarétti er umdeilt að ríki þurfi leyfi strandríkis fyrir för innan landhelgi. Svíar hafa þá reglu að ef um herskip er að ræða þá þarf það að tilkynna um komu sína eftir diplómatískum leiðum. Ef það er ekki gert þá er það brot á sænskum lögum frá 1966,“ segir Bjarni Már Magnússon lektor í lögfræði við lagadeild HR en hann er með doktorspróf í hafrétti. Friðsamleg ferð kafbáts um landhelgi annars ríkis þarf að vera greið og óslitin samkvæmt Hafréttarsáttmálanum. Þá má kafbáturinn ekki stunda upplýsingaöflun, rannsóknir eða mælingar. Bjarni Már segir að það sem gerðist í sænsku landhelginni sé brot á Hafréttarsáttmálnum. „Þetta er í raun mjög gróft brot, bæði á Hafréttarsáttmálanum og þjóðarétti yfir höfuð,“ segir hann.Svíar gætu beitt vopnavaldi Hvernig gætu Svíar brugðist við, finnist farið eða kafbáturinn á annað borð? Fyrsta skref Svía væri að biðja kafbátinn um að yfirgefa landhelgina. Bjarni Már segir að næsta skref væri beiting harðari úrræða eins og vopnvalds til að þvinga viðkomandi kafbát úr landhelginni. Sænsk stjórnvöld þyrftu alltaf að beita meðalhófs við beitingu slíks úrræðis. Það má velta fyrir sér hvaða reglur giltu ef sambærilegar aðstæður kæmu upp hér á landi. Um för erlendra herskipa og kafbáta um íslenska landhelgi gildir tilskipun frá 1939 um aðgang herskipa og herloftfara erlendra ríkja, sem ekki eiga í ófriði, að íslensku forráðasvæði. Samkvæmt þessari tilskipun sem hefur enn lagagildi er erlendum herskipum ríkja, sem ekki eiga í ófriði, heimilt að koma í landhelgina og á hafnir ef koma þeirra hefur verið fyrirfram tilkynnt. Erlendur kafbátur þarf að vera sýnilegur ofansjávar meðan hann er innan íslenskrar landhelgi.
Tengdar fréttir Segja kafbátinn í skerjagarðinum í Stokkhólmi vera frá Rússlandi Daginn áður en leitin hófst námu sænsk yfirvöld talstöðvarskilaboð á rússnesku. 18. október 2014 22:02 Dularfullur kafbátur í Svíþjóð Rússneskt skip sem er sérstaklega búið tækjum til leitar á hafsbotni siglir nú í átt að sænska Skerjagarðinum þar sem umfangsmikil leit stendur yfir að óþekktum kafbát. 19. október 2014 18:38 Sænski herinn leitar kafbáts í skerjagarðinum í Stokkhólmi Talsmaður sænska hersins segir að "trúverðugar upplýsingar“ hafi borist um að erlendur kafbátur væri undir yfirborðinu í skerjagarðinum. 17. október 2014 16:29 Rússar segjast ekkert kannast við kafbát í skerjagarðinum Leitin í sænska skerjagarðinum heldur áfram í dag en alla helgina hefur sænski herinn leitað að torkennilegum hlut sem sást í vatnsborðinu og er talinn hafa verið erlendur kafbátur. 20. október 2014 07:17 Leitin skilar litlum árangri Sænski herinn hélt í gær áfram að leita að óþekktu neðansjávarfarartæki í sænska skerjagarðinum úti fyrir Stokkhólmi. Grunur hefur beinst að Rússum, en engar staðfestingar fengist á neinu frekar en fyrri daginn. 21. október 2014 07:00 Mest lesið Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Innlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Fleiri fréttir Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Sjá meira
Segja kafbátinn í skerjagarðinum í Stokkhólmi vera frá Rússlandi Daginn áður en leitin hófst námu sænsk yfirvöld talstöðvarskilaboð á rússnesku. 18. október 2014 22:02
Dularfullur kafbátur í Svíþjóð Rússneskt skip sem er sérstaklega búið tækjum til leitar á hafsbotni siglir nú í átt að sænska Skerjagarðinum þar sem umfangsmikil leit stendur yfir að óþekktum kafbát. 19. október 2014 18:38
Sænski herinn leitar kafbáts í skerjagarðinum í Stokkhólmi Talsmaður sænska hersins segir að "trúverðugar upplýsingar“ hafi borist um að erlendur kafbátur væri undir yfirborðinu í skerjagarðinum. 17. október 2014 16:29
Rússar segjast ekkert kannast við kafbát í skerjagarðinum Leitin í sænska skerjagarðinum heldur áfram í dag en alla helgina hefur sænski herinn leitað að torkennilegum hlut sem sást í vatnsborðinu og er talinn hafa verið erlendur kafbátur. 20. október 2014 07:17
Leitin skilar litlum árangri Sænski herinn hélt í gær áfram að leita að óþekktu neðansjávarfarartæki í sænska skerjagarðinum úti fyrir Stokkhólmi. Grunur hefur beinst að Rússum, en engar staðfestingar fengist á neinu frekar en fyrri daginn. 21. október 2014 07:00